Bundið áfangaval og valáfangar
HAUSTÖNN 2024
- Bóklegur áfangi haustið 2024 er næringarfræði. Þú þarft að velja þína íþróttagrein:
- BLAK BLAK1NÆ05
- BOGFIMI BOGF1NÆ05
- HANDBOLTI HAND1NÆ05
- KNATTSPYRNA KNAT1NÆ05
- KÖRFUBOLTI KÖRF1NÆ05
- ÓLYMPÍSKAR LYFTINGAR ÓLFT1NÆ05
- SKÍÐAGANGA SKÍG1NÆ05
- SKOTFIMI SKOT1NÆ05
- SUND SUND1NÆ05
Nemendur sem ætla sér í háskólanám eru hvattir til að taka fleiri 3. þrepsáfanga en lágmark á brautinni segir til um.
DANSKT MÁL OG SAMFÉLAG II
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: DANS2BF05
Í áfanganum er lögð áhersla á flóknari orðaforða en áður bæði í töluðu máli og rituðu. Áhersla er lögð á að orðaforði og lesskilningur nemenda verði aukinn enn frekar, m.a. með lestri sérhæfðra texta. Nemendur kynnast dönskum bókmenntum og hvernig þær endurspegla danskt samfélag. Nemendur fá þjálfun í að tjá sig munnlega, kynnast hinum ýmsu mállýskum og hvar þær eru sterkastar. Farið verður yfir skyldleika dönskunnar við íslensku, tengsl landanna og áhrif á íslenska menningu og samfélag. Farið verður yfir sögu og menningu Færeyja og Grænlands, stöðu dönskunnar í þeim löndum og ríkjasamband þeirra við Danmörku. Áfram verður lögð rík áhersla á að vekja nemendur til meðvitundar um eigin ábyrgð á námsframvindu, sjálfstæð vinnubrögð og auka skilning þeirra á ýmsum aðferðum til að tileinka sér tungumálið.
ALMENN EFNAFRÆÐI
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: STÆR2JA05
Í þessum fyrsta áfanga í efnafræði fyrir nemendur á náttúruvísindabraut verður farið í grunnatriði almennrar efnafræði. Frumefni, atóm, jónir og sameindir, lotukerfið, rafeindaskipan og efnatengi, nafnakerfi ólífrænna efna, efnahvörf og efnajöfnur, mólhugtakið, lausnir, gas og magnútreikninga.
FÉLAGSFRÆÐI - KENNINGAR OG SAMFÉLAG
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: FÉLV1IF05
Í þessum áfanga er fjallað um frumkvöðla félagsfræðinnar og kynntar helstu kenningar greinarinnar. Samfélagið er skoðað í ljósi mismunandi kenninga og nokkrar þekktar rannsóknir innan félagsfræði skoðaðar. Farið er yfir vítt svið félagsfræðinnar og nemendur þjálfaðir í að beita félagsfræðilegu innsæi við túlkun á samfélagslegum málefnum.
KYNJAFRÆÐI
VALÁFANGI
Undanfari: JAFN1JK05 og FÉLA2KS05
Í áfanganum er farið dýpra ofan í kynjafræði út frá ólíkum þemum sem snerta reynsluheim nemenda. Samfélagið, menningin og sagan er skoðuð í ljósi mismunandi kenninga og lögð er áhersla á ígrundun og umræðu í lærdómsferlinu. Farið er lítillega yfir vítt svið kynjafræðinnar, þróun hennar og hvernig hún kallast á við réttindabaráttu jaðarhópa í samfélaginu. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist dýpri skilning á hugtökum sem kynnt eru í inngangsáfanga í kynjafræði og fái svigrúm til að skoða þau í öruggu rými kennslustofunnar með lestri einfaldra fræðitexta, ígrundun og umræðu. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist dýpri skilning á hugtökum, æfi sig í lestri einfaldra fræðitexta og umræðu. Bæði að öðlast skilning, að kynna efni í hópi nemenda og að hlusta á ólík sjónarmið.
