Skóladagur GRV í Barnaskólanum
18. apríl kl. 17:00-19:30
Skóladagurinn
Skóladagur GRV - Barnaskóla verður miðvikudaginn 18. apríl frá kl. 17:00—19:30. Starfsfólk og nemendur skólans vonast eftir því að þátttaka verði mikil og góð. Fjölbreytt dagskrá verður í boði sem nemendur og gestir geta tekið þátt í. Eins og undanfarin ár verða nemendur 9. bekkja með kaffihlaðborð og rennur andvirðið í ferðasjóð nemenda. Þrautir og leikir verða víðs vegar um skólann.
Hvað er í boði ?
Anddyri:
Nemendur í 10. bekk sjá um:
- Grímugerð
- Andlitsmálingu
- Pílukast
- "Minute to win it" þrautir
- Og margt fleira skemmtilegt
Skemmtilegar þrautir í anddyri
Skemmtilegar þrautir í anddyri
Skemmtilegar þrautir í anddyri
Kaffihúsastemning í salnum
Kaffisala fyrir ferðasjóð 9. bekkja
Verð:
1000 kr. (Kaffi innifalið í verði)
Frítt fyrir 6 ára og yngri
Gos 200 kr.
Annað skemmtilegt í boði
- 10. bekkjastofur á efstu hæð 32-35: Ýmislegt skemmtilegt til sýnis þar, verkefni nemenda. Árshátíðarsýning ofl.
- Stofa 32: Teflt við nemendur kl. 17:15, 17:45 og 18:15
- Námsver á efstu hæð: Tafl, ratleikur, púsl, þrautir ofl.
- Stofa 15: Ýmsar tilraunir og vísindi
- Saumastofa: Sýning á verkum nemenda
- Stofa 14: Púsl, þythokki, fótboltaspil ofl. Grínmyndataka
- Óvissustofa/draugastofa : Efsta hæð í gamla skólanum
- Stofur 16 ,17 og 26: Sýningar á verkefnum nemenda í 8. bekk
- Stofur 27, 36 og 37: Sýningar á verkefnum nemenda í 9. bekk
- Bekkjarstofur á miðstigi: Sýningar á verkefnum nemenda
- Bókasafnið: Íþróttakennarar með skemmtilega leiki
Ýmislegt í gangi í hverri stofu :)