Víðóma
Fréttabréf Víðistaðaskóla janúar - apríl 2022
Kveðja frá skólastjórn
Kæru foreldrar, forsjáraðilar, nemendur og starfsmenn
Veturinn hefur verið frekar krefjandi í ár vegna veikinda og haft mikil áhrif á skólastarfið en nú horfum við til bjartari tíma og hækkandi sólar. Þrátt fyrir aðstæðurnar þá hefur margt skemmtilegt verið gert í skólanum eins og sjá má í þessu fréttabréfi.
Það er ánægjulegt að við getum boðið foreldrum og gestum í skólann og það gleður okkur sérstaklega. Undanfarið hafa verið skemmtanir á sal, litla upplestrarkeppnin, söngleikurinn og einnig vorum við með skólaþing eftir að sóttvarnareglum var aflétt í lok febrúar.
Skólaþingið sem haldið var 8. mars var fyrir foreldra nemenda í 1. - 10. bekk og starfsmenn. Umræðuefni skólaþingsins voru skólareglur og heimanámsstefna Víðistaðaskóla. Þarna var gott tækifæri fyrir alla hagsmunaaðila skólans að láta rödd sína heyrast og ræða málin.
Áður voru nemendur á öllum stigum búnir að ræða sömu viðfangsefni á lýðræðisþingum á haustdögum. Þátttakendur skólaþingsins hlustuðu á kynningu á skólareglunum og heimanámsstefnunni. Eftir kynninguna unnu þátttakendur saman í hópum og voru niðurstöður settar á padlet. Þátttakendur voru almennt ánægðir með framkvæmd þingsins og umræðurnar voru skemmtilegar og upplýsandi. Í ljós kom að niðurstöður hópanna varðandi skólareglurnar og heimanámsstefnuna voru svipaðar. Margar góðar hugmyndir komu fram sem verða skoðaðar áfram en almennt voru hóparnir sáttir við skólareglurnar í heild sinni og stefnu skólans varðandi heimanám. Þar kom sérstaklega fram ánægja með hvað heimanámsstefnan býður upp á svigrúm til einstaklingsmiðunar og tekur mið af samstarfi heimilis og skóla.
Nú styttist í páskaleyfi nemenda og óskum við öllum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska.
Hrönn skólastjóri og Valgerður aðstoðarskólastjóri
Myndir frá Skólaþinginu
Skíðaferð unglingastigs
Margir nemendur prófuðu skíði eða snjóbretti í fyrsta sinn og fengu aðstoð frá góðu fólki. Björgvin Valdimarsson, sem er mikill brettasérfræðingur, tók að sér að kenna tugum krakka á snjóbretti.
Viktor Birgisson tók góðar myndir.
Gaman í snjónum
Bólið
Birkir Óli Júlíusson, formaður, og Sunna Björg Harðardóttir, gjaldkeri nemendafélagsins, hafa séð um að taka þetta rými í gegn og breyta því í alvöru samkomustað fyrir unglinga í Víðó. Þau hafa séð um að græja húsgögn, skipulag og jafnvel að mála! Þau eiga svo sannarlega hrós skilið fyrir þetta framtak.
Bólið hefur verið mjög vinsælt frá því að það opnaði. Umgengnin hefur hins vegar ekki verið nógu góð og nemendur þurfa að taka sig í þeim málum en Birkir og Sunna hafa staðið sig gríðarlega að sjá um rýmið og minnka sóðaskapinn.
Þemadagar
Við vorum svo lánsöm að fá til okkar Pollapönk til þess að setja punktinn yfir i-ið. Þeir héldu tónleika fyrir alla nemendur skólans þar sem sungið hástöfum með öllum lögum hljómsveitarinnar.
Öskudagur
Söngleikurinn Litla Hryllingsbúðin
Árlegur söngleikur Víðistaðaskóla var frumsýndur þann 3. mars síðastliðinn. Söngleikurinn í ár var Litla Hryllingsbúðin eftir Howard Ashman og Alan Menken. Söngleikurinn er samstarfsverkefni milli nemenda, foreldra, félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins og skólans enda er þetta fjáröflun fyrir útskriftarferð 10.bekkjar.
