Vikupistillinn
Tímabilið 22. - 28. apríl 2019
Heilræði vikunnar
Loksins þegar
maður
veit allt ...
Þá man
maður
það ekki
lengur.
Heiða Jónsdóttir
Punktar
- Muna að skila vikuáætlunum inn á sameign í möppuna „Áætlanir/Vikuáætlanir“.
- Leikstjórar í miðdeild, sjá skipulag vorannar.
- Leikstjórar í 3. og 4. bekk, sjá skipulag vorannar
- Á næstu dögum hefja stjórnendur innlit sitt í kennslustundir. Þeir munu boða komu sína með smá fyrirvara og senda kennurum tölvupóst.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið - hér má nálgast nemendaviðtalsblað fyrir sérgreinakennara. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu nemandans.
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagur 22. apríl
- Annar í pálsum og því frí :-)
Þriðjudagurinn 23. apríl
- Söngsamvera hjá miðdeild.
- Heimanámsaðstoð Rauða krossins er á bókasafninu kl. 13:30.
- Á fundatíma kennarafundur.
Miðvikudagurinn 24. apríl
- Söng samvera hjá yngstu deild.
- Nemendur í 3. bekk syngja inn sumarið á Björtum dögum.
- Fundur nemendaverndarráðs kl. 13:00 fellur niður.
- Verið - miðdeild - lokað vegna undirbúnings.
- Verið - elsta deild - tölvuleikja- og leiktækjamót.
- Rafíþrótta- og leiktækjamót verður haldið í Nýja-Vitanum (Menntasetrið við Lækinn).
Fimmtudagurinn 25. apríl
- Sumardagurinn fyrsti og því frí :))
Föstudaginn 26. apríl
- Fundur hjá lausnateyminu kl. 14:10.
- Verið - miðdeild - Opið hús.
- Verið - elsta deild - Vorið vaknar - leiksýning í Gaflaraleikhúsinu.
Tiltekt á skólalóðinni
.
Fréttir frá Bjargi
Systurnar Krishma í 8. MK og Shaimaa í 5. BG hafa nú fengið landvistarleyfi. Framhaldið ræðst af því hvar fjölskyldan fær húsnæði. Hana Lagain Hneidi Fares í 9. MS flytur til Reykjavíkur fyrir páska og mun trúlega hefja skólagöngu í Hlíðaskóla.
Systkinin Ebru 2. RAG, Emina 8. MK og Ismet 7. BJG byrja í list-og verkgreinum (sundi og íþróttum eftir páska).
Nýir nemendur í Bjarg. Eftir páska koma eftirtalin börn:
Alexei Plesco fæddur 2003, Avram Sarban fæddur 2003, Ismail Sarban fæddur 2010, Elizaveta Sarban fædd 2012 og Diana Preida fædd 2010. Þau eru frá Moldóvíu og tala rússnesku. Ekki hefur verið ákveðið hvaða bekkjum þau muni tengjast.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Afmælisdagar í apríl
Soffía á afmæli 2. apríl, Grétar á afmæli 3. apríl, Aldís Ebba á afmæli 10. apríl, Margrét Ö. á afmæli 13. apríl, Friðþjófur á afmæli 17. apríl, Þórunn ritari á afmæli 26. apríl, Svandís á afmæli 27. apríl og Einar Karl á afmæli 30. apríl.
Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á döfinni
- Nemendur í 8. bekk verða LOGOS skimaðir í apríl/maí.
Nemendur í 10. bekk fara til Danmerkur þann 29. apríl til 5. maí.
Hreinsunardagur færður til miðvikudagsins 8. maí. Yngsta deild frá kl. 10:00 - 11:20. Mið- og elsta deild frá kl. 10:40 - 12:00.
Bókabrall bókasafnsfræðinga í Hafnarfirði er 2. og 3. maí.
Þann 6. maí til og með 7. júní er lokainnritun nemenda sem eru að ljúka 10. bekk.
8. maí er íþróttamót grunnskólanna í Kaplakrika sem nemendur í 9. bekk taka þátt í.
Þann 8. maí er árshátíð miðdeildar.
Þann 9. maí er árshátið elstu deildar.
Þann 16. maí fara nemendur í 4. bekk í gróðursetningu.
Námsmatsdagar 23. og 24. maí hjá mið- og elstu deild en uppbrotsdagar hjá yngstu deild.
Skipulagsdagur 31. maí.
Vordagar eru 5. og 6. júní.
Skólaslit hjá nemendum í 10. bekk er 6. júní.
Skólaslit hjá nemendum í 1. - 9. bekk eru 7. júní.
Litla upplestrarkeppnin hjá 4. bekk
Litla upplestrarkeppnin hjá 4. bekk
Litla upplestrarkeppnin hjá 4. bekk
Námslotur í InfoMentor
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200