Bundið áfangaval og valáfangar
VOR 2024
MUNIÐ AÐ HUGA AÐ UNDANFÖRUM!
TAKIÐ FLEIRI 3. ÞREPS ÁFANGA
ÍÞRÓTTASVIÐ (ÍÞRÓTT-3HG05)
Undanfari: Nauðsynlegt að vera skráður á íþróttasvið
Íþróttasviðsáfangi - áhersla á hugarfar og gildi í íþróttum
*Áfanginn er eingöngu kenndur í dagskóla
Bókfærsla (BÓKF2BF05)
EFNAFRÆÐI - EFNAJAFNVÆGI (EFNA3EJ05)
Undanfari: EFNA2AE05
Í þessum framhaldsáfanga í efnafræði verður byggt ofan á grunnatriði almennrar efnafræði. Helstu efnisatriði eru orka í efnahvörfum, virkjunarorka og hvarfhraði, efnajafnvægi, oxun-afoxun, hálfhvörf, oxunartölur, sýrur, basar og pH-gildi.
EÐLISFRÆÐI - RAFMAGN OG SEGULSVIÐ (EÐLI3RS05)
Undanfari: EÐLI3SB05
Í þessum áfanga er farið yfir grunnatriði í tengslum við rafsegulfræði. Efnisatriðin eru rafhleðsla og rafsvið, rafspenna, þéttar og geymsla raforku, rafstraumur og lögmál Ohms, rakstraumsrásir og lögmál Kirchhoffs, segulmagn, span og lögmál Faradays og rafsegulbylgjur. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
TÖLVUNARFRÆÐI - HLUTBUNDIN HUGBÚNAÐARGERÐ (TÖLF3HH05)
Undanfari: TÖLF2TF05
Í áfanganum fá nemendur æfingu í hlutbundinni forritun og einfaldri leikjaforritun í Python og Arcade / PyGame. Farið er yfir mismunandi ferli við hugbúnaðargerð. Unnið verður jöfnum höndum með textabundin og myndræn notendaskil. Helstu efnisatriði: klasar og hlutir, eiginleikar, smiðir private – public, nafnasvæði, aðferðir, erfðir, viðmót, hljóð, myndir, kvikar, leit, fylki, pallaleikir, röðun, frávik, skrár, sjálfkvaðning o.fl.
ENSKA - FAGORÐAFORÐI OG FERÐAMÁL (ENSK3FO05)
Undanfari: ENSK3HO05
Nemendur þjálfast í að tileinka sér aukinn orðaforða vísinda og fræða, verða læsir á flóknari texta en áður, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða.
ÍSLENSKA - SKAPANDI SKRIF (ÍSLE2SS05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: 10 einingar í íslensku
Í þessum áfanga er viðfangsefnið skapandi skrif. Unnið er að því að auka bókmenntalegt læsi og sköpunargáfu með það að markmiði að koma afurð sinni á framfæri.
ÍSLENSKA - SKÁLDSÖGUR (ÍSLE3SK05)
Undanfari: ÍSLE2MG05
Í áfanganum kynnast nemendur íslenskum skáldsögum. Þeir fá einnig þjálfun í greiningu þeirra og lesa jafnframt ýmsar fræðigreinar um bókmenntir. Nemendur gera einnig grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega.
FAB LAB OG NÝSKÖPUN (NÝSK1FA05)
Undanfari: Enginn
Farið er almennt yfir búnað í Fab Lab smiðjunni og þá möguleika sem felast í notkun hennar. Farið er yfir notkun á Inkscape tvívíddar vektor hugbúnaði. Kennt hvernig teikna á upp hluti, breyta og flytja á mismunandi skráarsnið. Kennt hvernig á að breyta raster myndum í vektor myndir. Farið er yfir grunnatriði í notkun á teikniforritinu Inkschape, þrívíddarforritinum Google sketchup og Blender og hvernig er hægt að nýta sér það til ýmissa verkefna. Farið er yfir grunnatriði í notkun á laserskurðartæki, vinylskera og tölvustýrðum fræsara. Unnið er með sköpunarkraft nemenda og samvinnu.
