Stiklur
Gormánuði lokið og ýlir nýhafinn
Fundur á
þriðjudaginn. Að þessu sinni verða stigsfundir. Yngsta og miðstig ræða m.a. uppsetningu jólapóstkassa, sundurlesningu og dreifingu korta. Þar sem þetta er að öllum líkindum síðasti stigsfundur ársins er ekki ólíklegt að öll stigin hafi næg umræðuefni... :)
Styrkur frá SÚN
Já...hvar værum við ef.... fyrir um mánuði síðan komu þau Björn Á og Helga I að máli við mig og kynntu frábæra hugmynd að svokölluðu "skynörvunarrými". Svo vel vildi til að handan við hornið var umsókn í SÚN - sjóðinn...ég skellti í umsókn og ...voila...við fáum 1.000.000.- ...já þið lásuð rétt...eina milljón! Fyrir þá sem ekki vita út á hvað þetta gegnur er hægt að smella hér og hér.
Vinnustaðagreiningin
Því miður tókst ekki að klára málið í þessari viku en þið eigið von á glaðningi...vonandi strax á mánudaginn... :)
Endurskin(smerki)
Í morgun hófst áróðurherferð mín, Viðars og Stellu fyrir endurskinsmerkjum (þau eru bæði búin að skamma mig fyrir að vera ekki fyrr á ferðinni :) ). Sendur var tölvupóstur á alla foreldra, frétt á heimasíðu og tilkynning á Facebook. Ég hvet ykkur öll til að taka þá í áróðrinum með okkur.
Fjarverur skólastjóra
Eitthvað riðluðust fjarverur skólastjóra og ekki losnuðuð þig við mig 14. og 21. nóvember eins og ég lofaði. En þetta stendur allt til bóta og lítur þetta þá þannig út:
28. 11 - 03.12
eTwinning contact seminar í Luxemborg (ekki Liechtenstein :)
5. desember
Skólastjórnendafundur á Reyðarfirði um "skólaforðun"
12. desember
Skólastjórafundur á Stöðvarfirði
Gamla fólkið og ungmennin
Guðrún Lilja frá félagsþjónustu Fjarðabyggðar hafði samband. Hún er í forsvari fyrir PLACEE verkefni sveitarfélagsins sem gengur út á að tengja saman eldri borgara og ungdóminn. Ég veit að sjöundi bekkur með þeim Helgu og Anetu hafa verið að gera skemmtileg verkefni og kannski fleiri. Guðrún hvatti okkur til þess að nota desember til að koma á tengslum, kannski fara upp í Breiðablik og lesa, föndra, heyra um jólin í gamla daga eða bara eitthvað skemmtilegt. Ef við höfum samband við Guðrúnu með fyrirvara gæti hún t.d. boðið upp á smá veitingar...kakó og kökur...eða... :) Netfang Guðrúnar er: gudrun.magnusdottir@fjardabyggd.is
Vissuð þið þetta!!!
Algjört must-see video hér að neðan frá snillingunum Begga og Hansa...sem eru með vefinn snjallkennsla.is.
Google skrifar það sem þú segir... á íslensku... VÁ... :) Frábært tæki fyrir marga nemendur...
Docs raddinnsláttur