FJÁRMÁLALÆSI DAGLEGS LÍFS
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Markmið áfangans er að opna augu nemenda fyrir mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur, þekkja réttindi og skyldur neytenda og kunna skil á helstu atriðum á almennum fjármálamarkaði. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði verða til umfjöllunar auk þess sem nemendur verða þjálfaðir í gerð ferilskrár og starfsumsókna. Markmið áfangans er að gera nemendur sjálfbjarga í raunverulegum fjármálaaðstæðum daglegs lífs.
ÚTIVIST - FJALLGÖNGUR
VALÁFNAGI
Undanfari: Enginn
Markmið áfangans er að auka áhuga nemenda á útiveru og fjallgöngum, ásamt því að byggja upp gönguþrek og þol. Í lok áfangans eru nemendur vel undirbúnir fyrir dagsgöngu á fjöllum.
Kostnaður við áfangann er 3.000 kr.
GRUNNÁM MÁLM- OG VÉLTÆKNIGREINA 1. ÁR
Undanfari: Enginn
Grunnnám málm- og véltæknigreina veitir nemendum undirbúning til áframhaldandi náms í málm- og véltæknigreinum s.s. í stálsmíði, bifvélavirkjun og vélstjórn. Auk kjarnagreina taka nemendur faggreinar s.s. málmsuðu, málmsmíðar, rafmagnsfræði og vélstjórn.
INNGANGUR AÐ HEIMSPEKI
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: FÉLV1IF05
Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund? Er guð til? Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Ásamt völdu lesefni verður notast við bíómyndir, tónlist og myndbrot úr dægurlífinu.
HUGMYNDIR OG NÝSKÖPUN - áfangi fyrir fjarnemendur með MÍ sem heimaskóla
BRAUTARKJARNI
Undanfari: 2 ár í framhaldsskóla
Í áfanganum er fjallað um aðferðir til að efla skapandi hugsun, leikni í þróun hugmynda og hæfni til að koma þeim á framfæri. Unnið verður markvisst frá skissuvinnu til niðurstöðu. Fjallað um hugmyndafræði nýsköpunar og gerð viðskiptaáætlana. Lögð er áhersla á að skoða margvíslegar útfærsluleiðir þar sem nemendur vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Fjallað verður um ýmsar aðferðir við að skrásetja hugmyndir. Íslensk sköpunarstörf sem tengjast efni áfangans verða kynnt og nýsköpunarstarfsemi í nærumhverfinu.
HÖNNUN OG BLÖNDUÐ TÆKNI
Undanfari: ENGINN
Í áfanganum verður kennd markviss hugmyndavinna. Nemendur halda dagbók og vinna markvissa skissuvinnu og safna hugmyndum sínum í hugmyndabanka. Nemendur að temja sér aðferðir við að skynja umhverfi sitt og nýta það til listsköpunar, eins og með endurnýtanleg efni. Nemendur fá að spreyta sig á ólíkri tækni, aðferðum og efnum innan hönnunar. Verkefnin eru undir leiðsögn kennara og nemendur hanna hluti úr mismunandi efnum með tilliti til efnis, litavals og útlits.Nemendur þjálfaðir í að vinna sjálfstætt og þjálfist í gagnrýnni hugsun gagnvart eigin verkum og annarra. Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.
HÖNNUN Í ATVINNULÍFINU
Undanfari: HÖNN1BL05
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist fjölbreytileika hönnunar og markaðslögmálum greinarinnar í atvinnulífinu. Nemendur kynnist einnig tengslum greinarinnar við atvinnulífið í formi nýsköpunar, vöruþróunar, menningu, lista og stílsögu. Fjallað verður um ýmsa grunnþætti varðandi hráefnis- og vöruþekkingu og lög og reglugerðir. Mikilvægt er að nemendur átti sig á hlutverki þekkingar í hönnun og nýsköpun. Nemendur verði ljós gagnsemi hönnunar ásamt fjölbreyttum starfsvettvangi í samfélaginu. Nemendur halda dagbók, útbúa skýrslur vegna starfskynninga og kynna hver fyrir öðrum.
