föstudagspóstur
1.bekkur
Milli byrjendalæsisbóka höfum við þessa viku verið að vinna í vinnubókum, lestrartengdum og stærðfræðitengdum. Þar er áherslan á stafdrátt, hljóða sig í gegnum orð, tugi og einingar, svo eitthvað sé nefnt. Tónmennt féll niður þessa vikuna og í stað þess skrifuðu allir hrósmiða til skólans og einnig fórum við í Yatsy, margir sem voru að læra það í fyrsta skipti en aðrir nemendur kunnu og gátu aðstoðað hina.
Í dag byrjuðum við á nýrri byrjendalæsisbók sem heitir Svona varð ég til. Hún segir frá því mikla ævintýri þegar líf kviknar og barn fæðist. Í næstu viku höldum við svo áfram með þá bók. Næsta vika er annars hefðbundin kennsluvika og ekki um nein uppbrot.
Við megum til með að nefna slagsmál og læti sem hafa sett lit sinn á frímínútur þessa vikuna. Þá eru nemendur að skipta sér í "góða liðið" og "vonda liðið" og ýta, slá og kasta snjó í þá sem tilheyra hinu liðinu. Þessi læti virðast oftast eiga upptök sín á hól hér fyrir utan sem einhverjir hafa eignað sér og stunda það að ýta niður þeim sem vilja komast upp á hann.
Við höfum eytt miklum tíma í að ræða við nemendur að frímínútur séu tími til að leika sér og hafa gaman og að allir hafi rétt á því að leika sér þar sem þeir vilja.
Endilega ræðið þetta heima og vonandi mæta þá allir klárir í skemmtilegar frímínútur á mánudaginn.
Bestu kveðjur,
1.bekkjar teymið