Föstudagsfréttir
Vikuna 20. - 24. janúar
Rafræn möppuskil
6. og 7.bekkur er búin að opna fyrir heimasíðurnar sínar en það eru okkar rafrænu möppuskil :)
Við munum fara í gegnum rafræn möppuskil í foreldraviðtölunum á mánudag og þriðjudag næstkomandi.
Við minnum á að nemendur eru annars í fríi þessa tvo daga.
Styrktaræfing í 7.bekk
Mánudagur til mæðu!
Sumir dagar eru langir og erfiðir og þá er gott að skella í smá uppbrot!
Upplestrarkeppnin í Naustaskóla
17.febrúar
Upplestrarkeppnin í Naustaskóla hefur verið færð aftur um viku það er þann 17.febrúar vegna breytingar á dagsetningu á aðal keppninni. Munið að taka daginn frá til að koma að hlusta á nemendur í upplestri !
Stóra upplestrarkeppnin verður haldin 4.mars en nánari upplýsingar koma síðar eða þegar nær dregur keppni.
Samantekt
Vikan hefur gengið ágætlega og voru nemendur ánægðir að komast í langt helgarfrí !
Enn er mikið um veikindi og minnum við á að halda nemendum heima þangað til að þeir eru orðnir nægilega frískir til að taka fullan þátt í starfinu.
Við óskum öllum bændum til lukku með daginn !
Eigið góða helgi og hlökkum til að sjá ykkur öll í viðtölunum
Bestu kveðjur
6. og 7. bekkjar teymi