ÍSLENSKA - BARNABÓKMENNTIR
BRAUTARKJARNI/ BUNDIÐ ÁFANGAVAL/ VALÁFANGI
Undanfari: ÍSLE2BR05 og ÍSLE2MG05
Í áfanganum kynnast nemendur sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabókmennta og fræðast um mál og menningarheim barna- og unglingabóka. Ennfremur um þróun barna- og unglingabókmennta frá upphafi ritunar þeirra til dagsins í dag sem og mismunandi birtingarform þeirra. Nemendur fá þjálfun í lestri fræðigreina um efnið og gera grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega.
ÍSLENSKA - RITLIST OG SKAPANDI SKRIF
BRAUTARKJARNI/ BUNDIÐ ÁFANGAVAL/ VALÁFANGI
Undanfari: ÍSLE2BR05 og ÍSLE2MG05
Í áfanganum læra nemendur um mismunandi stílbrögð í ritlist auk þess sem þeir setja saman eigin texta undir leiðsögn kennara og rýna í verk annarra. Unnið er að því að auka bókmenntalegt læsi og sköpunargáfu með það að markmiði að koma afurð sinni á framfæri. Lögð er áhersla á að efla færni nemandans til að rýna í eigin verk og annarra og gera hann hæfari til allra handa ritsmíða, hvort heldur hagnýtra eða listrænna. Að áfanganum loknum ætti nemandinn að hafa öðlast aukið sjálfstraust á sviði sköpunar og læsis sem gerir honum kleift að vinna sjálfstætt að sinni list. Í lok áfangans skilar nemandi sjálfstæðu verkefni í skapandi skrifum.
HREYFING OG HEILSURÆKT
Undanfari: 4 einingar í íþróttum
Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.
HREYFING OG HEILSURÆKT
ALMENNUR KJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: 4 einingar í íþróttum
Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.
SÉRHÆFING Í ÍÞRÓTTAGREIN
Undanfari: Enginn
Áfangi ætlaður nemendum sem leggja stund á íþróttagreinar en eru ekki nemendur á afreksíþróttasviði.
JAFNRÉTTIS OG KYNJAFRÆÐI - áfangi fyrir fjarnemendur með MÍ sem heimaskóla
ALMENNUR KJARNI
Undanfari: FÉLV1IF05
Í áfanganum er fjallað um jafnrétti, mannréttindi og kynjafræði. Leitast verður við að tengja viðfangsefni við daglegt líf nemenda. Viðfangsefni áfangans eru réttindahugtakið, mannréttindi, jafnrétti, fjölmenning, kynþáttamisrétti, réttindi fatlaðra, réttindi barna, stéttamisrétti, jafnrétti kynjanna, femínismi, kynhlutverk, feðraveldi, kynbundið ofbeldi og klám.
ALMENN JARÐFRÆÐI
BRAUTARKJARNI/ BUNDIÐ ÁFANGAVAL/ VALÁFANGI
Undanfari: NÁTV1IN05
Í áfanganum er fjallað um innræn og útræn öfl og sérstök áhersla er lögð á jarðfræði Íslands. Fjallað er um flekarek og heita reiti, jarðskjálfta og brotalínur og landmótun jökla og vatnsfalla og annarra útrænna afla. Farið er í mismunandi gerðir af eldvirkni, mismunandi kvikugerðir og storkubergsmyndanir. Eðli og uppruni mismunandi steinda er skýrður og fjallað sérstaklega um frumsteindir og holufyllingar í íslensku storkubergi. Fjallað er um hraungerðir, flokkun bergs, eldstöðvakerfi, helstu gerðir eldgosa, móbergsmyndanir, dyngjur, jarðvarmasvæði og jarðvarmaleit. Nemendur vinna sjálfstætt og í hópum að lausn verkefna. Áhersla er lögð á tengingu við umhverfi og reynsluheim nemenda.
YIN YOGA OG SJÁLFSMILDI
VALÁFANGI
Undanfari: enginn
Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði líkamans og næra djúpvefi líkamans, bein og liðamót.
Tímarnir leggja áherslu á jákvæða hugrækt og kærleiksríka nærveru.
