DJÚPAVOGSSKÓLI

HUGREKKI - VIÐRING - SAMVINNA

FEBRÚAR 2023

19.febrúar er konudagur.

20.febrúar er Bollu/gestadagur.

21.febrúar er Sprengidagur.

22.febrúar er Öskudagur og skertur dagur og dagurinn þar sem tilkynnt verður hver gerir hvað í árshátíðarvinnunni.

23.febrúar er vetrarfrí.

24.febrúar er vetrarfrí.

NÆSTA VIKA

Mánudagur 20.febrúar - Bollu- og gestadagur.

  • Mætum hress og kát eftir gott helgarfrí með rjómabollu í nesti.
  • Í dag er gestadagur vonandi kíkja sem flestir í heimsókn til okkar. Mikið af skemmtilegum verkefnum til sýnis á göngum skólans.


Þriðjudagur 21.febrúar - Sprengidagur

  • 14:20 - 15:50 Teymisfundur

Fræðslustjóri og verkefnastjóri mannauðs í Múlaþingi í heimsókn í Djúpavogsskóla.


Miðvikudagur 22.febrúar - Öskudagur - Skertur dagur á mið- og unglingastigi.

Búningadagur, nemendur og starfsmenn mæta í búningum.


  • 8:05 - 13:00 Skemmtileg Öskudags dagskrá sem nemendaráð setti saman.
  • 13:00 - 13:20 Tilkynnt hver gerir hvað í árshátíðarvinnu, leikarar taka handrit með sér heim.


Fimmtudagur 23.febrúar - Vetrarfrí


Föstudagur 24.febrúar - Vetrarfrí


Kennsla hefst aftur mánudaginn 27.febrúar samkvæmt stundarskrá.

MYNDIR OG FRÉTTIR

Í Djúpavogsskóla vinnur einstaklega lausnarmiðaður hópur og þrátt fyrir sérlega flókna forfalla viku tókst okkur að halda uppi fjölbreyttri og skapandi kennslu, eins og meðfylgjandi myndir sýna.



  • Elstu nemendur í leikskólanum komu í heimsókn með Þórdísi og Auði. Það var ekki annað að sjá en þau væru spennt að koma í stóra skólann eins og einhver kallaði það :)


  • Unnur og hennar nemendur halda áfram að vinna með landnámsmennina í Múlaþingi, frábært verkefni sem er til sýnis á ganginum á yngstastigi.


  • Nemendur á unglingastigi eru að læra um listastefnur og strauma hjá Hildi. Í lok vikunnar kynntu þeir verkefnin sín. Þessi verkefni er líka til sýnis á gangi skólans.


  • Obba var með kynningu á nýjum barnabókum.


  • Nemendur á yngstastigi lærðu margt skemmtilegt í upplýsingatækni hjá Hönnu og ýmislegt um mannslíkamann og fjölbreytt verkefni í gegnum leiki. Mikið af flottum verkefnum til sýnis á yngstastigi.
Big picture
Big picture
Big picture

Þeir eru fleiri á veggjum skólans, endilega kíkið við og heilsið upp á þá.

Big picture
Big picture
Big picture
Big picture

ÖSKUDAGUR OG LENGD VIÐVERA

Öskudagur er skertur dagur á skóladagatali.

Allri kennslu líkur kl.13:20 en þá tekur við hefðbundið starf í lengdri viðveru við á Helgafelli fyrir nemendur í 1. - 3.bekk.


Á þessum degi er hefð fyrir því að börn fari með foreldrum eða eldri systkinum og syngi á vinnustöðum eftir skóla.


Það er mjög mikilvægt að foreldrar láti Viktoríu vita hvort að nemendur ætli að nýta sér lengda viðveruna á þessum degi.

NÆSTU SKREF Í ÁRSHÁTÍÐARVINNU


  • Nemendur í 10.bekk samlesa handritið á mánudaginn og gera loka breytingar.
  • Obba og Íris Dögg prenta út handrit á þriðjdag.
  • Nemendur eru byrjaðir að syngja lögin í daglegri samveru.
  • Vinna í list- og verkgreinum hefst í mars.
  • Nemendur hafa merkt við valblaðið og það er verið að vinna úr því.
  • Obba er ábyrgðarmaður og Íris Dögg er leikstjóri.
  • Starfsmenn eru að raða sér niður á árshátíðar verkefni og stöðvar.
  • Nemendur fá að vita hvað verkefni þeir fá úthlutað kl. 13:00 á Öskudaginn og leikarar taka með sér handrit.
  • Mesta árshátíðarvinnan fer fram í mars.
  • Það verður ein sýning sem allir taka þátt í og hún verður 23.mars.
  • 24.mars er frágangsdagur.

Bestu kveðjur til ykkar.

Starfsfólk Djúpavogsskóla.