Föstudagspóstur
1.bekkur
Við byrjuðum að vinna með Ýmu tröllastelpu og verðum við að vinna með hana þangað til jólaþema byrjar. Við höfum bætt vinnubók í íslensku inn í stöðvar hjá okkur þar sem æfingin er að skoða stafi, hljóð þeirra og tengja hljóð við myndir. Þau eru mjög áhugasöm þegar kemur að bókavinnu og finnst spennandi að vera með skólabækur. Við finnum að úthaldið er einnig að aukast og þau orðin enn öruggari með rútínu daganna. Við höfum einnig verið að bæta ipad meira inn í námsstöðvarnar og munum halda því áfram.
Nemendadagurinn í dag gekk vel. Fylgdumst með fótbolta- körfubolta og blakkeppni í íþróttasalnum. Fylgdumst með hæfileikakeppni fram á sal og unnum svo val verkefni eftir matinn.
Ekki er um neitt uppbrot að ræða í næstu viku og því mun rútínan hér ganga sinn vanagang.
Góða helgi,
1.bekkjar teymið
Orðasafnið mitt/heimalestur
Bókin Orðasafnið mitt mun nú vera í heimalestrarmöppunni og verður unnið í henni heima samhliða heimalestri. Í næstu viku, vikunni 3.nóv - 9.nóv. verður unnið með stafina Aa, Kk, Vv. Gott er að skoða gripið og vanda hvern staf. Frekar æfa þá færri stafi og vanda til verka. Hér á myndinni til hliðar setti ég inn hvaða línur er best að nota.