*Áfanginn er eingöngu kenndur í dagskóla
MARGMIÐLUN (MARG2MT05)
Undanfari: UPPT1UV05
Í áfanganum geta nemendur valið að vinna með þann miðil (vídeó, hljóð, stafrænar ljósmyndir, verk fyrir vef) sem þeir helst kjósa að kynnast betur. Ætlast er til að nemendur séu á þessu stigi tilbúnir til að móta sín verkefni sjálfir en fái leiðbeiningar kennara varðandi tæknileg atriði eftir þörfum til að ná fram þeirri tilfinningu eða sýn sem nemendur leita eftir. Mikilvægt er að nemandi velji sér viðfangsefni út frá áhugasviði sínu en með áherslu á listræna framsetningu. Markmiðið er að nemendur dýpki skilning sinn og reynslu á þeim miðli sem þeir velja s.s. ljósmyndun, stafrænni ljósmyndun eða myndbandi og geti nýtt sér þessa þekkingu við framsetningu verka og eigin kynningu. Það er mikilvægt að nemandi leggi fram handrit áður en hafist er handa við gerð myndbands. Í myndbandsferlinu kynnast nemendur tímatengdum þáttum eins og klippiforritum og hljóðvinnslu. Í tölvuhluta áfangans fá nemendur tækifæri til að vinna sjálfstætt út frá áhugasviði sínu. Nemendur geta einnig dýpkað skilning sinn á vefsíðugerð þar sem vefumsjónarkerfið Wordpress er skoðað með það að markmiði að nemendur hanni sinn eigin vef.
STJÓRNMÁLAFRÆÐI (FÉLA2ST05)
VALÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL
Undanfari: FÉLV1IF05
Helstu hugtök stjórnmálafræðinnar kynnt. Nemandinn lærir um grundvallarstjórnmálastefnur 19.aldar sem áttu eftir að móta flokkakerfi stjórnmála vestrænna ríkja, þ.m.t. Ísland. Farið er yfir helstu einkenni íslenskra stjórnmálaflokka og fjallað um hugmyndafræði flokkanna í alþjóðlegu samhengi. Íslenska valdkerfið skoðað, þrískipting ríkisvaldsins, stjórnarskráin og samspil helstu valdþátta. Kynntar verða kenningar um lýðræði, stjórnkerfi, kosningahegðun, mismunandi kjördæmaskipan og flokkaskipulag. Gerð verður grein fyrir alþjóðlegri samvinnu ríkja eftir síðari heimsstyrjöld, m.a. verður aðdraganda og þróun Evrópusambandsins lýst, uppbygging og stjórnkerfi þess og verður leitast við að varpa ljósi á umræðu og stöðu í alþjóðamálum í dag. Áhersla verður lögð á að fjalla um málefni sem efst eru á baugi í stjórnmálum, efnahagsmálum og félagsmálum og tengja við málefni sem nemendur hafa sérstakan áhuga á.ÞROSKASÁLFRÆÐI (SÁLF3ÞR05)
Undanfari: SÁLF2IS05
Teknar verða fyrir helstu kenningar, viðfangsefni og rannsóknaraðferðir þroskasálfræðinnar. Nemendur læra um þroska mannsins frá frjóvgun og fram á fullorðinsár, einkum líkamsþroska, vitsmunaþroska, persónuleikaþroska og tilfinningaþroska. Byggt er á því sem nemendur hafa áður lært um sögu og sjónarmið sálfræðinnar, rannsóknaraðferðir og nám. Rætt verður um helstu álitamál þroskasálfræðinnar, svo sem erfðir og umhverfi, og stigskiptan og samfelldan þroska. Skoðuð verða mótunaráhrif fjölskyldunnar, auk frávikshegðunar og ýmsan vanda barna og unglinga. Nemendur fá þjálfun í að lesa rannsóknarskýrslu í þroskasálfræði.
ÍÞRÓTTIR - HREYFING OG HEILSURÆKT (ÍÞRÓ1HH01)
Undanfari: 4 einingar í íþróttum
Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.
ÍÞRÓTTIR - HREYFING OG HEILSURÆKT (ÍÞRÓ1HU02)
Undanfari: 4 einingar í íþróttum
Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.
ÍÞRÓTTIR - SÉRHÆFING Í ÍÞRÓTTAGREIN (ÍÞRÓ1SÉ01)
ALMENNUR KJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Áfangi ætlaður nemendum sem leggja stund á íþróttagreinar en eru ekki nemendur á íþróttasviði.
Þjálfun, heilsa og vellíðan (ÍÞRÓ1ÞF05)
LISTIR OG MENNING (LIME2LM05)
ALMENNUR KJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: HUGN1HN05
Markmið áfangans er að nemandinn geri sér grein fyrir eðli þeirra þátta sem mótað hafa listsköpun mannsins í gegnum tíðina. Áfanganum er skipt upp í sex lotur þar sem nemendur kynnast og vinna heildrænt með menningarsamhengið á ákveðnum stað á ákveðnum tíma. Þeir skoða alla þætti listalífsins, myndlist, handverk, hönnun, tónlist, dans og leiklist, hvern í samhengi við annan og við félagslegt og heimspekilegt umhverfi. Vinna í áfanganum fer að mestu fram í hópum þar sem hver hópur tekur fyrir ákveðna þætti menningarinnar, leitar heimilda, vinnur úr þeim og kynnir að lokum fyrir öðrum nemendum. Áfanginn kallar á kennsluhætti þar sem nemendur eru virkir og sjálfstæðir í þekkingarleit.
