Vikupistillinn
Tímabilið 9. - 15. september 2019
Heilræði vikunnar
Sá sem hefur hugrekkið með sér er í meirihluta
Andrew Jackson (1767 - 1845)
Sýnum ábyrgð við notkun síma og annarra snjalltækja
Punktar
- Munum eftir spurningamerkinu í Mentor til að ná okkur í upplýsingar og myndbönd.
- Nú styttist í haustfundi með foreldrum. Minnum á að glærur frá síðasta skólaári eru á sameign/skólabyrjun/haustfundir með foreldrum. Í möppu sem merkt er haust 2019 eru glærur sem stjórnendur munum nota á sal. Gert er ráð fyrir að fundirnir byrji á sal og síðan fari foreldrar í stofur til kennara. Munið að vista ykkar glærur í möppuna merkta haust 2019.
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt fundaskipulagi ársins.
- Að lokinni ávaxtastund. Mikilvægt er að boxin undan ávöxtunum/grænmetinu skili sér fljótt upp í eldhús. Nýta umsjónarnemendur í að skila boxum.
- Göngum í skólann hefst 4. september, hvetjum nemendur okkar til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla.
Sjá nánar hér: http://www.gongumiskolann.is/ , á síðunni koma fram upplýsingar um ýmsa viðburði sem hægt er að tengja við hreyfingu t.d.
- Í september á að prófa alla nemendur í 2. - 10. bekk með Lesferlinum og þá á að lesskima alla nemendur í 1. bekk.
- Skila á ársáætlun og vikuáætlunum inn á sameign - Áætlanir.
- Kennarar munið að fara yfir SMT reglur vikunnar með nemendum.
- Munum eftir að leggja inn HÆTTU, GAKKTU, SEGÐU FRÁ, sjá Stöndum saman lesefni, kynning frá starfsmannafundi. Það má einnig nálgast í SMT möppunni
- Widgit Online er er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
- BH-Gestir er nýtt þráðlaust net sem er fyrir einkatæki starfsmanna, nemenda og gesta. Netið er opið frá kl. 6:00 - 18:00. BH-Mobile fer að loka.
Mánudagur 9. september
- Haustleiðangur hjá nemendum í 5.bekk frá kl. 8:30. Nemendur fara og mæla þær plöntur sem þeir settu niður í vor.
- Verið - miðdeild - 5. bekkjarkvöld - bekkjamót.
- Verið - elsta deild - 9. bekkjarkvöld.
Þriðjudagur 10. september
- Haustfundur með foreldrum nemenda í elstu deild kl. 8:20 - 8:50 á sal en síðan í umsjónarstofum til kl. 9:40.
- Framboðsræður frambjóðenda til formanns nemendaráðs verða á sal kl. 13:20. Síðan fara nemendur elstu deildar inn í stofur og kjósa formann nemendaráðs.
- Á fundartíma er kennarafundur í fyrirlestarsalnum.
Miðvikudagur 11. september
- Haustfundur með foreldrum í 2., 3. og 4. bekk kl. 8:20 - 8:50 á sal en síðan í umsjónarstofum til kl. 9:40.
- Leikstjóranámskeið fyrir nemendur í 3. - 7. bekk kl. 10:00.
- Brunaæfing kl. 10:30. Mikilvægt að fara yfir rýmingaráætlun með nemendum áður og gefa sér tíma í það.
- Fundur nemendaverndarráðs er kl. 14:15 - 15:00 inni hjá námsráðgjafa.
- Verið - miðdeild - borðtennismót.
- Verið - elsta deild - borðtennismót.
Fimmtudagur 12. september
- Haustfundur með foreldrum í miðdeild kl. 8:20 - 8:50 á sal en skíðan í umsjónarstofum til kl. 9:40.
- Skólastjórnendafundur kl. 9:00.
- Fundur í laustnateym SMT kl. 14:00 - 15:00, inni hjá námsráðgjafa.
- Á fundartíma eru teymisfundir.
Föstudagur 13. september
- Verið - miðdeild - kókosbollukappát.
- Verið - elsta deild - kókosbollukappát.
Opnunarhátið Versins
Nemendur í miðdeild.
Frá samvera yngstu deildar
Steinar að ræða við nemendur um átakið Göngum í skólann.
Frá samveru miðeildar
Dans undir stjórn Mörtu
Tiltekt vikunnar
Við biðjum nemendur í 7. SA undir stjórn Stefáns umsjónarkennara og taka til á skólalóðinni.
Fréttir frá Bjargi
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar að vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Afmælisdagar í september
Marta Gígja á afmæli þann 7. september, Hrönn G. þann 12 september, Inga Dóra þann 15. september, Ásta þann 16. september, Guðrún H. þann 21. september, Hafdís þann 22. september, Hrönn Á. þann 23. september og Aðalheiður þann 26. september. Við óskum þeim innlega til hamingju með afmælið :-)
Á döfinni
- Dagur íslenskrar náttúru er 16. september.
- Samræmd könnunarpróf fyrir 7. bekk eru 19. og 20. september.
- Samræmd könnunarpróf fyrir 4. bekk eru 26. og 27. september.
- Heimsókn danskra nemenda til nemenda í 10. bekk sem hér segir:
- *10. WR þann 16. - 22. september.
- *10. MS þann 23. - 30. september.
- VR kynning fyrir nemendur í 10. bekk kl. 12:40 þann 1. október.
- Forvarnardagurinn er 2. október sem nemendur í 9. bekk taka þátt í .
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200