Föstudagur 17. apríl 2020
6. bekkur
Sæl verið þið kæru foreldrar.
Vikan hjá okkur hefur gengið vel. Bæst hefur aftur í hópinn okkar eftir páskafrí og gott að hitta nemendur aftur. Ýmislegt hefur verið brallað í vikunni og gleðjumst við yfir hlýnandi veðri. Með hækkandi sól er stefnan tekin á meiri útiveru og hlökkum við til að geta farið í göngutúra og unnið meira úti.
Það kom tilkynning frá stjórnendum skólans í vikunni um að starfsdögum í næstu viku hefur verið frestað til 4. maí og 22. maí. Í næstu viku mæta því allir hópar mánudag, miðvikudag og föstudag. Þau halda áfram að mæta á sama tíma og við sömu innganga. Gott er að halda áfram að brýna fyrir börnunum um mikilvægi þess að halda sig við sinn hóp í skólanum og muna eftir 2 metra reglunni. Einnig er biðlað til ykkar foreldrar að láta okkur umsjónarkennara vita með dags fyrirvara ætli börnin ykkar að snúa aftur í skólann. Þannig er hægt að bregðast við og skipuleggja hópa upp á nýtt svo hægt sé að tryggja að farið sé eftir fyrirmælum almannavarna og sóttvarnalæknis varðandi hópastærðir.
Við fórum af stað í vikunni með fjarfundi fyrir þá nemendur sem eru alfarið heima og munum við halda því áfram í næstu viku. Við stefnum einnig á það að taka hópfund með öllum þremur hópunum í næstu viku og þeim nemendum sem eru heima til að allir geti „hisst“ og spjallað saman.
Þið foreldrar sem eruð alfarið með börnin ykkar heima skuluð fylgjast vel með tölvupóstinum ykkar þar sem þið fáið tilkynningar um tímasetningar á fjarfundunum.
Ef það eru einhverjar spurningar þá erum við alltaf til taks og aðstoðum eftir bestu getu. Takk fyrir vikuna og njótið helgarinnar.
Bestu kveðjur, 6. Bekkjarteymið.