Flataskólafréttir

Skólaárið 2020-2021 - 1. desember 2020

Kæra skólasamfélag!

Það er útlit fyrir að skólastarfið í jólamánuðinum verði með nokkuð ólíku sniði en vant er enda ljóst að sóttvarnaraðgerðir sem snúa að leik- og grunnskólum verða óbreyttar um sinn. Við sleppum því áfram morgunsöng og fjölvali auk þess sem við hleypum færri nemendum í einu í matsalinn og þurfum að "skammta nemendur" í íþróttasal og sundlaug. Lítið verður því úr föstum liðum í desember eins og sameiginlegu jólaþema og heimsóknum rithöfunda, hátt í 500 radda himneskur samsöngur jólalaga bíður kannski næsta árs og það er hætt við að dans í kringum jólatréð verði heldur fámennur þetta árið. En við lögum okkur auðvitað bara að aðstæðum eins og hægt er og gerum gott úr þessu. Fastir liðir eins og matarsöfnun nemenda halda sér, rithöfundar heimsækja okkur rafrænt, hinn árlegi helgileikur 5. bekkjar verður tekinn upp og sýndur þannig og auðvitað er eitt og annað gert í bekkjardeildum og árgöngum til að komast í réttu stemminguna þennan mánuðinn. Síðasti skóladagur fyrir jólafrí nemenda er 18. desember og þá er venjan að hafa stofujól og dansa í kringum jólatréð. Við sjáum aðeins til hverju fram vindur áður en við ákveðum skipulag þess dags en það verður að venju stuttur dagur hjá nemendum. Með von um ljúfa aðventu á heimilum sem í skóla.


Bestu kveðjur!

Ágúst skólastjóri

Helstu viðburðir framundan

  • 7.-11. des Matarsöfnunarvika (sjá hér fyrir neðan)
  • 10. des Hátíðarmatur (sjá hér fyrir neðan)
  • 10. des Jólalegur dagur - jólalegir nemendur (húfur eða peysur eða klæðin rauð..)
  • 11. des Þakkadagur vinaliða áformaður
  • 18. des. - Jólaskemmtanir og jólafrí hefst (nánar auglýst síðar)
  • 4. jan. - Kennsla hefst að loknu jólafríi skv. stundaskrá

Matarsöfnun í 2. viku desember

Í Flataskóla hefur skapast sú hefð að safna matvælum í desember sem síðan er komið til Mæðrastyrksnefndar og þannig áfram til þeirra sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólahátíðina. Með þessu fá nemendur tækifæri til að láta gott af sér leiða og sýna samhug í verki. Við hvetjum því til að einhvern morguninn í vikunni 7.-11. desember komi nemendur með einhver matvæli sem þola geymslu og fari með þau inn í sal skólans þar sem þeim er safnað saman. Athugið að þetta er ekki skylda og ekki þarf að vera um dýran varning að ræða því að margt smátt gerir eitt stórt!

Hátíðarmatur 10. desember

Fimmtudaginn 10. desember verður boðið upp á hátíðarmáltíð í skólanum fyrir alla áskrifendur. Í ár er boðið upp á hunangsristaðar kalkúnabringur, hátíðarmeðlæti og sósu ásamt ísblómi í eftirrétt. Veganrétturinn verður Oumph Wellington ásamt hátíðarmeðlæti og sósu og ís í eftirrétt

Þeir sem ekki eru í áskrift en óska eftir að taka þátt í hátíðarmáltíðinni geta keypt sérstaka matarmiða í mötuneyti skólans frá 2.-8.desember milli kl.9-11. Miðinn kostar 800 kr. og aðeins er hægt að greiða með peningum.

Nemendur sem eiga venjulega matarmiða geta skipt miðunum út í mötuneyti skólans fyrir hátíðarmiða.

Nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu Skólamatar, Sími: 420-2500 eða á skolamatur@skolamatur.is

Frá Krakkakoti

Nú er desember genginn í garð og þá opnum við fyrir skráningu á jólaopnuninni í Krakkakoti. Opið verður þrjá daga fyrir jól, þann 21., 22. og 23. desember, og þrjá daga milli jóla og nýars, 28., 29. og 30. desember.


Opnunartíminn verður með örlítið breyttu sniði en það verður opið hjá okkur frá 08:00-16:30.

Skráningu þarf að senda á tomstundaheimili@flataskoli.is og verður síðasti skráningardagur 11. desember. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann dag og ekki er tekið á móti óskráðum börnum. Mikilvægt er að taka fram hvaða daga þið viljið nýta ykkur fyrir barnið ykkar og þá einnig tímasetninguna. Tek einnig fram að börnin þurfa að muna að taka með sér morgunkaffi og hádegismat en við munum svo bjóða þeim upp á síðdegishressingu.


