Föstudagspóstur 24. janúar 2020
4. og 5. bekkur
Fréttir úr skólastarfinu
Það ber hæst í skólastarfinu þessa daga að við byrjuðum nýja þemað okkar um plánetunar og eru nemendur mjög áhugasamir um það. Á þriðjudaginn unnum við ýmis verkefni tengd þemanu, nemendur mótuðu meðal annars pláneturnar með pappamassa sem verður síðan málaður og hengdur upp miðsvæðis. Við höfum einnig skoðað fræðsluefni á Internetinu þar sem hægt er að finna mjög skemmtileg og fræðandi myndskeið um plánetur og annað tengt himingeimnum.
Í vikunni sendum við verkefni heim með nemendum sem við viljum biðja ykkur að skoða með börnunum ykkar.
Við minnum á að hægt er að skoða niðurstöður námsmats sem skráð hefur verið í Mentor.
Foreldraviðtöl
Við viljum minna ykkur á að panta viðtalstíma.
Gleðilegan bóndadag Velkominn sértu þorri
Himingeimurinn
Góða helgi og takk fyrir vikuna
Aníta, Atli, Fannar, Gréta, Margrét, Kristín og Þóra
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/