Hvalrekinn
Ágúst 2019
Við upphaf skóla
Þá erum við að hefja þrítugasta skólaár Hvaleyrarskóla en skólinn var settur í fyrsta sinn haustið 1990.
Skólasetning er fimmtudaginn 22. ágúst sjá hér fyrir neðan. Sú nýbreytni í ár er að nemendum er boðið að kaupa ávaxtaáskrift (greitt er mánaðargjald) en ávextir eru í boði fyrir og í frímínútum kl. 9:40. Skólamaturinn er á sínum stað og mikilvægt að skrá sig fyrir matnum og ávaxtaáskriftinni. Nánari upplýsingar má sjá hér fyrir neðan.
Frá og með haustinu taka við samræmdar reglur um ástundun nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar en þær eru nánar útlistaðar hér fyrir neðan. Góð mæting í skóla er viðamikill þáttur í farsælli skólagöngu og vellíðan barna og unglinga. Að missa ítrekað úr kennslustundum, t.d. í lestri á yngra stigi eða stærðfræði á eldri stigum, getur haft áhrif á námsárangur þegar fram í sækir.
Vonandi hafa allir haft það sem best í sumar en ekki er hægt að segja annað en að veðrið hafi leikið við okkur hér suðvestanlands. Varðandi lesturinn þá trúum við því að allir hafi verið duglegir að lesa. Það er eins með lesturinn og annað sem við tökum okkur fyrir hendur að eftir því sem við æfum okkur meira þá gengur okkur betur.
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri
Skólasetning
Skólasetningin er sem hér segir:
- Kl. 8:30 Nemendur í 2., 3. og 4. bekk
- Kl. 9:30 Nemendur í 5., 6. og 7. bekk
- Kl. 10:30 Nemendur í 8., 9. og 10. bekk
Nemendur í 1. bekk eru með sérstöku bréfi boðaðir til viðtals hjá umsjónarkennara fimmtudaginn 22. ágúst.
Að lokinni skólasetningu fara nemendur og foreldrar með umsjónarkennara í heimastofu og fá afhenta stundaskrá og aðrar upplýsingar.
Kennsla hefst hjá öllum nemendum skólans föstudaginn 23. ágúst.
Foreldrar nemenda í 1. bekk eru hvattir til að mæta með börnum sínum í upphafi fyrsta skóladags. Skólasetning hjá 1. bekk er á sal skólans föstudaginn 23. ágúst kl. 8:20.
Kynningarfundir
Haldnir verða kynningarfundir í byrjun september. Byrjað verður á sal skólans þar sem meðal annars verður farið yfir nýjar reglur í grunnskólum Hafnarfjarðar varðandi mætingu og skráningu, farið yfir námsmat samkvæmt aðalnámskrá, samskiptavefinn Mentor og ýmislegt sameiginlegt.
Að því loknu fara foreldrar með umsjónarkennurum barna sinna í þeirra heima stofur þar sem umsjónarkennarar fara yfir ýmis atriði sem við kemur bekkjarstarfinu.
Fundirnir verða sem hér segir:
- 2., 3. og 4. bekkur miðvikudaginn 11. september kl. 8:20 – 9:30.
- 5., 6. og 7. bekkur fimmtdaginn 12. september kl. 8:20 – 9:30.
- 8., 9. og 10. bekkur þriðjudaginn 10. september kl. 8:20 – 9:30.
- Skólafærninámskeið fyrir foreldra barna í 1. bekk verður miðvikudaginn 28. ágúst kl. 17:00 - 19:00 í fyrirlestrarsal skólans.
Mataráskrift skólaárið 2019-2020
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar fimmtudaginn 11. júlí var samþykkt að ganga til samninga við Skólamat um áframhaldandi samstarf um mat í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Í upphafi skólaárs þarf að skrá öll börn í mataráskrift í gegnum heimasíðu Skólamat, sjá vefslóð: https://www.skolamatur.is/ og geta aðstandendur skráð nemendur í mataráksrift.
Ávaxta- og grænmetishressing
Í morgunfrímínútum (á bilinu 9.15-10.10 (um 20 mín. á hóp, hjá sumum afhent í stofur (1.-7. bk.) og öðrum í matsal (8.-10. bk.)) er boðið upp á ávaxta- og grænmetishressingu í áskrift.
Morgunverður
Dagleg rútína hefst með morgunmat, hafragraut, sem er í boði fyrir nemendur og starfsfólk skóla áður en kennsla hefst, eða um 10-15 mín. áður en fyrsta kennslustund hefst. í boði er þorskalýsi eða krakkalýsi. Engar skráningar eru fyrir þátttökunni og mæting frjáls en bærinn kaupir ákveðið magn á hverjum degi fyrir starfsfólk og nemendur eftir þörfum.
Holtasel
Fimmtudaginn 22. ágúst er starfsdagur í Holtaseli og því verður lokað þann dag. Föstudaginn 23. ágúst er opnað á venjulegum tíma eftir skóla fyrir þá sem eru skráðir og búnir að fá samþykkta umsókn.
Síminn í Holtaseli er 534-0200 og hægt er að hringja í hann þegar starfið hefst á daginn, einnig er hægt að hringja í vinnusíma deildarstjóra 664-5778.
Reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar
Til forsjáraðila í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Frá haustinu 2019 taka við samræmdar reglur um skólasókn, þ.e. um fjarvistir/seinkomur, brottrekstra úr tímum og leyfi/veikindi nemenda, í grunnskólum Hafnarfjarðar. Þær reglur eru kynntar sérstaklega í viðhengi.
Tilgangur þess að samhæfa reglur um skólasókn í grunnskólunum og viðbrögð við þeim er margvíslegur. Í því felst að það sé ekki mismunandi eftir skólum hvernig sé brugðist við minnkandi skólasókn nemenda og það sem stundum er nefnt „skólaforðun“ ef fjarvistir frá skóla stafa ekki af lögmætum ástæðum. Grunnskólanemendur á Íslandi eru skólaskyldir en forsjáraðilar hafa samt alla stjórn á að fá leyfi fyrir börn sín. Forsjáraðilar fá hér mikið frelsi og um leið mikla ábyrgð. Reynslan sýnir að leyfum nemenda fjölgar og starfsfólk skóla sér aukna tilhneigingu til að ekki séu alltaf fullnægjandi ástæður sem liggja til grundvallar. Þess vegna þarf skólasamfélagið í Hafnarfirði að bregðast við með því að samhæfa viðbrögð við aukningu fjarvista í grunnskólanámi.
Góð mæting í skóla er viðamikill þáttur í farsælli skólagöngu og vellíðan barna og unglinga. Að missa ítrekað úr kennslustundir, t.d. í lestri á yngra stigi eða stærðfræði á eldri stigum, getur haft áhrif á námsárangur. Miklar fjarvistir úr skóla geta verið kvíðavaldandi fyrir börn eða unglinga og haft þau áhrif á þróun skólaforðunar og versnandi námsángur þegar þau missa ítrekað úr námi.
Starfsfólk skóla í Hafnarfirði hefur áhyggjur af minnkandi skólasókn og fjölgun nemenda sem teljast falla undir skilgreiningar um skólaforðun. Í reynd eru allar fjarvistir frá skóla óheppilegar af ýmsum ástæðum og því er ekki gerður greinarmunur á fjarvistardögum þótt greinarmunur sé gerður á tilefni fjarvista. Eftir því sem skólasókn fer minnkandi taka við aukin viðbrögð af hálfu skóla til að koma sem lengst í veg fyrir að námsárangur nemenda versni vegna slakrar skólasóknar og vanlíðan aukist.
Meginefni reglanna er:
1. AÐ VIRÐING SÉ BORIN FYRIR SKÓLASÓKN
Allt skólasamfélagið (forsjáraðilar, nemendur, starfsfólk skóla) verður að bera virðingu fyrir mikilvægi skólasóknar alla 180 skóladaga nemenda í grunnskóla á hverju skólaári.
2. AÐ SKÓLA BERI ENGIN SKYLDA TIL SÉRSTUÐNINGS VEGNA LEYFA
Starfsfólk skóla ber ekki skylda til að þjónusta einstaka nemendur sérstaklega vegna fjarvista frá skóla, hverju nafni sem þær nefnast, og skulu forsjáraðilar ekki óska eftir slíkri þjónustu (t.d. að kennarar gefi út sérstaka heimavinnu eða skilaboð þegar um er að ræða persónuleg leyfi fjölskyldna).
3. AÐ SKRÁÐ SÉ RAUNSKÓLAMÆTING Í LOK SKÓLAÁRS Á VITNISBURÐARBLAÐ NEMANDA
Allar fjarvistir, hverju nafni sem þær nefnast, búa til eina raunmætingareinkunn sem gefin er á vitnisburðarskírteini nemenda í lok skólaárs, sem prósentuhlutfall af skólasókn yfir skólaárið.
4. AÐ GEFIN SÉ ÁRLEG LOKAEINKUNN (A-D) VEGNA SKÓLASÓKNAR Á VITNISBURÐARBLAÐ
Ástundun sem snýr að fjarvistum, seinkomum og brottrekstri úr kennslustundum mynda á einu skólaári skólasóknareinkunn sem hver nemandi fær á matskvarðanum A, B+, B, C+, C og D í samræmi við kvarða (sjá fylgiskjal póstsins).
5. AÐ VIÐBRÖGÐ SKÓLA OG BARNAVERNDAR VIÐ MINNKANDI SKÓLASÓKN SÉU SAMHÆFÐ
Þótt forsjáraðilar hafi víðtækar heimildir til að tilkynna veikindi og leyfi frá skóla munu skólar bregðast við öllu slíku sem „fjarvistum“ óháð tilefni, í samræmi við reglur. Allar fjarvistir frá skóla eru óheppilegar og miklar fjarvistir (umfram 10% kennslutímans eða 18 skóladaga á skólaári) geta hamlað námsárangri barna. Það er skylda nemenda að mæta í skóla nema að löggild forföll hamli. Umræddar reglur gilda um alla grunnskóla Hafnarfjarðar jafnt og færast með nemendum flytji þeir á milli skóla innan Hafnarfjarðar á skólaárinu.
Skrifstofa fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Aðalfundur foreldrafélagsins
Stjórn foreldrafélgsins.
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/