Upplýsingar af ýmsum toga
Upplýsingar tengdar lífi, námi og kennslu í skólalokun
Upplýsingaflæði í skólalokun
Vinnustofur
Snara
Á meðan á samkomubanninu fá nemendur gjaldfrjálsan aðgang að vefnum Snöru. Snara er verkfæri fyrir tugi orðabóka og uppflettirita. Nemendur VA hafa fengið sendan gestalykil í tölvupósti og geta með honum fengið aðganginn í gegnum hvaða tæki sem er.
Skilaboð frá Salóme íþróttakennara - hreyfing
Nemendur eiga þó að skila einum 40 - 50 mínútna hreyfingartíma á viku.
Salóme íþróttakennari hvetur nemendur til að hreyfa sig meira en það, skella sér út að hreyfa sig því það er svo mikilvægt að standa upp og fá sér ferskt loft og koma endurnærður aftur inn í ,,skólastofuna".
Möguleikar til að skila hreyfingatímum á Kennsluvefinn til Salóme svo þeir komi inn í námsmat áfanganna:
- Hægt er að nýta heilsuapp og skila skjáskoti af hreyfingu sem appið sýnir
- Hægt er að fara í ræktina og biðja starfsmann að kvitta fyrir mætingu - nóg er að starfsmaður skrifi nafn sitt og dagsetningu á blað og þið skilið síðan mynd af því.
Hafið í huga að gaman getur verið að hreyfa sig saman! Um að gera að finna sér ,,hreyfingarfélaga".
Salóme hefur breytt námsmati í hreyfingu í ljósi þeirra aðstæðna sem við stöndum nú frammi fyrir. Á meðan skólinn er lokaður verður virkni aðal námsmatsþátturinn - þ.e. að nemendur skili inn staðfestingu á hreyfingu í hverri viku.
Sendið Salóme línu ef eitthvað er óljóst - salome@va.is