Föstudagspóstur
1.bekkur
Vikan byrjaði hjá okkur á þriðjudegi þar sem við hittum 10.bekk á unglingasvæðinu og spiluðum við þann hóp sem fylgdist að á þemadögunum. Skemmtileg samvera með 10.bekk. Þemadagarnir gengu vel fyrir sig og voru kennarar og börn glöð með uppbrotið.
Næsta vika verður með aðeins einn uppbrotsdag, föstudag. Þá munum við halda upp á afmæli Naustaskóla. Við munu fara í skrúðgöngu og gæða okkur á köku og svo pizzu í hádegismat og gera eitthvað skemmtilegt saman á svæðinu okkar.
Góða helgi,
Elín, Jódý, Sigga, og Sunna