Vinnan sem fer í söngleikinn er sérstaklega aðdáunarverð þar sem margir ólíkir einstaklingar koma saman að einu markmiði og setja upp frábæran söngleik. Nemendur mæta á stífar æfingar með leikstjóra og listrænum stjórnendum í marga mánuði fyrir sýningu og sömuleiðis byrja foreldrar að vinna í sviðsmynd og öðrum undirbúning. Sviðsmyndin var ótrúlega flott í ár og mikill metnaður fór í hana. Sýningarnar gengu vel og krakkarnir voru frábærir í sínum hlutverkum. Foreldrar, starfsfólk og að sjálfsögðu krakkarnir lögðu hrikalega miklu vinnu í þetta og allir þeir komu að þessari sýningu ættu að vera stoltir af þessu afreki.
Leikstjóri: Kristinn Óli Haraldsson
Söngþjálfari: Jóhanna Ómarsdóttir
Búningahönnuður: Kristín Garðarsdóttir
Hljómsveitarstjóri: Andrés Þór Þórðarson
Danshöfundur: Rut Rebekka Hjartardóttir
Tækjastjóri: Snorri Beck Magnússon
Veistu svarið?
Eftir æsispennandi keppnir og þekkingarpróf var lið nemenda valið fyrir þetta skólaár. Birta María Aðalsteinsdóttir 10. SH, Emilía Nótt Davíðsdóttir 10. BMV og Matthildur Eva Jóhannsdóttir 10. BMV mynduðu lið nemenda fyrir skólaárið 2021-2022.
Hefðin hefur verið sú að nemendur keppi á móti kennurum í aðdraganda bæjarkeppninnar Veistu svarið? Lið kennara þetta árið var vel valið og í því voru Björgvin Valdimarsson, Stefán Helgi Stefánsson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir en keppnisdagurinn var einnig síðasti dagur Björgvins í starfi hjá okkur.
Fyrirkomulag keppninnar er svipað og í Gettu betur og í henni var að finna hraðaspurningar, bjölluspurningar, vísbendingaspurningar og þríþraut. Ekki er til bjöllukerfi í skólanum og verða keppendur að hlaupa og ná hlut á miðju sviði til að mega svara bjöllu- og vísbendingaspurningum. Lið nemenda vann stórsigur gegn liði kennara 29-21.
Hrafnhildur Helgadóttir tók góðar myndir af keppninni.
Lið Víðistaðaskóla komst hins vegar ekki í gegnum fyrstu umferð keppninnar Veistu svarið? í ár en tapaði á móti öflugu liði Áslandsskóla. Áslandsskóli er nú ríkjandi bæjarmeistari keppninnar og við óskum þeim til hamingju með árangurinn.
Stóra upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin
Áður en að keppnin hófst hafði stýrihópur á vegum Hafnarfjarðarbæjar sett í gang samkeppni meðal nemenda í bænum sem fól í sér að finna slagorð fyrir keppnina. Slagorðið sem varð fyrir valinu var "Lesum saman - Það er gaman" eftir Stefán Hrafn Egilsson, nemanda í 7.bekk Víðistaðaskóla. Einnig hefur nemendum boðist að hanna mynd fyrir boðskort nemenda en Ísabella Hrönn, nemandi í 6.bekk Áslandsskóla, hlaut þann heiður. Keppendur í Stóru upplestrarkeppninni í ár voru 18 talsins frá 9 grunnskólum Hafnarfjarðar.
Keppnin var svo sannarlega hátíðleg í ár og góðir gestir voru viðstaddir m.a. Guðni Th. Jóhannesson forseti, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstóri og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra. Skemmtiatriðin í athöfninni voru glæsileg og fengu áhorfendur að hlusta á ýmis tónlistaratriði.
Keppendur byrjuðu á því að lesa úr bók Gunnars Helgasonar, Víti í Vestmannaeyjum og var Gunnar Helgason sjálfur viðstaddur keppnina og var hann mjög ánægður með upplestur krakkanna. Nemendur lásu síðan ljóð eftir ljóðskáld keppninnar, Vilborgu Dagbjartsdóttur og að lokum lásu þeir ljóð að eigin vali.
Sigurvegari keppninnar í ár var Emil Arthúr Júlíusson, nemandi í 7.bekk í Víðistaðaskóla en í 2.sæti var Vilhjálmur Hauksson úr Setbergsskóla og í 3.sæti var Kristín Vala Björgvinsdóttir úr Engidalsskóla. Allir þeir sem tóku þátt í keppninni eru hins vegar sigurvegarar í okkar augum og við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn.
Smásagnakeppni Hafnarfjarðar
1. sæti: Skarðið eftir Inga Árnason. Smásagan Skarðið er um stelpuna Möggu, sem er fimmtán ára og býr í sveit í Borgarfirði. Einn góðan veðurdag er hún send upp í háls fyrir ofan bæinn hennar til að smala nokkrum rollum. Þessi ferð hrindir af stað atburðarás sem fær lesandann til að velta fyrir sér hvort álfar og huldufólk sé til.
