Vikupóstur
18. - 29. maí
Kæra starfsfólk
Nú er hægt að segja að við séum á síðustu metrunum.... skólaárið er að enda og framundan er allskonar vinna í námsmati, frágangi og þrifum á skólanum.
Þetta tímabil er alltaf álagstími í skólanum og því skiptir máli að halda ró og gæta að góðum samskiptum og virðingu gagnvart samstarfsfólki. Mikilvægt er að við getum farið sátt og ánægð í sumarfrí enda svo sannarlega búin að vinna fyrir því.
Þar sem nemendur koma mikið á hjólum biðjum við kennara að ræða við nemendur um hvar hjólunum sé lagt. Ástandið er mjög slæmt við aðalinngang skólans og aðgegni því erfitt að skólanum. Við höfum ákveðið að 10. bekkur og 4. - 5. bekkur leggi sínum hjólum á bílastæðinu upp við vegginn þar sem snjóhóllinn var, hinir bekkirnir leggja upp við veggina fyrir framan skólann.
Við minnum á skráningu í vorferð 9. júní – sá dagur er síðasti vinnudagur skólaliða og stuðningsfulltrúa. Nú er tækifæri til að sletta ærlega úr klaufunum með skemmtilegasta samstarfsfólki norðan heiða og þó víðar væri leitað.😊
Bestu kveðjur
Alla, Bryndís og Heimir.
Mánudagurinn 18. maí
Leyfi: Erla
Þriðjudagurinn 19. maí
Stjórnendafundur kl. 9:00
Teymisformannafundur vegna vorþemadaga kl. 14.45
BÍLLAUS DAGUR!! Allir að koma gangandi eða á hjóli.
Kveðja heilsunefnd
Miðvikudagurinn 20. maí
Fimmtudagurinn 21. maí
Uppstigningardagur/ Frídagur
Föstudagurinn 22. maí
Starfsdagur – kennarafundur kl. 8:15 – 9:30
Innra mat – ársskýrslur.
Frístund opin!
Mánudagurinn 25. maí
Umslög fara heim vegna áheita í UNICEF hlaupinu 4. júní
Leyfi: ErlaÞriðjudagurinn 26. maí
Stjórnendafundur kl. 8:30
Leyfi:
Miðvikudagurinn 27. maí
Leyfi:
Fimmtudagurinn 28. maí
Nemendaverndarráðssfundur kl. 9:00
Leyfi:
Föstudagurinn 29. maí
Stjórnendafundur 8:30
Leyfi: Elsa, Eva Björk og Ása.