Vikupistillinn
Tímabilið 18. - 24. mars 2019
Heilræði vikunnar
“Ungum er það allra bezt
að óttast guð sinn herra;
þeim mun vizkan veitast mest
og virðing aldrei þverra.” Hallgrímur Pétursson
Punktar
- Muna að skila vikuáætlunum inn á sameign í möppuna „Áætlanir/Vikuáætlanir“.
- Leikstjórar í miðdeild, sjá skipulag vorannar.
- Leikstjórar í 3. og 4. bekk, sjá skipulag vorannar
- Á næstu dögum hefja stjórnendur innlit sitt í kennslustundir. Þeir munu boða komu sína með smá fyrirvara og senda kennurum tölvupóst.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið - hér má nálgast nemendaviðtalsblað fyrir sérgreinakennara. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu nemandans.
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagur 18. mars
- 100 - miðaleikurinn hefst þann 18. mars og lýkur þann 22. mars. Tilgangur leiksins er að hvetja nemendur til að fara eftir SMT skólareglunum á öllum svæðum skólans. Skólastjóri dregur út að morgni þá starfsmenn sem fá ofurhvalamiða þeir eiga svo að velja þá nemendur sem fá ofurhvalamiða þann daginn. Athuga að reyna að dreifa miðunum sem mest. Sjá nánari útlistun á leiknum sjálfum.
- Verið - elsta deild - Vestó.
Þriðjudagurinn 19. mars
- Samvera sem nemendur í 7. bekk sjá um.
- Leikfélag Flensborgarskólans kemur og kynnir söngleikinn sinn Systra Akt fyrir nemendum elstu deildar í frímínútunum kl. 9:40 - 10:00.
- Heimanámsaðstoð Rauða krossins er á bókasafninu kl. 13:30.
- Á fundatíma eru deildarfundir.
Miðvikudagurinn 20. mars
- Samvera hjá yngstu deild sem nemendur í 1. AUS sjá um.
- Fundur með almennum starfsmönnum kl. 10:25.
- Nemendur í 4. og 5. bekk fara á List fyrir alla í Bæjarbíói. Djákninn á Myrká. Sem hér segir:
> 4. bekkir mæta við glerið en farið er með rútu kl. 09:00 á leiksýninguna sem hefst kl. 09:30.
> 5. bekkir mæta við glerið en farið er með rútu kl. 12:40 á leiksýninguna sem hefst kl. 13:00. - Nemendur í valgreininni Púl er cool fer í Bjarkarsalinn ásamt Hilmari Trausta kl. 13:00 - 14:00.
- Fundur nemendaverndarráðs kl. 13:00.
- Verið - miðdeild -Pizza og bíó.
- Verið - elsta deild - Rocket Leauge mót.
Fimmtudagurinn 21. mars
- Kl. 14:00 - 15:30 er stærðfræðikeppni grunnskólanna í Hafnarfirði haldin í Flensborgarskólanum. Keppnin er ætluð fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.
- Á fundartíma eru teymisfundir.
Föstudaginn 22. mars
- Fundur hjá eineltisteyminu kl. 13:30.
- Verið - miðdeild - Lokað.
- Verið - elsta deild - Samfestingurinn.
- Laugardagurinn 23. mars - Söngkeppni Samfés & borðtennis, pool og fótboltamót Samfés.
Nýir nemendur
Fréttir frá Bjargi
Sham Kahel Moutaz 7. SHS. Hún er Sýrlendingur en alin upp í Dubai.
Systkinin Ismet 7. BJG, Ebru í 2. RG og Emina 8. MK Iseinovsi koma frá Makedóníu.
Tvíburarnir Muhammet og Ayse Kaya fara í 8. bekk og koma frá Tyrklandi. Ekki búið að ákveða í hvaða bekk þau verða skráð.
Tiltekt á skólalóðinni
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Afmælisdagar í mars
Guðrún Árný á afmæli 23. mars og Nína þann 27. mars. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á döfinni
- Kennaraneminn Tinna Líf Baldvinsdóttir sem er á 3. ári, verður hjá Ingu Völu og 3. IVJ frá lok janúar til loka mars.
- Forinnritun nýnema sem eru að útskrifast úr 10.bekk er 8. mars – 13. apríl.
Þann 25. mars er fræðslufundur sem fer fram í Álfhólsskóla þar sem grunnskólakennarar kynna skólaheimsóknir sínar í skandinavíska grunnskóla. Þess má geta að Margrét Ýr mun halda erindi á þessum fundi.
Þriðjudaginn 26. mars er fundur hjá leikstjórum kl. 10:00 í stofu 36.
Þann 26. mars er boðsundskeppni grunnskólanna í Laugardalslaug.
Þann 26. mars kl. 12:40 fá nemendur í 10. bekk fræðslu frá Fjármálaviti.
Nemendur í 10. bekk fara á Skólaþing, 10. SB þann 2. apríl og 10. GB þann 5. apríl. Sjá tilfærslur á kennslu fyrir Grétar, Sigríði og Gunni.
Lokahátíð stóru upplestarkeppninnar er í Hafnarborg kl. 17 þann 2. apríl.
Nemendur í 8. bekk verða LOGOS skimaðir í apríl/maí.
Þann 24. apríl syngja nemendur í 3. bekk inn sumarið á Björtum dögum á Thorsplani.
Nemendur í 10. bekk fara til Danmerkur þann 29. apríl til 5. maí.
3. IVJ hefur unnið með hvali
Frá samveru hjá 6. bekk
Hæfileikakeppni miðdeildar
Námskeið á vegum Fræðslu- og frístundasviðs
- UT menntabúðir - jafningjafræðsla - samræða - tengslanet. Verður haldið í Víðistaðaskóla mánudaginn 11. mars kl. 14:30 - 16:00.
- Google Classroom fyrir lengra komna - Vinnustofa
-
Námslotur í InfoMentor
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200