3. sæti: Ljós eftir Laufeyju Pálsdóttur. Smásagan Ljós er saga um stelpu sem er föst ein inni í dimmum skógi. Stelpan er hrædd og sér enga leið út úr skóginum. Þegar hún er búin að gefa upp alla von þá birtist henni lítil vera. Þessi litla vera reynist henni vel og stelpan er ekki lengur ein í skóginum.
Litla upplestrarhátíðin og upplestur á stóru
Æfingar hafa verið nokkuð stífar fyrir Litlu upplestrarhátíðina. Það reynir á samlestur hjá nemendum. Það er eitt að lesa upphátt en annað að lesa í takt og hlusta á samnemendur sína. Eins og fyrr segir er mikil æfing að baki sem fer fram í samstarfi við heimilin. Æfingin felur í sér að huga að raddstyrk, samhæfingu og lestrarlagi sem krefst mikillar athygli.
Á meðan undirbúningi stóð var 4. bekkur í Víðistaðaskóla var fenginn til að lesa upp á Stóru upplestrarhátíðinni. Nemendur voru bæði spenntir og kvíðnir en stóðu sig virkilega vel. Þessi upplestur var góð æfing fyrir Litlu upplestrarhátíðina sem fór svo fram 5. apríl.
Litla upplestrarhátíðin sjálf gekk mjög vel og voru allir viðstaddir virkilega stoltir og ánægðir með flutning nemenda og ekki síst nemendur sjálfir sem vildu strax stíga á svið og gera þetta aftur.
Að lokinni hátíðinni var foreldrum boðið að koma inn í stofur í Pálínuboð þar sem allir foreldrar komu með eitthvað á hlaðborð.
Umhverfisráð Víðistaðaskóla
Í grænfánaskólanum Víðistaðaskóla er starfandi umhverfisráð. Um er að ræða ráð með lýðræðiskjörnum fulltrúum úr öllum árgöngum skólans.
Umhverfisráðið fundar reglulega og er megin tilgangur ráðsins að raddir nemenda fái að heyrast sem víðast.
Nemendurnir eru uppfullir af hugmyndum, sem fullorðni leiðtogi hópsins, kemur svo á framfæri til viðeigandi aðila. Á fundi nú fyrir páska kom til dæmis upp sú hugmynd að óska eftir því við páskaeggjaframleiðendur að þeir breyti og minnki umbúðirnar utan um og innan í páskaeggjunum.
Það var því sendur tölvupóstur strax eftir fundinn til páskaeggjaframleiðenda á Íslandi.
Það kom líka upp sú umræða að það þyrfti að fjölga ruslatunnum um bæinn og að það yrðu að fara að setja lífrænar tunnur við öll heimili. Það var því drifið í því að senda ábendingu á Hafnarfjarðarbæ og til allra frambjóðenda. Nú eru kosningar framundan og því upplagt að raddir ungu umhverfissinnana hljómi og pressi þannig á bætt umhverfi og betri heim. Það sem umhverfisráð vil koma á framfæri til foreldra, nemenda og allra sem tengjast Víðistaðaskóla er að:
- Við hvetjum fólk sem fer í fermingarveislur að gefa gjafir í umhverfisvænni gjafaumbúðum.
- Við hvetjum fólk til þess að kaupa minni páskaegg, því oftar en ekki er afgöngum hent í ruslið.
- Við hvetjum fólk til þess að setja klemmur eða teygjur á ruslatunnurnar heima hjá sér, svo að ruslið fjúki ekki úr þeim.
Svo hvetjum við fólk til þess að:
- Gera allt til þess að draga úr matarsóun
- Vera meðvitað hvaðan maturinn er uppruninn sem það kaupir
- Vera meðvitað um kolefnisspor matarins
- Vera meðvitað um umhverfi sitt á allan hátt
Fótboltaval
Í áfanganum hafa nemendur verið að gera ýmislegt skemmtilegt m.a. að fræðast um enska boltann í gegnum fyrirlestra, taka þátt í spurningakeppnum um fótbolta og jafnvel spilað tölvuleikinn FIFA saman. En undanfarið hafa nemendur verið að fara með honum Krissa í íþróttahúsið og einfaldlega spilað fótbolta. Nemendur eru mjög sáttir við áfangann og vonandi eru svona heilsueflandi valáfangar komnir til að vera.