KYNFRÆÐSLA
VALÁFANGI
Undanfari: enginn
Í áfanganum verður farið yfir vítt svið kynfræðslu sem fer inn á svið sjálfsmyndar, samfélags, kynlífs og kynverundar. Nemendur fá öruggt rými til að rækta sjálfsþekkingu og fræðast um kynverundina og kynferðisleg samskipti.
NORRÆNAR KVIKMYNDIR
VALÁFANGI
Undanfari: FÉLV1IF05
Þróun norrænnar kvikmyndagerðar skoðuð í grófum dráttum, horft myndir frá mismunandi tímaskeiðum og „skólum“, svo sem Bergman og Dogma. Samfélagið skoðað út frá kvikmyndum. Verkefnum má skila á dönsku, sænsku, ensku og íslensku en umræður fara fram á íslensku.
MATREIÐSLA
VALÁFANGI
Undanfari: enginn
Nemendur matreiða ýmsa hagnýta, fljótlega og skemmtilega rétti. Kennd er meðferð hráefnis og um næringarinnihald matvæla, hreinlæti og vinnubrögð í eldhúsi.
Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur. Verkleg kennsla verður tvo laugardaga á önninni en bóklegir tímar verða kenndir einu sinni í viku.
MYNDLIST - ANATÓMÍA
Undanfari: MYNDL2FF05
Í vestrænni menningu hefur mannslíkaminn verið eitt mikilvægasta viðfangsefni listrænnar tjáningar. Í áfanganum er beina- og vöðvabygging mannslíkamans teiknuð. Jafnhliða er fyrirsæta teiknuð til að sannreyna anatómískar rannsóknir svo nemendur öðlist hlutlæga þekkingu og reynslu til að túlka og skilgreina hugmyndir sínar af innsæi og listrænum metnaði. Nemendur læra um gildi ástundunar og þjálfunar í teikningu.
VATNAVERÖLD
VALÁFANGI
Undanfari: NÁTV1IN05
Áfanginn er valáfangi fyrir alla nemendur sem hafa áhuga á að kynnast vatni í öllum sínum jarðlegu myndum til hugmynda um vatn í geimnum. Við lifum í vatnaveröld sem breytist stöðugt. Þekking og skilningur á eðlis-, efna- og líffræðilegu mikilvægi vatns og mismunandi aðgengi að því, er nauðsynlegur til að stuðla að sjálfbærni við nýtingu vatns á jörðinni. Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbærni vatns, verða lögð til grundavallar
Nemendur taka þátt í öflun þekkingar um vatn, m.a. í efnaferlum, mótun búsvæða og í lífverum. Þeir móta viðfangsefni kennslustundanna sem byggja á fræðsluþáttum um vatnið, umræðu og samantekt ályktana um efnið. Námið er leiðsagnarnám með áherslu á jafningjafræðslu. Nemendur munu halda rafræna dagbók um framvindu námsins og gera eigið myndaband sem lokaverkefni þar sem þeirra sýn á stöðu vatnamála verður birt. Stór hluti námsefnisins er á ensku í formi myndbanda, vefsíða og vísindagreina.
Nýsköpun og Fab lab
VALAÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL
Undanfari: Enginn
Farið er í gegnum ferlið frá hugmynd að áþreifanlegri frumgerð. Kennt er á tvívíð og þrívíð teikniforrit sem henta fyrir frumgerðasmíð og framleiðslu. Verkefni eru síðan framkvæmd í tölvustýrðum vélum og fleiri möguleikar smiðjunnar kynntir.
Framhaldsáfangi í Fab lab
VALÁFANGI
Undanfari: NÝSK1FA05
Í áfanganum er lögð áhersla á að læra hönnun og smíði á stafrænum rafrásum sem fylgjast með umhverfi sínu og hafa áhrif á það á ýmsa vegu. Einnig smíða nemendur tölvustýrða vél og forrita hana til að hreyfast. Farið verður í mótagerð og steypu á plasthlutum. Byggt verður á færni úr fyrsta Fab Lab áfanganum. Ætlast er til að nemendur finni út úr hlutunum sjálfir og hjálpist að við að leysa tæknileg vandamál.
