Fréttabréf Brekkuskóla
Nóvember 2018
Ágætu foreldrar og forráðamenn
Að vanda hefur haustið verið viðburðaríkt í skólanum og margt brallað. Tíðin hefur verið þannig að nemendur hafa getað verið í fótbolta og leikið sér á svokölluðum pönnuvelli í allt haust auk þess sem pókó vellir eru enn sívinsælir. Þegar þetta er ritað er veturinn þó að láta vita af sér og það með nokkrum hvelli. Þá má búast við að leikir barnanna breytist og að snjórinn fái meira vægi í þeim. Það er klassískt að fara í snjókast, byggja virki og að búa til svell þar sem hægt er að renna sér.
Þó að hátíð ljóssins nálgist óðfluga þá er tími myrkurs og það er aldrei of oft minnt á mikilvægi þess að bæði fullorðnir og börn noti endurskynsmerki. Við mælum með að þið takið ykkur tíma til að yfirfara þetta.
Föstudaginn 14. desember ætlum við að hafa „jólafatadag“ þá mæta þeir sem vilja í einhverju jólalegu og dagurinn verður fyrir vikið enn skemmtilegri.
Með von um ánægjulega aðventu!
Litlu - jól 21. desember
Nemendur í 3., 4. og 9. bekk mæta klukkan 08:00 í heimastofur. Klukkan 09:00 koma þeir á sal skólans, þar sem verður dansað í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 9:30 og 10:00 og Frístund opnar fyrir nemendur sem þar eru skráðir.
Nemendur í 5., 8. og 1. bekk mæta klukkan 09:00 í heimastofur. Klukkan 10:00 koma þeir á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 10:30 og 11:00 og Frístund verður opin frá kl. 8 fyrir nemendur sem þar eru skráðir.
Nemendur í 2., 6., 7 og 10. bekk mæta klukkan 10:00 í heimastofur. Klukkan 11:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 11:30 og 12:00. Frístund verður opin frá kl. 8 fyrir nemendur sem þar eru skráðir.
Miðvikudaginn 2. janúar er frídagur.
Kennsla hefst á nýju ári samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 3. janúar 2019.
Brunaæfing í brunagaddi:-)
Rýming Brekkuskóla var æfð 27. nóvember. Það gekk vel að koma öllum fyrir á sparkvöllum og ganga úr skugga um að engan vantaði.
Hlutavelta á árshátíð
Það þarf skipulag til að safna, merkja og koma fyrir um 1300 munum í hlutaveltu sem er fjáröflun 6. bekkjar fyrir Reykjaferð.
Fullveldi Íslands 100 ára
Rithöfundar
Við höfum verið svo heppin að fá nokkra rithöfunda í heimsókn í skólann og er von á fleirum. Við vonum að með þessum heimsóknum takist að vekja athygli og aukinn áhuga nemenda á bókum, bóklestri og jafnvel ritstörfum:-)
Fullveldisafmæli 1. desember 2018
Föstudaginn 30. nóvember verður tileinkaður fullveldisafmælinu og munu nemendur vera með dagskrá á sal skólans. Þar verður sungið, flutt ljóðaslamm og fleira. Þennan dag ætlum við að vera í sparifötum.
Dagskrá á sal:
Kl. 8-9:20 Miðstig 4., 5. og 6. bekkur
Kl. 9:40 - 10:40 Elsta stig 7., 8., 9. og 10. bekkur
Kl. 12:10-13:10 Yngsta stig 1., 2. og 3. bekkur
Framlag til bókakaupa, gjöf frá Lions
Fimmtudaginn 29. nóvember var hátíðleg athöfn í Brekkuskóla þegar grunnskólar á Akureyri og í nágrenni tóku við veglegu framlagi frá Lions til bókakaupa. Alls fengu 24 grunnskólar sem ná frá Siglufirði austur að Bakkafirði framlag frá Lions. Brekkuskóli kann Lionsklúbbunum bestu þakkir fyrir. Þessi gjöf mun koma sér vel og verða nýtt til kaupa á nýjum og spennandi bókum fyrir börnin í skólanum. Það er mikilvægt að margir leggi sitt af mörkum til að auka aðgengi barna að góðum bókakosti og skiptir þetta því miklu máli.
Enn og aftur TAKK:-)
Símafrí í desember
Við í Brekkuskóla ætlum að taka okkur frí frá snjallsímum frá 3. desember fram að jólafríi.
Markmiðið er að njóta samskipta og samveru án snjallsíma í skólanum.
Nú er tími bókarinnar og okkur langar líka til að ýta undir aðra þætti í afþreyingu, við ætlum að bjóða nemendum spil, að skoða nýjar bækur sem eru að koma út núna fyrir jólin, einnig ætlum við að finna til tímarit og skapa aðstöðu fyrir teikningu og föndur. Borðtennisborð er komið upp í setustofu unglinga. Skólinn mun útvega tölvur og snjalltæki eftir þörfum í kennslustundum og vill nýta þau tæki áfram í skólastarfinu.
Hvað þýðir símafrí?
Að nemendur taki ekki síma upp í skólanum eða á skólalóð á skólatíma, noti aðra afþreyingu í frímínútum, spjalli, spili, lesi og fari jafnvel út í frímínútum.
Hafðu samband
Email: brekkuskoli@brekkuskoli.is
Website: brekkuskoli.is
Location: v. Skólastíg
Phone: +354 462 2525
Facebook: https://www.facebook.com/brekkuskoli.is/