Fréttabréf Brekkuskóla
Desember 2023
Ágætu foreldrar og forráðamenn
Í desember er margt brallað í skólanum sem tengist aðventu og jólum en við höldum líka okkar striki og sinnum náminu af fullum krafti. Það er aldrei of oft minnst á mikilvægi lesturs og nú er góður tími til að ýta undir lestraráhuga barna með því að setjast niður og lesa með þeim. Í skólanum er unnið með lestur og læsi á margvíslegan hátt. Á yngsta stigi er unnið út frá Byrjendalæsi og hljóðaaðferð og einnig er stuðst við PALS aðferðina. Á mið- og elsta stigi er áfram unnið með PALS og aukin krafa gerð til skilnings og lestrarfimi, ásamt því að áhersla er lögð á vandaðan upplestur. Á öllum stigum þarf að styrkja áhugahvöt nemenda á margvíslegan hátt með því að tryggja að þeir hafi val um fjölbreytt lesefni og góðar lestrarfyrirmyndir. Þessa dagana eru nemendur í 10. bekk með kynningar á nýjum bókum fyrir yngri nemendur. Þetta eru skemmtilegar stundir og vel til þess fallnar að auka áhuga barna á bókum.
Með von um ánægjulega aðventu!
Starfsfólk Brekkuskóla
Litlu - jól 19. og 20. desember 2023
Dagskrá 19. desember:
8. - 10. bekkur mætir í stofur kl.20 jóladagskrá til kl. 21:30
Dagskrá 20. desember:
1. og 2. bekkur mætir í stofur kl. 8:00
Skóladegi lýkur á milli kl. 9:30 og 10:00
Frístund opnar kl. 8 fyrir nemendur sem eru skráðir.
3. og 4. bekkur mætir í stofur kl. 9:00
Skóladegi lýkur á milli kl. 10:30 - 11:00
5. - 7. bekkur mætir í stofur kl. 10:00 skóladegi lýkur um kl. 11:30
Boðið verður upp á mandarínur, piparkökur og kakó fyrir alla árganga.
Kennsla hefst á nýju ári fimmtudaginn 4. janúar 2024.
Heilsueflandi Brekkuskóli
Brekkuskóli vinnur að því að vera Heilsueflandi grunnskóli. Í skólanum er starfandi nefnd sem hefur það meginmarkmið að setja fram heilsustefnu skólans og standa vörð um að við vinnum eftir henni.
Í vetur verður lögð sérstök áhersla á tvo þætti; hreyfingu og mataræði.
Hreyfing: Áhersla skal lögð á að hvetja nemendur og starfsfólk til hreyfingar á skólatíma. Stuðla að reglubundinni hreyfingu í kennslustofu. Skólaumhverfið hvetji til hreyfingar og útiveru. Hvetja nemendur og starfsfólk til að nota virkan ferðamáta til og frá skóla.
Mataræði: Áhersla lögð á að bjóða upp á fjölbreytt og hollt fæði í mötuneyti skólans. Nemendur komi með hollt og næringarríkt nesti. Fræða og leiðbeina um mikilvægi holls og góðs mataræðis.
Mentor - tilkynningar til foreldra
Til að fá tilkynningar um færslur í mentor þurfa foreldrar sjálfir að haka við þær tilkynningar sem þeir vilja fá. Með því að smella á tilkynningar í símann í appinu eða smella á tilkynningar á vefnum.
Ef hakað er við Yfirlit dagsins þá birtast dagbókarfærslur hjá foreldrum.
Undir flipanum Persónuvernd geta aðstandendur stillt hvaða upplýsingar þeir vilja að séu sýnilegar öðrum aðstandendum á tengiliðalistanum. Það er gert með því að smella á reitina með tölunni 0 og þá breytist dálkurinn, verður fjólublár og sýnir töluna 1. Þegar breytingarnar hafa verið vistaðar verða upplýsingarnar sýnilegar öðrum.
Hafðu samband
Email: brekkuskoli@brekkuskoli.is
Website: brekkuskoli.is
Location: v. Skólastíg
Phone: +354 414-7900
Facebook: https://www.facebook.com/brekkuskoli.is/