HÚSBRÉFIÐ
11. ÁRG., 18. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 25. - 31. JANÚAR
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR
Nemendaverndaráðsfundur í Bs kl. 8:30
Fundur kl. 13:45 - 14:30 vegna lokaverkefnis í 10. bekk - allir kennarar í 10. bekk og verkgreinakennarar
Stjórnendafundur kl. 14:45
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR
Nemendaverndaráðsfundur í Hs kl. 8:15
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR
Fagfundir í stærðfræði - Dagur stærðfræðinnar verður 5. febrúar
Deildarfundir í hvoru húsi kl. 14:30 - undirbúningur fyrir smiðjudaga í Bs
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR
Stjórnendafundur kl. 14:45
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR
TAKK FYRIR VIKUNA OG GÓÐA HELGI :)
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Fræðslufundur fyrir foreldra pólskra nemenda í GRV verður haldinn á Bæjarbókarsafninu mánudaginn 25. janúar kl. 16:15.
- Allir lesa, landsátak hófst 22. janúar og lýkur á konudaginn 21. febrúar.
- Lesskimun á vegum Menntaálaráðuneytisins verður lögð fyrir í 1.-10. bekk á tímabilinu 20. janúar til 29. janúar.
- Þróunarhópur um Heilsueflandi grunnskóla hefur fengið Héðinn Unnsteinsson til að halda fyrirlestur fyrir allt starfsfólk GRV miðvikudaginn 3. febrúar, nánar auglýst síðar. Fyrirlesturinn fjallar um geðheilbrigði.
- Könnunin "Ungt fólk" fyrir 5. -10. bekk verður í vikunni 1.-5. febrúar
- Lífshlaupið hefst 3. febrúar, hvetjum allt starfsfólk til að vera með. Lífshlaupið er heilsu-og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Grunnskólakeppni í tvær vikur en vinnustaðakeppni í þrjár vikur.
- Dagur stærðfræðinnar er 5. febrúar.
- Þorrablót fyrir 1. - 5. bekk verður mánudaginn 8. febrúar.
- Öskudagurinn er 10. febrúar.
- Þemadagar á unglingastigi 9. -11. febrúar, árshátíð 11. febrúar.
- Vinnustund, www.vestmannaeyjar.vinnustund.is, hvetjum starfsfólk til að kynna sér kerfið.
Gáta vikunnar
Veganafn sá varla ber,
á veiðarfæri neðstur er,
margur kjóllinn hefur hann,
og heiti yfir latan mann.
Svar við síðustu gátu
Hyrna
5. lína - Þórunn hyrna
Spakmæli vikunnar
Heilsueflandi grunnskóli
Í góðum gír
Matsalur í Bs
Penne með bláum Höfðingja og sveppum, valhnetum og perum
Fyrir 4
5 msk smjör, 3 msk hveiti, 6½ dl matreiðslurjómi
1 stk Höfðingi, blár, svartur pipar, 500 g penne
250 g sveppir, skornir í sneiðar, 8 stk beikonsneiðar, saxaðar
1 stk pera, kjarnhreinsuð og gróf rifin, 2 msk valhnetur, saxaðar
Aðferð:
1. Bræðið 2 msk af smjöri í potti og hrærið hveiti vel saman við. Hellið matreiðslurjóma út í, smátt og smátt. Látið sjóða og takið af hellunni.
2. Takið hvíta lagið varlega af ostinum og fleygið. Saxið ostinn og bætið honum saman við sósuna. Látið hann bráðna saman við. Hærið og smakkið til með pipar. Geymið.
3. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Á meðan steikið sveppi og beikon upp úr 3 msk af smjöri. Setjið út í sósuna.
4. Blandið pastanu varlega saman við sósuna og setjið á stórt fat eða fjóra diska. Toppið með rifinni peru og valhnetum.
Þetta er víst "sjúklega" gott eins og konan sagði.