UMHVERFI OG SÓLARORKA
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í áfanganum er unnið að undirbúningi og framkvæmd sólarselluverkefnisins, sem er samstarfsverkefni MÍ, Orkubús Vestfjarða og Bláma. Áfanganum er ætlað að auka skilning nemenda á orkuframleiðslu og hvernig hægt er að nýta mismunandi orkugjafa til að draga úr losun, umhverfisáhrifum og orkukostnaði með sérstakri áherslu á sólarorku á norðurslóðum og skólaumhverfið. Áfanginn er þverfaglegur með aðkomu kennara af ýmsum sviðum, svo sem rafvirkjun, eðlisfræði, umhverfis- og náttúruvísindum, iðnhönnun, nýsköpun, málmsmíði, upplýsingatækni, viðskiptafræði og stjórnmálafræði og hentar bæði nemendum á bóknámsbrautum og verknámsbrautum. Nemendur taka virkan þátt í að rannsaka og undirbúa fræðilegan og tæknilegan grundvöll uppsetningar á sólarsellum við skólann og öðlast ómetanlega innsýn í mikilvægi sjálfbærrar orku á stórum sem smáum skala. Sem dæmi má nefna að nemendur munu getað áttað sig á tilurð og uppruna raforku og fengið innsýn í hversu lengi sólarsellur skólans væru að hlaða símana þeirra eða rafmagnsbíl.
ÁTÖK Á 20. ÖLDINNI
VALÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL
Undanfari: SAGA2MÍ05
Fjallað verður um stærstu atburði í sögu 20. aldar með sérstakri áherslu á heimsstyrjaldirnar og staðgenglastríð á kalda stríðstímanum. Átökin í Úkraínu verða skoðuð og sett í samhengi við atburði 20. aldar. Einnig verða átökin á Gaza skoðuð í ljósi sögunnar. Lögð er áhersla á orsakir átaka og afleiðingar þeirra. Áhersla er lögð á fjölbreytta og gagnrýna heimildanotkun og sjálfstæð vinnubrögð.
AFBRIGÐASÁLFRÆÐI - GEÐHEILBRIGÐI
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: SÁLF2IS05
Í áfanganum verður gefið yfirlit yfir helstu geðraskanir og einkenni þeirra. Farið verður í helstu kenningar um orsakir geðraskana. Rætt verður um ýmsa þætti sem hafa áhrif á geðraskanir, t.d. þátt erfða og taugaboðefna sem og áhættuþætti tengda umhverfi. Nemendur kynnast flokkunarkerfi geðraskana, DSM-V, og fá þjálfun í að nota kerfið til að leita sér upplýsinga um geðraskanir. Nemendur fá kynningu á þeim aðferðum sem helst eru notaðar við rannsóknir á geðröskunum. Fjallað verður um mismunandi meðferðarleiðir og nemendur fá æfingu í að meta meðferðarleiðir og kenningar á gagnrýninn hátt.
SJÓNLISTIR - LITA OG FORMFRÆÐI
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í áfanganum kynnist nemandinn lögmálum myndbyggingar og rannsakar hvernig eðli myndflatar breytist eftir því á hvaða hátt línur og form skipta honum upp. Nemandinn þjálfar sig í óhlutbundinni myndgerð með það að markmiði að ná fram mismunandi áhrifum á tvívíðan flöt en einnig í þrívídd. Grundvallaratriði í meðferð lita eru einnig viðfangsefni áfangans og kannar nemandinn samspil þeirra, virkni og áhrif. Nemandinn þjálfast í að blanda liti og beita þeim á markvissan hátt. Hann þjálfast í notkun margvíslegra efna og áhalda við rannsóknir sínar. Nemandinn kynnist verkum nokkurra listamanna og hönnuða í tengslum við verkefnavinnu. Samhliða henni þjálfast hann einnig í notkun grunnhugtaka í lita- og formfræði.
SJÚKRALIÐANÁM (SJÚK1H2024)
Undanfari: Eins árs nám í framhaldsskóla
Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Í náminu er rík áhersla lögð á samvinnu við starfsfólk og stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis til Embættis landlæknis og öðlast þá réttindi til að starfa sem sjúkraliði á Íslandi. Starfsheitið sjúkraliði er lögverndað. Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar. Nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla og starfsnám á heilbrigðisstofnunum.
