Vikupistillinn
Tímabilið 4. - 10. mars 2019
Punktar
- Muna að skila vikuáætlunum inn á sameign í möppuna „Áætlanir/Vikuáætlanir“.
- Leikstjórar í miðdeild, sjá skipulag vorannar.
- Leikstjórar í 3. og 4. bekk, sjá skipulag vorannar.
- Starfmannasamtölin eru nú að hefjast, sjá skipulag hjá stjórnendum.
- Á næstu dögum hefja stjórnendur innlit sitt í kennslustundir. Þeir munu boða komu sína með smá fyrirvara og senda kennurum tölvupóst.
- Munum eftir að leggja inn HÆTTU, GAKKTU, SEGÐU FRÁ, sjá Stöndum saman lesefni, kynning frá starfsmannafundi. Það má einnig nálgast í SMT möppunni. Stjórnendur munu koma í stofur með blað til að hengja upp í öllum heimastofum.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið - hér má nálgast nemendaviðtalsblað fyrir sérgreinakennara. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu nemandans.
- Widgit Online er er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagurinn 4. mars
- Bolludagur :-)
- Nemendur í 7. bekk fara að Reykjum. Bjarnheiður og Sigurborg umsjónarkennarar fara með bekkjunum sínum sem og Elías Kristinn.
- Verið - elsta deild - Ungmennaþing Hafnarfjarðar.
Þriðjudagurinn 5. mars
- Sprengidagur :-)
- Samvera í miðdeild.
- Nokkrir nemendur í 10. bekk fara á kynningu hjá Landspítalanum sem er frá kl. 9:30 - 11:30.
- Nemendur í 10. bekk fara í heimsókn í Flensborgarskólann kl. 13:00 - 14:00.
- Á fundatíma er teymisfundur.
Miðvikudagurinn 6. mars
- Öskudagur, sjá dagskrá hér. Allir mæta í búningi :-) Dagskrá er frá 8:20 - 11:20.
- Gistinótt á skólasafninu. Komdu með bangsann þinn á skólasafnið, sjá nánar í auglýsingu á safninu.
- Fundur nemendaverndarráðs kl. 13:00.
- Verið - miðdeild - origami.
- Verið - elsta deild - origami.
Fimmtudagurinn 7. mars
- Á fundatíma er kennarafundur.
Föstudaginn 8. mars
- Forinnritun í framhaldsskóla hjá nemendum í 10. bekk hefst.
- Fundur hjá eineltisteyminu kl. 13:30.
- Verið - miðdeild - pógómót.
- Verið - elsta deild - kökuskreytingakeppni.
Frábær konudagsgleði hjá köllunum
Þeir gleymdu okkur ekki stelpur :-)
Frábær konudagsgleði hjá köllunum
Nýir nemendur
Það eru nokkrir nemendur sem eru að byrja hjá okkur í skólanum á mánudaginn 4. mars, en þeir eru:
- Ríkarður Magni Helgason sem fer í 2. RAG en hann kemur úr Lágafellsskóla
- Lilja Kolbrún Eiríksdóttir sem fer í 3. MI en hún kemur úr Sæmundarskóla
- Bjarki Hrafn Eiríksson sem fer 6. EBJ en hann kemur újr Sæmundarskóla
- Alexandra Kristín Eiríksdóttir sem fer í 8. MK en hún kemur úr Sæmundarskóla
- Þórður Örn Hauksson sem fer í 6. SL en hann kemur úr Háaleiti sem er skóli á Reykjanesi.
Fréttir frá Bjargi
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Upplestrarhátíð nemenda í 7. bekk
Upplestrarhátíð nemenda í 7. bekk
Upplestrarhátíð nemenda í 7. bekk
Upplestrarhátíð nemenda í 7. bekk
Upplestrarhátíð nemenda í 7. bekk
Upplestrarhátíð nemenda í 7. bekk
Frábær samvera hjá nemendum í 4. bekk
Frá samveru yngstu deildar
Frá samveru yngstu deildar
Afmælisdagar í mars
Andrea á afmæli þann 9. mars, Íris þann 10. mars, Kristján B. þann 12. mars, Freyja þann 14. mars, Guðrún Árný þann 23. mars og Nína þann 27. mars. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á döfinni
- Við erum að vinna að heilsuhorni.
- Kennaraneminn Tinna Líf Baldvinsdóttir sem er á 3. ári, verður hjá Ingu Völu og 3. IVJ frá lok janúar til loka mars.
- Forinnritun nýnema sem eru að útskrifast úr 10.bekk er 8. mars – 13. apríl.
- Samræmd könnunarpróf verða hjá nemendum í 9. bekk þann 11., 12. og 13. mars.
- Þann 12. mars kl. 10:00 er fundur hjá leikstjórum í miðdeild í stofu 36.
- Fræðslan Sjúk Ást verður fyrir nemendur í elstu deild. Fyrir nemendur í 8. og 10. bekk þriðjudaginn 12. mars kl. 12:50 og fyrir nemendur í 9. bekk fimmtudaginn 14. mars kl. 10:55. Fræðslan fer fram í fyrirlestarsalnum.
- Á fundartíma þann 12. mars verður Kristrún með seinni hlutann af erindinu frá því á starfsdaginn í fyrirlestarsalnum.
- Miðvikudaginn 13. mars eru leikstjórar á leikjanámskeiði frá kl. 8:20 - 11:20.
- Þann 15. mars fara nemendur í 9. og 10. bekk á Íslandsmótið í iðn- og verkgreinum og framhaldsskólakynningu.
- Fimmtudaginn 14. mars eru leikstjórar í 3. og 4. bekk á námskeiði í stofu 36.
100 - miðaleikurinn hefst þann 18. mars og lýkur þann 22. mars.
Þann 20. mars fara nemendur í 4. og 5. bekk á List fyrir alla í Bæjarbíó.
Þann 20. mars er Skólahreystikeppnin í íþróttahúsinu að Ásvöllum.
Þann 21. mars kl. 14:00 - 15:30 er stærðfræðikeppni grunnskólanna í Hafnarfirði haldin í Flensborgarskólanum. Keppnin er ætluð fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.
Þann 25. mars er fræðslufundur sem fer fram í Álfhólsskóla þar sem grunnskólakennarar kynna skólaheisóknir sínar í skandinavíska grunnskóla. Þess má geta að Margrét Ýr mun halda erindi á þessum fundi.
Þriðjudaginn 26. mars er fundur hjá leikstjórum kl. 10:00 í stofu 36.
Þann 26. mars er boðsundskeppni grunnskólanna í Laugardalslaug.
Þann 26. mars kl. 12:40 fá nemendur í 10. bekk fræðslu frá Fjármálaviti.
Nemendur í 10. bekk fara á Skólaþing, 10. SB þann 2. apríl og 10. GB þann 5. apríl.
Námskeið á vegum Fræðslu- og frístundasviðs
- UT menntabúðir - jafningjafræðsla - samræða - tengslanet. Verður haldið í Víðistaðaskóla mánudaginn 11. mars kl. 14:30 - 16:00.
Námslotur í InfoMentor
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200