DJÚPAVOGSSKÓLI
FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI
MARS 2021
27. mars - 05. apríl páskafrí
NÆSTA VIKA
- Sviðsmynd sett upp á hótelinu
- Stefnum á fyrstu æfingu á hótelinu eftir hádegi
ÞRIÐJUDAGUR
- Rennsli
- 14:40 Árshátíðar-skipulagsfundur starfsmanna
MIÐVIKUDAGUR
- Opin æfing fyrir leikskólanemendur fyrir hádegi
- General-prufa eftir hádegi
FIMMTUDAGUR - SÝNINGARDAGUR
- 13:00 Fyrri sýning (eldri nemendur og 1.-2.bekkur)
- 17:00 Seinni sýning (eldri nemendur og 3.-5.bekkur)
FÖSTUDAGUR - FRÁGANGUR
- Allir hjálpast að við að ganga frá eftir árshátíð
- Stöðufundur, hvað gekk vel og hvað viljum við bæta fyrir næsta ár.
- Allir fara hressir í páskafrí
MATSEÐILL-BREYTINGAR
SAMRÆMD PRÓF - NEMENDUR STÓÐU SIG FRÁBÆRLEGA
Eins og fram kom í síðustu vikufréttum þá náðu allir nemendur í 9.bekk í Djúpavogsskóla að klára samræmt próf í íslensku. Nemendur fóru heim með niðurstöður í dag og óhætt að segja að þeir hafi staðið sig frábærlega.
Innilega til hamingju kæru nemendur, einstaklega vel gert hjá ykkur.
Af öðrum samræmdum prófum er það helst að frétta að nemendur hafa nú val um það hvort að þeir taki stærðfræði og enskuprófið. Nú þurfa nemendur og foreldrar að ræða saman og láta umsjónarkennara vita hvað þeir vilja gera. Hægt er að taka prófið til 30.apríl og því er hægt að klára árshátíð, fara í páskafrí og taka svo prófin ef það verður niðurstaðan.
KENNSLUFRÆÐINGAR Í HEIMSÓKN
Þau fóru í allar árshátíðarsmiðjur og fylgdust með kennslunni og í lok dags þá hittu þau öll teymin og gáfu okkur góð ráð. Það var ekki annað að heyra en að þau væru ánægð með okkur og þau skref sem við höfum tekið í teymiskennslu í vetur.
Ingvar heldur úti umbótaspjalli um skólamál á FB og setti þar inn mynd af veggspjaldinu okkar sem við unnum í sambandi við ytra-matið. Færslan fékk mikla athygli og margir kennarar vilja nýta sé veggspjaldið.
Veggspjalið er komið inn á heimasíðuna þar sem hægt er að prenta það út.
https://www.djupavogsskoli.is/post/ég-bæti-skólastarfið
Við þökkum Ingvari og Lilju fyrir góð ráð.
HEIMASÍÐAN OG HEIMASÍÐUSTJÓRI
Signý bjó heimasíðuna til en nú ætlar Hanna að taka að sér að halda utan um síðuna og setja inn fréttir og upplýsingar. Einnig verður hægt að nálgast vikufréttir þar.
ÚTIDAGUR Á MIÐSTIGI
Lagt af stað frá íþróttahúsinu.
Inn við rétt.
Brugðið á leik.
ÁRSHÁTÍÐAR SKIPULAG
En skipulagið er í þessa átt:
- Mánudagur verður dagurinn sem sviðsmenn setja upp sviðið og kynna sér tölvu- og ljósamál. Vonandi nær Fanný æfingu eftir hádegismat.
- Á þriðjudegi verður fyrsta æfing á sviði.
- Á miðvikudegi koma nemendur af leikskólanum og fylgjast með æfingu og svo verður generalprufa.
- Á fimmtudaginn er sýningardagur...þá fyrst flækist skipulagið en með frábærri samvinnu við starfsfólk á hótelinu þá finnum við leið með það. Það verður erfitt að koma venjulegum matartíma fyrir þegar við verðum búin að gera salinn tilbúinn fyrir sýningu. En allir fá að borða og við munum upplýsa með hvaða hætti við höfum þetta.
- Öll hjálp frá foreldrum er vel þegin. Við erum nú þegar komin með tæknimann en Biggi Th. ætlar að hjálpa okkur með ljós og hljóð. Endilega hafið samband ef þið hafið tækifæri til að taka þátt.
Hér má sjá myndir og myndbönd frá ótrúlega skemmtilegum árshátíðar undirbúningi.
Það er blómlegt í Latabæ.
Æfing á Helgafelli.
Samlestur hjá Sollum.
Íþróttaálfurinn á loftbelg.
Meira af loftbelgnum.
Yngstu nemendur gera blómagarð.
Samlestur á miðstigi.
Forsetabíll.
Aðeins verið að hvíla sig.
Bæjarmyndin að skýrast.
Farartæki íþróttaálfsins.
Stýran fékk að kenna myndmennt í dag.
Svona dagur í dag.
FRÁGANGUR Á FÖSTUDEGI
Við ætlum líka að hittast og ræða hvað gekk vel hjá okkur og hverju við viljum breyta.
Svo ætlum við að fara sátt í páskafrí.
ER ÞETTA FALLEGASTA ÚTISVIÐ Í HEIMI?
LEIKARABEKKURINN
DANSAÐ OG SUNGIÐ Í SÓLINNI
Nú er að hækka og njóta.
YNGRI OG ELDRI SJÓÐA ATRIÐIN SAMAN
Hér þarf líka að hækka og njóta.
MYND VIKUNNAR
Þær leystu þetta allt :)
Bestu kveðjur og góða helgi.
Starfsfólk Djúpavogsskóla
DJÚPAVOGSSKÓLI
Email: skolastjori.djupivogur@mulathing.is
Website: https://www.djupavogsskoli.is
Location: Varda 6, Djúpivogur, Iceland
Phone: 4708710