Föstudagspóstur
Vikan 11.- 15. maí
Kæru foreldrar/forráðamenn
Við fengum skemmtilegar fréttir í vikunni en hún Gyða Marín vann í eldvarnargetraun slökkvuliðsins. Þetta er getraun sem allir nemendur í 3. bekk á landinu taka þátt í.
Við óskum henni til hamingju með vinninginn !
Í næstu viku höldum við áfram að vinna í Eyjafjarðarþemanu. Við verðum mikið úti og því mikilvægt að vera alltaf með föt til útivistar. Í þessu þema munum við gera ýmislegt skemmtilegt, við ætlum að heimsækja Listasafnið fimmtdaginn 14. maí. Þá verður gengið í bæinn og nesti borðað úti, við munum svo taka strætó heim.
Við byrjuðum á því að lestrarprófa í vikunni og munum halda áfram með það í næstu viku. Við lögðum fyrir ýmis námsmatverkefni og höldum áfram með það á næstu vikum. Nemendur munu einnig taka með heim ýmis verkefni og námsbækur sem þeir hafa lokið á önninni.
Föstudaginn 15. maí er dótadagur í Naustaskóla og þá mega nemendur koma með leikfang í skólann.
Góða helgi !
2. og 3. bekkjarteymið