Aðventan
Í skólanum
Desember
Nú eru 3 vikur fram að jólafríi í skólanum. Við reynum að halda okkar rútínu eins mikið og hægt er í desember. Í dag var föndur og við skreyttum skólann og við munum halda áfram að föndra í desember. Við kveiktum einnig á jólatrénu og sungum. Þetta var notalegur dagur þar sem foreldrar 4. bekkjar buðu upp á heitt súkkulaði og piparkökur.
Jólaskreytingar
Litlu jólin
Fimmtudaginn 19. desember ætlum við að halda litlu jólin. Þá mæta allir spariklæddir í skólann og borða hátíðarmat í hádeginu. Eftir hádegi dönsum við í kringum jólatréð í Aratungu. Foreldrar eru velkomnir á jólaballið. Athugið að það er mæting 10:15 þennan dag.
Jólafrí
Föstudaginn 20. desember er síðasti dagur fyrir jólafrí. Þá verða stofujól fyrst um morguninn og síðan jólabingó í kringlunni. Nemendur koma síðan heim á hefðbundnum tíma. Eftir jólafrí hefst skóli fimmtudaginn 2. janúar kl.10:15.