Vikupistillinn
Tímabilið 22. - 28. október
Heilræði vikunnar
“Frægðin er næsti bær við himnaríki, eins og allir fjölmiðlanotendur vita.”
Árni Bergmann
Punktar
- Nú biðjum við umsjónarkennara að setja niðurstöður nemenda úr lesfimiprófunum inn í Mentor, sjá leiðbeiningar hér.
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:50. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef það er veikt og sér fram á að það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
- Hvalamiðar: Nú eiga allir starfsmenn að gefa hvalamiða eftir vetrarfrí. Horfum á jákæða hegðun nemandans og gefum hvalamiða fyrir það.
Mánudagur 22. október
Vetrarfrí
Þriðjudagur 23. október
Vetrarfrí
Miðvikudagur 24. október
- Samvera yngri deildar kl. 8:20
- Kl. 9:00 fá nemendur í 2. bekk leiksýningu.
- Fundur nemendaverndarráðs kl. 13:15.
- Kvennafrídagurinn.
- Erum við búin að gefa hvalamiða í dag?
Fimmtudagur 25. október
- Kl. 15:00 fundur í fyrirlestarsalnum þar sem tillaga að teymum verða kynntar.
- Erum við búin að gefa hvalamiða í dag?
Föstudagur 26. október
- Erum við búin að gefa hvalamiða í dag?
Niðurstöður lesfimiprófa
Niðurstöður úr lesfimiprófunum núna í september eru komnar sjá myndræna niðurstöðu hér fyrir neðan.
Gott er að nýta niðurstöður einstaklinga og ræða það í námsviðtölunum í næstu viku. Með því að prenta út/sýna frá MMS sést vel hvort nemandinn er í framför eða ekki.
Mikilvægt er líka að hafa í huga að viðmiðin frá MMS eru þau viðmið sem nemandi á að vera búinn að ná næsta vor 2019.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Starfsmannamál
Bleikt á bókasafninu
Það fer ekki milli mála hjá þeim sem koma við á bókasafninu að það er bleikur október.
Nýjar bækur
Ekki gleyma að kíkja á standinn með nýjum bókum.
Matreiðslu-námskeið
Þessa vikuna hafa eldri borgarar verið á matreiðslunámskeiði í heimilisfræðistofunni okkar.
Tiltekt vikunnar
Við ætlum að biðja nemendur í 3. MI og Margréti Ýr umsjónarkennara þeirra að sjá um tiltekt á skólalóðinni þessa vikuna.
Nýir nemendur
Systkinin Duarte Afonso Cordeiro Alvim og Lara Trindade De Sousa koma úr Austurbæjarskóla. Þau eru frá Portúgal en Duarte Afonso fer í 8. GRB og Lara Trindade fer í 4. NBS. Við bjóðum þau velkomin og tökum vel á móti þeim.
Á döfinni
- Nemendur í 6. bekk verða Logos skimaðir í október eða nóvember.
- Þorgrímur Þráinsson kemur í heimsókn til nemenda í 10. bekk þann 30. október.
- 5., 6., 7. og 8. nóvember eru vinadagar og þá höldum við Fjölgreindaleika.
- 9. nóvember er skipulagsdagur.
- 16. nóvember er dagur íslenskrar tungu.
- 20. nóvember er dagur mannréttinda barna
Námslotur í InfoMentor
https://www.youtube.com/watch?v=jvS6zqJ86W4
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200