UT smiðja hjá 3. og 4. bekk
Nemendur í 3-4.bekk hafa verið að læra inn á forritið Book Creator í vetur. Þar er aðaláhersla lögð á frjálsa ritun nemenda ásamt því að þau læri að finna mynd á vefnum, afrita og færa inn í skjalið. Nemendur hafa verið virkilega áhugasamir og lagt mikinn metnað í þessa vinnu. Áður en nemendur fara af stað í vinnu ræðum við hvernig bækur eru uppsettar, forsíða, baksíða, höfundur o.þ.h.. Kennari leggur mikið upp úr sjálfstæðri vinnu en er að sjálfsögðu til staðar ef þörf er á. Það virkilega gaman að sjá áhuga nemenda á þessu verkefni. Þau leggja mikinn metnað í þessa vinnu og hlekkur af rafbókinni er settur inn í námsmöppu nemenda inn á Mentor þegar þau eru búin.
Menntabúðir starfsmanna
Menntabúðir fyrir kennara í febrúar
Ut teymi Víðistaðaskóla stendur árlega fyrir menntabúðum fyrir kennara skólans. Menntabúðir byggist á jafningjafræðslu og er frábær vettvangur til að miðla þekkingu sinni og reynslu til samkennara sinna. Kynningar voru m.a. á hlaðvarpsverkefni í 7. bekk, Canva forritinu, Stop Motion Studio Pro sem hægt er að nota við hikmyndagerð, Apple Classroom, Quizlet Live.
Vettvangsferðaval
Brettafélag Hafnarfjarðar
Þann 16.mars heimsóttu nemendur Brettafélag Hafnarfjarðar og fengu kynningu á starfssemi félagsins. Félagið hefur verið starfrækt frá árinu 2012 og í dag eru um 400 ungmenni á aldrinum 5-18 sem eru iðkendur hjá félaginu. Iðkendum félagsins er hægt að skipta í fjórar deildir; hjólabretti, snjóbretti, fjallahjól og BMX-hjól.
Nemendur fengu kennslu á hjólabretti og voru mörg hver fljót að læra og að renna sér niður rampa. Allir skemmtu sér vel og voru heilir eftir heimsóknina, fyrir utan stolt kennarans sem náði að detta af brettinu og þótti nemendum það vera afar fyndið.
Kvikmyndaskólinn
Nemendur í vettvangsferðarvalinu skelltu sér síðan í Kvikmyndaskóla Íslands þann 6. apríl. Þar hittu þeir fyrst rektor skólans, þann margverðlaunaða kvikmyndargerðarmann Friðrik Þór Friðriksson, og námsstjóra skólans, Hrafnkel Stefánsson, sem vill svo til að er fyrrverandi nemandi úr Víðistaðaskóla og útskrifaðist héðan 1998.
Krakkarnir fengu kynningu frá Hrafnkeli á öllu fyrirkomulagi námsins í skólanum, skoðuðu húsnæðið og fengu loks að horfa á stuttmyndina Rose sem nemendur skólans höfðu gert. Þetta var frábær kynning og sumir voru farnir að fá hugmyndir um að kíkja þangað að loknu stúdentsprófi.
2. bekkur heimsótti Þjóðminjasafnið
Stofa er "sýning" fyrir fjölskyldur, skólahópa og alla forvitna gesti. Hún breytist eftir þörfum úr setustofu í rannsóknarstofu eða kennslustofu. Það fer eftir hópnum hvernig "ferðalagið" í stofunni þróast.
Þar má finna leggi, kjálka, bóndabæ með sínum búpeninga og búaliði, myndir og útskurðarletur til að apa eftir svo fátt eitt sé nefnt. Það sem heillaði nemendur í öðrum bekk þó allra mest var að þar eru búningar sem þau máttu máta. Það gaf þeim tækifæri til að ræða um Ísland þá og nú. Það gaf huganum myndir til að leika sér með.
Í stofunni kenndi ýmissa grasa og var gaman að velta þessum munum fyrir sér. Til hvers voru þeir notaðir og hver átti þá? Nemendur í öðrum bekk voru til fyrirmyndar og voru virkilega áhugasöm.
6. bekkur fór í Perluna
Hæfileikakeppni Miðstigs
Hæfileikakeppni miðstigs var haldin hátíðleg í síðustu viku. Keppnin í ár var rafræn en nemendur sendu inn myndbönd af hinum ýmsu hæfileikum sem þeir eru gæddir. Hæfileikar nemenda eru svo sannarlega margir og skemmti dómnefnd sér vel við að horfa á myndböndin.