SKYNDIHJÁLP
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
12 klukkustunda námskeið í skyndihjálp, kennt þrjá eftirmiðdaga.
STÆRÐFRÆÐI - VIGRAR OG HORNAFÖLL
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: STÆR2JA05
Í áfanganum er farið í vigra, hornaföll, þríhyrninga, bogamál á hring, jöfnu hrings, fleygboga, keilusnið og sporbauga en einnig er fjallað um hagnýtingu þekkingar á hornaföllum. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist flatarmyndafræði í hnitakerfi og læri að sanna helstu reglur og beita þeim.
ÁLYKTUNARTÖLFRÆÐI
VALÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL
Undanfari: STÆR2LT05
Fjallað er um nokkrar aðferðir sem notaðar eru til að draga tölfræðilegar ályktanir. Nemendur læra að draga ályktanir um þýði á grundvelli úrtaka, setja fram tilgátur og prófa þær. Farið verður yfir helstu líkindadreifingar, grunnatriði úrtaksfræða, úrtaksdreifingu, höfuðsetningu tölfræðinnar, öryggisbil, tilgátupróf, fylgnireikninga og aðhvarfsgreiningu.
STRJÁL STÆRÐFRÆÐI
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: STÆR2GS05
Efnissvið áfangans eru mengjafræði, rökfræði, talningarfræði, reiknirit og talnafræði. Náttúrlegar tölur eru sameiginlegt viðfangsefni þessara sviða. Helstu efnisatriði eru: Mengi, vensl, varpanir og helstu hugtök varðandi þessi atriði, talningarfræði, rökreglur, mótdæmi, rakning, þrepun, reiknirit, raðir, jafnmunaröð, jafnhlutfallaröð, deilanleiki talna og frumtölur, sætiskerfi með öðrum grunntölum en 10, leifaflokkar og aðgerðir með leifaflokkum.
SÆNSKA 1
VALÁFANGI
Undanfari: grunnur í sænsku
Í áfanganum er lögð áhersla á lestur fjölbreyttra texta til að auka lesskilning og orðaforða. Undirstöðuatriði sænskrar málfræði eru rifjuð upp og þau æfð með gagnvirkum æfingum á netinu, rituðu og mæltu máli. Allir fjórir færniþættirnir, lestur, ritun, hlustun og tal, eru þjálfaðir markvist auk þess sem nemendum er leiðbeint í notkun orðabóka og annarra hjálpargagna í tungumálanáminu.
*Áfanginn er eingöngu kenndur í fjarnámi
FORRITUN
Undanfari: Enginn
Farið er lauslega yfir sögu forritunar, uppbyggingu tölvu og helstu stýrikerfi. Farið er í undirstöðuatriði forritunar og lausnir einfaldra forritunarverkefna í hlutbundnu forritunarmáli, t.d. Python og Pygame eða Java. Áfanginn getur hentað nemendum á öllum brautum. Helstu hugtök: Uppbygging tölvu, hugbúnaður og vélbúnaður, breytur, virkjar, fylki, heiltölur, kommutölur, gildissvið (scope), slembitölur, strengir, listar, grafík, föll, stafasett, tvíundar-, tuga- og sextándaform, búlskar segðir og skilyrðissetningar, lykkjur, inntak og úttak í textabundnum notendaskilum, athugasemdir röðun, prófun og villuleit.
INNGANGUR AÐ UPPELDIS- OG MENNTUNARFRÆÐI
Undanfari: FÉLV1IF05
Í áfanganum er uppeldi skoðað frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um foreldrahlutverkið og rætt um hverju væntanlegir foreldrar geta búist við þegar von er á barni. Kynntar eru aðferðir atferlisstefnunnar við uppeldi og agastjórnun.
Menntaskólinn á Ísafirði
Tölvupóstur: misa@misa.is
Heimasíða: www.misa.is
Heimilisfang: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Sími: 450 4400
Fésbókarsíða: https://www.facebook.com/menntaisa/