Upplýsingaver Garðaskóla
2. janúar 2023
Nýjar jólabækur
Keyptum nokkrar jólabækur fyrir jólin og nemendur gátu skoðað þær og settu vonandi einhverjar á óskalistann sinn.
Jólabókakynning
Jólabækurnar voru til sýnis í desember á safninu.
Fleiri jólabækur
Nú geta nemendur fengið jólabækurnar að láni :)
Pólskar og spænskar bækur (Books in polish and spanish)
Nú eru komnar nokkrar bækur á pólsku og spænsku fyrir þá nemendur sem eru pólsku eða spænsku mælandi. Ætlunin er að kaupa fleiri bækur sem henta betur unglingum.
(Now we have few books in polish and spanish for our polish and spanish speaking students. We plan to buy more books for teenagers :)
Þorgrímur Þráinsson kom og hélt fyrirlestur fyrir 10. bekk
Á læsisdeginum 19. desember kom Þorgrímur Þráinsson og hélt fyrirlestur um það sem skiptir máli í lífinu. Þorgrímur fer í flest alla skóla landsins með fyrirlestur sinn. Nemendur voru mjög stilltir og prúðir :) Litlir hlutir ALLA DAGA skapa stóra sigra!
Ég er með þessum fíflum
Endurskinsmerki voru í boði á safninu í desember.
Ertu gæludýr símans þíns?
Samgöngustofa og Garðabær gáfu skólanum endurskinsmerkin.
ADHD
Nemendur voru duglegir að ná sér í merki og vonandi eru þau öll komin á úlpurnar þeirra.
Bókasafnið komið í jólafötin
Safnið var skeytt að venju fyrir jólin. Skárum út í vínilskeranum kransa og stjörnur og skeyttum glerið í anddyrinu.
Fréttabréf Upplýsingavers 2022-23
Hönnunarklúbburinn
Nú eru nemendur að hanna ´Fermingarkassa´ sem við ætlum síðan að skera út í Fab lab í byrjun mars. Kassinn verður þá notaður í fermingarveislunni fyrir peningaumslög. Nemendur skreyta kassann sinn eins og þeir vilja og síðan er settur lás á hann þannig að hann sé læstur í veislunni :). Kassinn verður málaður í lokin í þeim lit sem hver og einn vill. Sýni ykkur kassana þegar þeir eru tilbúnir.
Opnunartími Upplýsingavers
Mán. 8:10-15:30
Þriðjudaga: 8:10-14:30
Miðvikudaga: 8:10-15:30
Fimmtudaga 8:10-15:30
Föstudaga: 8:10-14:30
Email: gardaskoli@gardaskoli.is
Website: gardaskoli.is
Location: Vifilsstaðavegur V., Gardabaer, Iceland
Phone: 590 2500
Facebook: https://www.facebook.com/profile.php?id=100054648660252