DJÚPAVOGSSKÓLI
HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA
NÓVEMBER OG FÖRUM AÐ HUGA AÐ DESEMBER
NÓVEMBER
- 20.nóvember - Á sunnudaginn er Dagur mennréttinda barna.
- 25.nóvember - Sameiginlegur skipulagsdagur starfsmanna í Múlaþingi.
DESEMBER
- 01.desember - Fullveldisdagurinn og gestadagur
- 20.desember - Stofujól
NÆSTA VIKA
Mánudagur 21.nóvember
- Hefjum nýja viku með bros á vör.
- Þrír nemendur koma í starfskynningu í skólanum eftir hádegi.
Þriðjudagur 22.nóvember
- Fagfundur 14:20 - 15:50
Miðvikudagur 23.nóvember
- Góður dagur til að staldra við og njóta.
Fimmtudagur 24.nóvember
- 14:20 - 15:50 Teymisfundir.
- Nemendur fara í langt helgarfrí.
Föstudagur 25.nóvember - í dag eiga nemendur frí.
- Starfsfólk Djúpavogsskóla tekur þátt í sameiginlegum starfsdegi leik- og grunnskóla í Múlaþingi.
MATSEÐILL NÆSTU VIKU
GESTAGANGUR OG SMÁSAGNAGERÐ MEÐ BERGRÚNU ÍRISI Á DEGI ÍSLENSKRAR TUNGU
Foreldrafélagið nýtti ferðina og bauð yngstastigi upp á samskonar smiðjur, vel gert hjá þeim.
Báðir þessir viðburðir voru mjög vel heppnaðir og nemendur keppust við að skrifa sínar sögur. Þetta passaði mjög vel inn í aðra skemmtilega vinnu hjá okkur á þessum degi.
Þessi dagur var líka gestadagur og mikið erum við þakklát fyrir hvað margir gestir komu í heimsókn.
Fyrir utan gesti sem nemendur buðu með sér þá fengum við líka gesti úr stjórnsýslunni í Múlaþingi og Lögreglustjórinn á Austurlandi kom líka í heimsókn.
Stefanía Malen, grunnskólafulltrúi í Múlaþingi var með viðveru í Djúpavogsskóla á þessum degi. Við nýttum okkur það vel og fyrir utan að leiðbeina Obbu með ýmis verkefni þá fundaði hún með mið- og unglingastigi og fór í alla bekki og hitti nemendur.
Þorri var sáttur með smiðjuna og fékk að kaupa sínar uppáhalds bækur.
SKÓLABÓKASAFN
Fyrir utan að aðgengi er betra fyrir nemendur og starfsfólk þá er það mjög huggulegt að það fyrsta sem mætir manni þegar komið er inn í skólann, eru bækur.
Enn sem komið er þarf að handskrá þær bækur sem nemendur fá að láni en stefnan er að nemendur og starfsfólk geti skannað inn eintök í sjálfsafgreiðslukerfi en það kerfi er ekki tilbúið í nýju bókasafns-skráningarkerfinu sem tekið var upp í vor í öllum bókasöfnum á landinu.
Hér er hægt að leita í safnkosti í okkar safni.
https://djup.leitir.is/discovery/search?vid=354ILC_ALM:01097
Þessi leikur er alltaf jafn skemmtilegur, sama á hvaða aldri maður er :)
NEMENDUR Í STARFSKYNNINGU Í TRYGGVABÚÐ
Þeir Sævar og Matti fóru í starfskynningu til Möggu í Tryggvabúð í vikunni. Þeirra fyrsta verk var að brjóta saman þvott. Þeir fór létt með það og alveg augljóst að þeir kunnu það fyrir :)
Í næstu viku verða þrír nemendur í starfskynningu í skólanum en þeir ætla að kynna sér kennslu á yngstastigi og hvaða verkefni eru helst á borði skólastjóra.
AUGLÝSING AF HEIMASÍÐU MÚLAÞINGS
Hér er hægt að skoða þetta betur og skrá þátttöku:
https://www.mulathing.is/is/frettir/systkinasmidja-a-egilsstodum
SKINKUHORN ÚR HEIMILISFRÆÐI
2½ dl volgt vatn
2 msk olía
4 tsk þurrger
2 tsk sykur
1 tsk salt
6 dl hveiti
Sesamfræ
Rifinn ostur
Fylling
Egg + mjólk til að pensla með
· Stillið ofninn á 200°C.
· Setjið þurrger, volgt vatn og sykur í glas og látið standa í ca 5mín eða þangað til farið er að freyða.
· Mælið hveiti, salti og olíu í skál og blandið vel saman.
· Setjið gerblönduna úti og hnoðið vel saman, amk. í 6mín, deigið á að vera pínu klístrað en bætið við hveiti eftir þörfum.
· Fletjið deigið út eins og pizzu.
· Skerið með pizzaskera í 8 þríhyrninga.
· Setjið fyllingu í breiðari endann á hverjum þríhyrning og smá ost yfir.
· Rúllið deiginu frá breiðari endanum þegar þið lokið hornunum, passa að loka vel svo gúmmulaðið leki ekki úr.
· Raða skinkuhornunum á bökunarplötu og látið lyfta sér í ca 15 mín.
· Pískið egg og mjólk saman og penslið skinkuhornin, stráið sesamfræjum yfir.
· Bakið í 10-12 mín.
BESTU KVEÐJUR OG GÓÐA HELGI.
STARFSFÓLK DJÚPAVOGSSKÓLA.