Hlýjar og góðar kveðjur,

Saga Steinsen

Forstöðukona Krakkakots

Viðbrögð við óveðri

Nú er kominn sá árstími að allra veðra er von og því rétt að vekja athygli foreldra á upplýsingum sem varð viðbrögð við óveðri. Skólastarf fellur ekki niður nema tilkynnt sé um það sérstaklega. Í upphafi skóladags getur í verstu veðrum tafist að fullmanna skóla og mega forsjáraðilar þá búast við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra.

Forsjáraðilar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í eða úr skóla vegna veðurs, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti forsjáraðilar aðstæður svo að ekki sé óhætt fyrir börn þeirra að sækja skóla skulu þeir tilkynna skólanum um það sem lítur þá á tilvikið sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða forsjáraðilar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa. Nánari upplýsingar um viðbrögð við óveðri má finna hér.

Jóladagatal Samgöngustofu

Jóladagatal Samgöngustofu hefur að venju göngu sína 1. desember. Að þessu sinni er spurt úr þáttunum Úti í umferðinni þar sem Erlen umferðarsnillingur rifjar upp helstu umferðarreglurnar. Á hverjum degi birtist ný spurning sem hægt er að svara og um leið komast í verðlaunapott en tveir heppnir þátttakendur eru dregnir út á hverjum degi og fá þeir veglegan endurskinspoka sendan heim.

Auk þess geta þátttakendur merkt svör sín með nafni bekkjar og skóla en þannig kemst bekkurinn í sérstakan bekkjarverðlaunapott. Að lokum verður svo einn heppinn bekkur dreginn út og hlýtur hann að launum nokkur skemmtileg borðspil, pítsuveislu og óvæntan glaðning fyrir umsjónarkennarann.

Við hvetjum nemendur og bekki til að taka þátt í jóladagatalinu, sem er í senn skemmtilegt og fræðandi ☺

Skráningar aðstandenda í mentor

Við biðjum forráðamenn að athuga stillingar sínar í mentor til að aðstandendur geti örugglega sent póst í gegnum kerfið á þá sem vilja hafa þann möguleika. Þetta á t.d. við þegar foreldrar vilja senda afmælisboð o.þ.h. í gegnum kerfið. Vegna persónuverndarsjónarmiða þarf hver og einn að breyta sínum stillingum svo að þetta sé hægt. Hér fyrir neðan er að finna útskýringar á hvernig þetta er gert.
Big picture

Bílastæði - varúð!

Á morgnana verður oft mikill umferðarþungi við bílastæði skólans og mikillar varúðar þörf. Við hvetjum að sjálfsögðu til þess að sem flestir nemendur gangi eða hjóli í skólann og biðjum forráðamenn að skoða hvort þeir séu kannski að aka börnum sínum að óþörfu og taka þannig af þeim bráðholla hreyfingu! Hina sem af ýmsum ástæðum þurfa að aka börnum sínum biðjum við um að sýna varúð og tillitssemi. Leggja í stæði ef þeir þurfa að staldra við og fylgja börnunum að dyrum en nota annars sleppistæðin. Með minnkandi dagsbirtu er síðan enn mikilvægara en áður að aka mjög hægt og varlega í gegnum bílastæðasvæðið.

Nýja hringtorgið á Vífilsstaðaveginum hjálpar okkur með að ekki myndast eins miklar stíflur og áður út af svæðinu, búið er að merkja sleppistæði og skammtímastæði en samt verður stundum varasamt ástand hjá okkur sem við getum lagað ef allir sýna varkárni og tillitssemi.

Skólamatur - áskrift

Við minnum á að breytingar á mataráskrift þarf að tilkynna fyrir 25. dag hvers mánaðar ef þeirra er óskað. Með því að smella á hlekkinn hér fyrir ofan má nálgast skráningarsíðu og áskriftarskilmála.

Opnunartími skrifstofu - skráningar fjarvista

Skrifstofa skólans er opin:
Mánudaga – fimmtudaga frá kl: 7:45 – 15:00.
Föstudaga frá kl. 7:45-14:30


Mælst er til að foreldrar/aðstandendur skrái veikindi nemenda á Fjölskylduvef Mentor.is eða með Mentor appinu.
Auk þess er hægt að tilkynna forföll á skrifstofu skólans með tölvupósti á netfangið flataskoli@flataskoli.is eða í síma 513 3500. Vakin er athygli á að ef veikindi vara lengur en einn dag skal tilkynna daglega.

ATH - ef nemendur þurfa að fara í sóttkví biðjum við nemendur um að tilkynna það með tölvupósti á flataskoli@flataskoli.is


Leyfisbeiðnir fyrir nemendur

Nemendum er veitt leyfi til að sinna nauðsynlegum erindum. Mælst er til að leyfisbeiðnum sé haldið í lágmarki og jafnframt eru foreldrar/forráðamenn beðnir um að fara fram á þær með góðum fyrirvara sé þess nokkur kostur. Foreldrar eru beðnir um að sækja um leyfi hjá skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra ef óskað er eftir leyfi meira en tvo daga, (umsókn um leyfi) annars nægir að fá leyfi hjá umsjónarkennara.