Viðurkenningu fyrir bestu tæknina hlaut Eva Dís Jokumsen Heiðarsdóttir fyrir flotta teikningu. Viðurkenningu fyrir bestu útfærsluna hlaut Adam Logi Sigurdórsson fyrir teiknimynd. Ólafur Leó Waage og Gunnhildur Una Stefánsdóttir fengu viðurkenninguna besta framkoman fyrir dansatriði. Sigurvegari hæfileikakeppninar var Jóhannes Helgi Stefánsson Færseth fyrir leikna stuttmynd.
10.bekkur heimsækir Flensborg
Geðlestin
Nemendur skólans hlustuðu á áhugaverða fyrirlestra frá meðlimum Geðlestarinnar og því loknu steig á svið Emmsjé Gauti, tónlistarmaður, og tók lög með nemendum. Þetta var eflaust í fyrsta sinn sem nemendur höfðu upplifað að fara á tónleika með landsfrægum rappara kl. 8:45 að morgni en engu að síður var þetta skemmtilegt uppbrot á hefðbundnu skólastarfi og nemendur voru ánægðir og hressir.
PISA
Krakkarnir stóðu sig mjög vel og fengu mikið hrós frá starfsfólki. Þau byrjuðu morguninn á því að háma í sig snúða frá skólanum og að því loknu fóru þau í prófstofur. Prófið tók sinn tíma og nemendur svöruðu spurningum úr stærðfræði, náttúrufræði, skapandi hugsun og lesskilning ásamt spurningalista um líðan og tækjanotkun. Þegar þetta var búið voru þau alveg gjörsamlega búin á því en eiga mikið hrós skilið fyrir dugnaðinn sem þau sýndu í þessu verkefni.
Samvera á sal hjá yngsta stigi
Kynning frá VR
Nemendur fylgdust vel með og margir fóru áhugasamir til starfsmanna VR eftir kynninguna með ýmsar spurningar þar sem margir nemendur í 10.bekk eru nú þegar byrjaðir að vinna með skóla.
Skólabúðir á Laugarvatni
Frábær dvöl á Laugarvatni
Níundi bekkur Víðistaðaskóla fór dagana 28.mars - 1.apríl í ungmennabúðir á Laugarvatni en þar eru þær nú staðsettar, í stað Lauga í Sælingsdal. Ungmennabúðirnar eru fyrir löngu orðnar að rótgróinni hefð í Víðistaðaskóla og eru einn hápunkta grunnskólagöngunnar.
Líkt og venjulega fóru nærri allir nemendur 9.bekkjar, 63 krakkar, ásamt þremur kennurum, þeim Sigrúnu Ernu, Kristmundi og Stefáni Helga en þau eru umsjónarkennarar árgangsins.
Skemmst er frá því að segja að ferðin heppnaðist frábærlega. Veðrið var gott allan tímann og krakkarnir ákafir að vera úti og leika sér. Skólabúðirnar eru símalausar en það kom ekki að sök, þau höfðu svo mikið að gera: Fara í gönguferðir, skella sér í vatnið, fara í sund, taka þátt í alls kyns æfingum og leikjum og síðast en ekki síst fara á kajak. Gagaboltinn var sömuleiðis gríðarlega vinsæll.
Með Víðistaðaskóla á Laugarvatni voru þrír sveitaskólar; einn frá Laugarvatni, annar frá Minni Borg og sá þriðji frá Reykholti. Góð kynni tókust með okkar krökkum og þeirra og sumir hafa haft á orði að það væri gaman að fara í Menntaskólann á Laugarvatni og vera þar á heimavist!
Tónlistarskólinn í heimsókn
Pílukast
Pílukastfélag Hafnarfjarðar opnaði píluklúbb við byrjun árs 2021 á Reykjavíkurvegi 64 (gengið er inn bakvið húsið). Hafnarfjarðarbær hefur veitt félaginu styrk til að bjóða 8.-10. bekkjum Hafnarfjarðar í heimsókn svo krakkarnir geti spreytt sig í pílukasti.
Elstu bekkir Víðistaðaskóla eru byrjaðir að nýta sér þetta og hafa skemmt sér konunglega. Aðstaðan er algerlega frábær og einnig eru starfsmenn ólmir í að fá að skella sér þangað.
Svipmyndir úr Skólastarfinu
Ritstjórn
Anna Kristín Guðmundsdóttir
Birkir Már Viðarsson
Birna Dís Bjarnadóttir
Guðrún Björg Halldórsdóttir
Hrönn Bergþórsdóttir
Sigrún Erna Geirsdóttir
Valgerður Júlíusdóttir
Viktor Birgisson