iPad í grunnskólakennslu
Vinnustofur verða í Víðistaðaskóla - (4 skipti)
Vinnustofur verða í Víðistaðaskóla
Vinnustofurnar verða í boði á tímabilinu febrúar-apríl 2018. Hver vinnustofa stendur yfir í 2 klukkustundir í 4 skipti (þ.e. þátttakendur mæta 19. febrúar, 5. mars 19. mars og 9. apríl kl. 14:00-16:00) .
Þátttakendur velja sig sjálfir í eftirfarandi hópa:
Grunnstig er ætlað fyrir kennara sem eru að stíga sín fyrstu skref.
Skráning: https://goo.gl/forms/enM8oORJtymil7x32
Millistig er ætlað fyrir kennara sem hafa grunnþekkingu á iPad.
Skráning: https://goo.gl/forms/2g81yR3ZpEeZMcRS2
Efstastig er ætlað fyrir kennara sem hafa gott vald á iPad og nýta hann í kennslu.
Skráning: https://goo.gl/forms/3Dqqn1lm6wETKGjP2
Hvenær:
Mánudaginn 19. febrúar kl. 14:00-16:00
Mánudaginn 5. mars kl. 14:00-16:00
Mánudaginn 19. mars kl. 14:00-16:00
Mánudaginn 9. apríl kl. 14:00-16:00
Fyrir hverja:
Kennara og annað fagfólk sem nýtir spjaldtölvur í skólastarfi
Áhersla verður lögð á að koma til móts við þátttakendur á þeirra stigi, samþættingu nýrra kennsluhátta og markmiða, hæfniviðmiða og lykilhæfni aðalnámskrár.
Kynntar verða ýmsar aðferðir og möguleikar sem spjaldtölvur bjóða upp á í námi og kennslu með áherslu á verkfæri sem ýta undir sjálfstæð vinnubrögð, samvinnu, sköpun og miðlun.
Markmið
- Að auka þekkingu og skilning þátttakenda á iOS stýrikerfinu.
- Að efla hæfni og leikni þátttakenda í notkun iPad.
- Að auka þekkingu og skilning þátttakenda á Google skólaumhverfinu (G-Suite).
- Að byggja upp sameiginlegan verkefna- og verkfærabanka.
- Að auka færni þátttakenda í að útbúa verkefni fyrir nemendur, með tilliti til hæfniviðmiða lykilhæfni aðalnámskrár.
Hæfniviðmið
Að vinnustofum loknum eiga þátttakendur að:
Þekkja undirstöðuatriði iOS 11 stýrikerfisins.
Geta nýtt iPad á fjölbreyttan hátt í kennslu.
Geta nýtt iPad til að undirbúa kennslu og útbúið efni til miðlunar.
Þekkja smáforrit sem henta þeirra kennslu.
Geta sótt sér fróðleik og ýmis smáforrit á netið.
Geta nýtt sér Google skólaumhverfið (e. G-Suite) í kennslu og við undirbúning.