LÍFFRÆÐI - INNGANGUR (LÍFF2LE05)
Undanfari: NÁTV1IF05
Farið verður í grunnatriði líf- og lífeðlisfræði. Flokkar líffræðinnar og grunnkenningar ásamt tengslum við aðrar fræðigreinar eru kynntar og aðferðum vísindanna við öflun þekkingar lýst. Flokkun lífheimsins og fjölbreytileiki lífvera skýrður með dæmum. Rifjaðir eru upp helstu flokkar lífrænna efna ásamt byggingu og starfsemi fruma. Byggingu og starfsemi helstu vefja dýra og plantna er lýst ásamt líffærum og líffærakerfum mannsins. Einstök líffærakerfi eru borin saman hjá mismunandi lífverum. Fjallað er um næringarnám hjá frumbjarga og ófrumbjarga lífverum. Með áherslu á spendýr er gerð grein fyrir meltingu, öndun, efnaflutning, úrgangslosun, ónæmissvörun, boðflutning, stjórnstöðvum í heila, hreyfingu, stjórn efnaskipta, skynjun, æxlun og fósturþroska. Því næst verður farið yfir skipulag erfðaefnisins, grundvallaratriði erfða, arfgengi eingena- og fjölgenaeiginleika ásamt dæmum og yfirliti um notkun erfðatæknilegra aðferða. Um leið og fjallað er um heilbrigða starfsemi lífvera er munur á starfsemi í hvíld og undir álagi kannaður ásamt dæmum um algeng frávik á starfseminni.
ERFÐAFRÆÐI (LÍFF3EF05)
VALÁFANGI
Undanfari: LÍFF2LE05
Í áfanganum, sem er valáfangi í erfðafræði fyrir náttúruvísindabraut, er gerð grein fyrir sögu erfðafræðinnar ásamt grunnþáttum frumu-, sameinda- og stofnerfðafræði. Fjallað verður um Mendelskar og fjölgena erfðir og aðferðir við rannsókn erfðasjúkdóma. Leitast verður við að kynna nýjustu niðurstöður slíkra rannsókna ásamt aðferðafræði og nýtingu erfða- og líftækni.
FISKALÍFFRÆÐI (LÍFF3FI05)
VALÁFANGI
Undanfari: LÍFF2LE05
Í áfanganum er líffræði fiska skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Þróunarsaga þeirra er kynnt í samhengi við aðlögun þeirra að fjölbreyttum umhverfisaðstæðum með áherslu á líkamsbyggingu, lögun og hreyfingu, blóðrás, öndun, seltujafnvægi, skynjun, fæðuöflun, meltingarfæri, æxlun og atferli. Fjallað verður um stofna og stofngerðir og fjölbreytileika innan fiskasamfélaga. Fjallað verður um helstu íslensku fisktegundir bæði nytjategundir og aðrar tegundir í vötnum, sjó og ám. Þróun fiskeldis í víðu samhengi kynnt. Verkleg kennsla verður fjölbreytt og byggir á samstarfi við vísindasamfélagið og sjávarútvegsfyrirtæki í nærumhverfinu.
*Áfanginn er eingöngu kenndur í dagskóla
KYNÞÁTTAHYGGJA NASISTA Á 20. ÖLD OG HELFÖRIN (SAGA3KH5)
Undanfari: SAGA2FR05
Hugmyndafræði nasista og mótun þýsks samfélags í kjölfar hennar. Kynþáttahyggja nasista skoðuð, saga gyðingahaturs og ofsókna sem enda með tilraun til útrýmingar í síðari heimsstyrjöldinni verður tekin til athugunar ásamt margháttuðum afleiðingum hennar. Afleiðingar kynþáttahyggju nasista gagnvart öðrum hópum verða einnig skoðaðar.
MYNDLIST - FORMFRÆÐI OG FJARVÍDD (MYNL2FF05)
Undanfari: SJÓN1LF05
Áfanginn miðar að því að nemandinn efli næmi sitt fyrir fjarvídd og myndbyggingu á tvívíðum fleti og dýpki skilning á grundvallaratriðum myndbyggingar, formfræði og hönnunar. Í áfanganum er skynjun á formum í umhverfinu efld og þrívíð tilfinning skerpt. Nemandinn gerir tilraunir með form, línur, fleti og áferð til að rannsaka ólíka myndbyggingu og læra undurstöðuatriði í fjarvíddarteikningu þar sem umhverfið er skoðað og útfært í fjarvídd. Áhersla lögð á að nemandinn prófi og kynnist mismunandi miðlum í vinnslu myndverka.
