Föstudagspóstur
vikan 17.- 21. febrúar
Sæl öll,
Vikan hefur gengið vel hjá okkur hér á unglingadeildinni. Enn eru veikindi á starfsfólki og nemendum og því aðeins meira rót en vanalega.
9. bekkur fór á frábæra kynningu hjá Verkmenntaskólanum í gær og margir sem komu til baka með betri sýn á skólann.
Í næstu viku fer af stað peysusala sem er fjáröflun fyrir skólaferðalagið hjá 10. bekk og munum við kynna hana betur í næstu viku.
Næsta vika verður extra stutt þar sem að það er vetrarfrí á miðvikudag, fimmtudag og föstudag og því gott að nýta tímann vel og klára það sem eftir er fyrir vetrarfríið.
Á mánudaginn er bolludagur og má þá koma með bollur í nesti þann daginn!
Eigið góða helgi
Unglingadeildarteymið