Vikupistillinn
Tímabilið 17. - 21. desember 2018
Punktar
- Munum eftir jólahvalamiðunum. Hver miði gildir 2 stig.
- SMT veggur við kaffistofuna. Umsjónarkennarar getið sett inn hvalaveislurnar ykkar á blaðið á veggnum.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu barnsins.
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
- Hvalrekinn fréttabréf Hvaleyrarskóla má sjá hér.
- Átt þú eitthvað í ísskápnum - ekki geyma það þar yfir jólin ;)
Mánudagur 17. desember
- Kirkjuheimsókn 6. SL í Ástjarnarkirkju kl. 09:00.
- Kirkjuheimsókn 5. BG í Ástjarnarkirkju kl. 10:15.
- Verið - miðdeild - jólamynd.
- Verið - elsta deild - pógómót.
Þriðjudagur 18. desember
- Jólasamvera miðdeildar kl. 8:20.
- Jólasamvera elstu deildar kl. 10:00.
- Enginn fundur :-)
Miðvikudagur 19. desember
- Jólasamvera yngstu deildar kl. 8:20.
- Litlu jól hjá 6. og 7. bekk kl. 16:30 - 18:30.
- Litlu jól hjá elstu deild kl. 19:30 - 21:30.
- Í lok skóladags setja kennarar tölvur úr skólastofum fram á gang.
Fimmtudagur 20. desember
- Litlu jól hjá 1. og 2. bekk kl. 9:00 - 10:30
- Litlu jól hjá 3. - 5. bekk kl. 10:30 - 12:00
- Í lok skóladags setja kennarar tölvur úr skólastofum fram á gang.
Föstudagur 21. desember
- Jólafrí :))
Nemendamál
Systkinin Jenný Björk 10. SB og Kjartan Þór 8. MK hafa kvatt okkur og byrja á nýju ári í Kópavogsskóla.
Mikael Óli Jónsson mun hefja nám hjá okkur, en hann kemur úr Skarðshlíðarskóla. Hann mun fara í 5. HÁ.
Fréttir frá Bjargi
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Heimsókn frá leikskólunum
Mánudaginn 10. desember fengum við heimsókn frá elstu nemendum Vesturkots og Álfasteins. Sungu þau nokkur jólalög ásamt nemendum í 1. bekk.
Jólasamvera hjá yngstu deild
Guðrún Árný var með jóla-söngsamveru hjá yngstu deild á miðvikudaginn.
Laufabrauðsgerð
Nemendur í bökunarvali skáru út og steyktu laufabrauð í vikunni.
Tiltekt vikunnar
Ískápurinn okkar. Nú þurfa allir að taka höndum saman og taka sitt úr ískápnum. Höfum heyrt að eitthvað er á leiðinni út úr skápnum af sjálfsdáðum ;-)
Fimmtudaginn 20. desember verður ísskápurinn tæmdur.
Afmælisdagar í desember
Hulda Sólveig þann 6. desember, Marfríður þann 7. desember, Zulaia þann 8. desember, Sigurborg þann 12. desember, Malen þann 14. desember, Páll þann 16. desember, Gunnur þann 20. desember og Alda þann 29. desember. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Sjáið þið stærðfræðina í hluta afmælisdaganna í desember? Gaman að þessu.
Á döfinni
- Skipulagsdagur föstudaginn 4. janúar hefst með fyrirlestri kl. 8:30.
- Hér má nálgast skipulag á litlu jólunum 2018 hjá öllum árgöngum.
- Hér má nálgast skiptingu starfsfólks á litlu jólunum 2018.
- Hér má nálgast skipulag á 19. desember fyrir kennara elstu deildar.
https://www.youtube.com/watch?v=vvR66bZBCIk
https://www.youtube.com/watch?v=yXQViqx6GMY&list=PLyn1b86Ad_a6KrXeRMyX2LMSgStSeQUgb
Námslotur í InfoMentor
https://www.youtube.com/watch?v=Im_octtkUis
https://youtu.be/Nk9Yu9wx3-Q
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200