Múkk, múður og miklu meira!!
MOOC og Moodle
Menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til þess að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum.
Mikil vakning er í tengslum við fjarnám, vefnám, spjaldtölvur, innleiðingu nýrrar aðalnámskrár svo eitthvað sé nefnt. Fjölmörg áhugaverð þróunarverkefni eru í gangi úti í skólunum sem vert er að fylgjast með. Áhersla verður lögð á tengslamyndun fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni og miðla í skólastarfi.
Megin markmið menntabúða er að:
a) skapa jafningjaumhverfi þar sem miðlun þekkingar og reynslu á sér stað
b) veita þátttakendum tækifæri til að læra og prófa sig áfram með ýmis áhugaverð viðfangsefni
c) stuðla að tengslamyndun og samvinnu fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni og miðla í skólastarfi.
Menntabúðirnar eru ætlaðar starfandi kennurum á öllum skólastigum og fyrir kennaranema. Þátttakendur fá staðfesta viðurkenningu á endurmenntun frá Menntavísindasviði HÍ. Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku.
Eins og fyrirsögnin gefur til kynna verður aðaláhersla þessara menntabúða MOOC og Moodle en að sjálfsögðu er opið fyrir önnur framlög.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í hvert skipti til að auðvelda utanumhald og skipulagningu. Smelltu á Get Tickets hér fyrir ofan til að skrá þig.
Þátttakendur eru beðnir að koma með framlag í búðirnar en ekki er ætlast til að allir komi með innlegg. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námsskrárvinnu, eða að varpa fram spurningum. Tryggt verður að nóg áhugavert efni verði til reiðu. Þátttakendur eru hvattir til að koma með fartæki (fartölvu, spjaldtölvu, snjallsíma,...) með sér og hægt verður að tengjast neti.
Samstarfsaðilar menntabúða:
UT-torg og Menntamiðja
Fagaðilar og framhaldsnemar í upplýsingatækni og miðlun
Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun (RANNUM)
Menntasmiðja