Fréttabréf Vesturbæjarskóla
Fréttir og upplýsingar um skólastarfið í Vesturbæjarskóla
Skólastarf þessa dagana
Jólahefðir
Nemendur í 1. - 4. bekk baka smákökur hjá Jóhönnu í heimilisfræði en í stað þess að deila þeim með öllum skólanum fara þau með þær heim.
Tónmennt er með öðru sniði og er Vignir með jólasöngstundir í jólahúsinu á þakinu.
Jólaleikrit 7. bekkjar verður með breyttu sniði en þau vinna hörðum höndum að því að búa til skemmtileg myndbönd sem klippt verða saman í einhverskonar jólaskaup.
17. desember er rauður dagur eins og venjulega. Þann dag mæta þeir sem vilja í rauðu og börnin mega koma með smákökur í nesti. Nemendur og kennarar borða saman jólamat eftir ákveðnu skipulagi þar sem gætt verður að sóttvarnarhólfum. 6. og 7. bekkur verður aðeins lengur í skólanum þann dag til að þetta gangi upp.
18. desember eru jólaskemmtanir sem verða með breyttu sniði. Börnin mæta í sínar stofur og horfa á jólaskaup 7. bekkjar og fara að því loknu út með sínum kennurum og dansa í kringum jólarólurnar við lifandi tónlist. Allir fá heitt kakó, piparkökur, mandarínur og epli. Nemendur í 7. bekk aðstoða á báðum jólaskemmtunum.
Jólaskemmtun 1. - 4. bekkjar kl. 9:00-10:00
Jólaskemmtun 5. - 7. bekkjar kl. 10:00-11:00
Því miður geta foreldrar ekki tekið þátt í þessum degi með okkur eins og hefð er fyrir. Við biðjum foreldra um að gæta að tveggja metra reglunni eða vera með grímur þegar komið er með börnin í skólann eða þau sótt.
Frístund opnar á venjulegum tíma 18. desember.
Lestrarsprettur
Facebook síða Vesturbæjarskóla
Jólafrí 21. desember - 4. janúar
Jólakveðja
Starfsfólk Vesturbæjarskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.