Stiklur
Létt og laggott...eða stutt og snubbótt
Sund
...eða ekki sund... í næstu viku verður Salóme á Erasmus+ ferðalagi með VA og því ekkert sund á þriðjudaginn nema kennarar og stuðningsfulltrúar skelli sér í betri skýluna og láti vaða... :)
Hönd í hönd
Okkur tókst það...í blíðskaparviðrinu í gær tóku nemendur og starfsfólk höndum saman og föðmuðu skólann. Þessi vika sem nú er að klárast er alþjóðleg baráttuvika gegn kynþátta misrétti.
Ég er unik
Fyrirlesturinn, ég er unik, sem var á sal á miðvikudaginn gekk vel, góð mæting og mjög þarft og áhugavert efni. #takkfyrirokkur
Þriðjufundadagurinn
Ekki er enn ákveðið hvernig fundartímanum verður varið...kemur í ljós á mánudaginn!
Draumaskólinn
Takk fyrir gott innlegg á fundinum á gær #draumaskólinn
Starfsþróunarviðtölin
...við kennara eru að klárast og í næstu viku mun ég byrja á stuðningsfulltrúunum..endilega heyrið í mér og fáið tíma :)
Furðuverur
Næsta föstudag gætu furðuverur vappað um skólann, skólastjórnedur á Austurlandi stefna á bíltúr og skoða grunnskóla Fjarðabyggðar.. #beware
Fjallaferð
Grannt er fylgst með veðurfréttum og fjallaferðin gæti orðið í næstu eða þar næstu viku.
Tæknihornið
Podcast er frábær leið til að fylgjast með ...t.d. tækni nýjungum eða kennslu nýjungum. Ingvi Hrannar er með mörg mjög góð... http://ingvihrannar.com/category/menntavarp3/ endilega kynnið ykkur eitthvað af því sem hann hefur fram að færa...