NÆRINGAFRÆÐI (NÆRI2GR05)
Undanfari: Enginn
Nemendur kynnast áhrifum næringar og mataræðis á líðan og heilsu einstaklinga og þekki samspil næringar og hreyfingar. Kynntar eru ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um mataræði og næringarefni. Skoðað er hvað liggur til grundvallar þeim ráðleggingum og hvaða ávinning hægt er að ná með því að fylgja þeim. Í áfanganum er farið í orkuþörf og næringarefnaþörf líkamans og ráðlagða dagskammta. Einnig er fjallað er um hreyfingu, holdafar og meltingu. Farið er í mataræði og fjallað um máltíðaskipan, skammtastærðir, fjölbreytni, fæðuflokka og mikilvægi hvers fæðuflokks. Næring er skoðuð m.a. orkuefnin, vítamín, steinefni og önnur efni.
SÁLFRÆÐI - INNGANGUR (SÁLF2IS05)
Undanfari: FÉLV1IF05
Áfanginn er byrjunaráfangi í sálfræði. Fræðigreinin sálfræði er kynnt fyrir nemendum, upphaf hennar og þróun. Helstu kenningar og fræðimenn sálfræðinnar eru skoðaðar. Rannsóknaraðferðir sem notaðar eru í sálfræði eru kynntar fyrir nemendum og þeir vinna verkefni þar sem þeir spreyta sig á vísindalegum vinnubrögðum sálfræðinnar. Grunnhugtök og sálfræðistefnur eru kynntar og sérstaklega er komið inn á námssálarfræðina og nemendur læra um mismunandi tegundir náms og minnisaðferðir. Sérstaklega er fjallað um samspil á milli hugsunar, hegðunar og tilfinninga. Sjálfsmynd og mannleg samskipti eru skoðuð og aðferðir sálfræðinnar skoðaðar.
SKYNDIHJÁLP (SKYN1SK01)
Undanfari: Enginn
12 klukkustunda námskeið í skyndihjálp, kennt þrjá eftirmiðdaga.
*Áfanginn er eingöngu kenndur í dagskóla
STÆRÐFRÆÐI - FÖLL, MARKGILDI OG DEILDUN (STÆR3DF05)
Undanfari: STÆR2VH05
Meginefni áfangans eru föll, markgildi, deildareikningur og kynning á deildun. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Föll: Veldisföll, vísisföll, lograföll, andhverf föll og samskeytt föll. Markgildi og deildun: Markgildishugtakið. Skilgreining á afleiðu falls. Deildun veldisfalla, vísisfalla, lografalla og hornafalla. Reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla. Samfeldni og deildanleiki falla. Aðfellur. Hagnýting deildunar við könnun falla, s.s. að finna staðbundin hágildi og lággildi, einhallabil, beygjuskil og jöfnu snertils. Gröf falla. Noktun deildareiknings við hagnýt viðfangsefni.
STÆRÐFRÆÐI - STRJÁL STÆRÐFRÆÐI (STÆR3SS05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: STÆR2GS05
Efnissvið áfangans eru mengjafræði, rökfræði, talningarfræði, reiknirit og talnafræði. Náttúrlegar tölur eru sameiginlegt viðfangsefni þessara sviða. Helstu efnisatriði eru: Mengi, vensl, varpanir og helstu hugtök varðandi þessi atriði, talningarfræði, rökreglur, mótdæmi, rakning, þrepun, reiknirit, raðir, jafnmunaröð, jafnhlutfallaröð, deilanleiki talna og frumtölur, sætiskerfi með öðrum grunntölum en 10, leifaflokkar og aðgerðir með leifaflokkum.FERÐAÞJÓNUSTA Á VESTFJÖRÐUM (FMFR1GA05)
Undanfari: enginn
Markmið kennslunnar er að nemendur læri lykilatriði í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og geti undirbúið sig fyrir leiðsögumannanám.
*Áfanginn er eingöngu kenndur í dagskóla
SKÁK (SKÁK1SB03)
VALÁFANGI
Undanfari: enginn
Í áfanganum verður farið yfir sögu skákíþróttarinnar og valinna skákmeistara ásamt því að fara yfir helstu byrjanir og grundvallarreglur í byrjunum, miðtafli og endatafli.*Áfanginn er eingöngu kenndur í dagskóla
KYNNING Á MÁLMIÐNGREINUM (MÁLM1KÁ05)
VALÁFANGI
Undanfari: enginn
Í áfanganum fá nemendur kynningu á málmiðngreinum og læra nokkur undirstöðuatriði í faginu.*Áfanginn er eingöngu kenndur í dagskóla
Menntaskólinn á Ísafirði
Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 450 4400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa/