Seyðisfjarðar- skóli
Skólahald á tímum samkomubanns ......
Þakkir til allra
Fréttir af skólastarfinu
Það er áberandi að samhugur ríkir á meðal nemenda og starfsfólks og það er virkilega jákvætt andrúmsloft ríkjandi þrátt fyrir að vá sé fyrir dyrum og við öll innanhúss séum að gera miklar breytingar á störfum okkar. Á öllum deildum skólans ríkir almennt leik- og starfsgleði og á kennarastofunum líka. Við í skólanum stefnum á að veita góðar uppbyggilegar og réttar upplýsingar í því landslagi sem við nú fetum öll saman dag frá degi. Því ætlum við að senda ykkur regluleg fréttabréf með fréttum af starfinu, ráðleggingum, helstu upplýsingum og breytingum sem við verðum að gera eftir því sem fram líður.
Útivera nemenda í grunnskóladeild var aukin
Kennarar á einskonar fjarfundi
Hressir nemendur í lok skóladags í dag
Nemendur á leikskóladeild að róla fyrir ekki svo löngu
Skilaboð dagsins á kennarastofunni
Nemendur í 9. og 10. bekk settu saman hjólavagna undir nýju Ipadana í dag
Vikan 23.-27.mars og framhaldið
Það var ljóst s.l. mánudag að í grunnskóladeildinni yrði strax hafinn undirbúningur að fjarnámi nemenda og hefur sá undirbúningur gengið vel. Við höfum nýtt tímann til að kynna okkur hvernig fjarkennsla er framkvæmanleg og skoðað hvaða gáttir er sniðugt að nota. Við erum nú einnig að skoða hvaða námsefni og skipulag hentar hverjum námshópi út frá aldri og þroska barnanna. Í næstu viku ætlum við að taka fyrstu skrefin. Þetta er gert til þess að minnka samgang okkar og til þess að vera undirbúin undir að fjarkenna í sóttkví, komi til þess úrræðis.
Strax frá næstu viku koma nemendur á unglingastigi að nokkru leyti til með að vinna heiman frá sér. Þau mæta að morgni og eru í skólanum til kl.10:30 en sinna náminu að öðru leyti að heiman. Við kennum þeim á fjarnámsgáttina Google Classroom í skólanum en við ætlum að nýta þá gátt til að halda utan um kennslustundir, skjöl, slóðir og skipulag. Kennarar á öðrum stigum undirbúa einnig fjarkennslu. Við stefnum að því að nýta Google Classroom með nemendum á miðstigi líka, stefnum að því að auka fjarkennslu þar í síðustu viku fyrir páskafrí.
Það er mikilvægt að allir geri sér grein fyrir að nemendadagurinn í unglingadeild styttist umtalsvert í húsnæði skólans og á miðstigi styttist dagurinn örlítið líka, frá næstu viku. En meira um það og skipulagið hér.
Í leikskóladeildinni verðum við að loka klukkan 15:00 í næstu viku. Það er vegna þess að annars náum við ekki að sótthreinsa og þrífa daglega í hólf og gólf. Við ætlum að takmarka blöndun nemenda enn frekar samkvæmt nýjum fyrirmælum Almannavarna og því þarf að setja hópana saman á annan hátt en nú er. Þetta gæti reynst börnunum nokkuð erfitt og við biðjum ykkur foreldrar góðir að sýna því skilning. Til þess að valda sem minnstu raski reynum við eins og hægt er að halda árgöngum og vinum saman í hópi. Það er fyrirséð að ákveðinn hópur barna þarf að vera heima annan hvern dag eins og var í þessari viku. Auk þessa munum við frá mánudeginum 23.mars taka á móti nemendum í dyrunum en ekki í fataklefanum því að foreldrar og gestir eru ekki leyfðir í húsinu. Nánari upplýsingar um starfið í leikskóladeild og breytingar á því í næstu viku hér og í tölvupósti frá Bryndísi sem kemur seinna í dag eða á morgun.
Við þurfum að draga aðeins saman í Skólaselinu til að ná að þrífa á vinnutíma en Skólaselið verður opið til klukkan 14:30 frá og með næstu viku.
Við erum öll á sömu blaðsíðu með það að skerðing á þjónustu hefur áhrif á gjöldin til lækkunar. Gjöldin verða sem sagt aðlöguð að þeim breytingum sem eiga sér stað.
Aðstæður kalla á skapandi nálgun
Nemendur í 1. og 2. bekk fóru út í myndlistartíma
og máluðu með vistvænni málningu í snjóinn
Afskaplega mikilvægt er að....
Foreldrar haldi nemendum heima séu börnin slöpp, lasin eða kvefuð.
Ef nemandi greinist með COVID 19 er nauðsynlegt að upplýsa skólann tafarlaust.
Foreldrar fylgist vel með í tölvupósti og að þeir svari símtölum frá skólanum.
Foreldrar í forgangshópum skilgreindum af Almannavarnadeild eru beðnir um að vera í sambandi við stjórnendur eftir þörfum.
Ef foreldrar eða nemendur hafa spurningar eða ábendingar er um að gera að vera í sambandi við umsjónarkennara/deildarstjóra eða stjórnendur eftir þvi sem við á.
Við biðlum til foreldra að hafa börn í Skólaseli og börn í leikskóladeild heima, eða stytta skóladag þeirra, þar sem aðstæður leyfa.
Leiðbeiningar um sóttkví ef til hennar kemur
- Frá almannavörnum og landlækni -
Einstaklingur fer í sóttkví ef hann:
Er veikur af Covid 19
Hefur mögulega umgengist einstakling með nýja kórónuveirusýkingu
Verið á áhættusvæði en er ekki ennþá veikur sjálfur
Aðrir á heimilinu sem ekki voru útsettir fyrir smitinu þurfa EKKI í sóttkví. Ef um ungt barn er að ræða er nauðsynlegt að fullorðinn einstaklingur fari í sóttkví með barninu.
Mikilvægt er að skipuleggja umgengni á heimilinu þannig að þeir sem eru í sóttkví og hinir séu sem allra minnst á sömu svæðum íbúðarinnar. Í sameiginlegum rýmum eins og á salerni og í eldhúsi þarf að gæta sérstaks hreinlætis.
Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá þeim degi sem einstaklingur var nálægt smituðum einstakling. Ef einstaklingur í sóttkví fær einkenni á hann að hringja í heilsugæsluna sína næsta virka dag til að fá sýnatöku.
Leiðbeiningar vegna sóttkvíar í heimahúsi og ýmsar aðrar ábendingar er að finna á upplýsingavef sem landlæknir og almannavarnadeild lögreglustjóra heldur úti Covid.is
Seyðisfjarðarskóli
Email: svandis@skolar.sfk.is
Website: https://seydisfjardarskoli.sfk.is/is
Location: Suðurgata 4, Seyðisfjörður
Phone: 472-2320