Stiklur
...síðbúnar...
Sund
Á morgun er síðasti tími seinna sundholsins... fyrstu bekkingar eru hins vegar að byrja sitt námskeið...það hefst í dag og verður út næstu viku...
Heilsufarsskoðanir
Í dag og á morgun fer fram heilsufarsskoðun fyrir starfsfólk, ef þið hafið ekki skráð ykkur þá endilega lítið á skráningarblaðið inn á kaffistofu...
Þjóðleikur
Á fimmtudaginn fór fram Þjóðleikur á Egilsstöðum. Okkar hópur, undir stjórn Þórfríðar, stóð sig mjög vel.
Hópafundir
Þriðjufundadagurinn verður helgaður hópunum...tilvalið að fara yfir veturinn og undirbúa skýrslugerð sem senda má svo til mín... :)
Bekkjarmyndatökur
Eitt af vorverkunum eru myndatökur. Líkt og undanfarin ár kemur Myndsmiðjan og myndar fyrsta, fjórða, sjöunda og tíunda bekk. Ég minni umsjónarkennara þeirra bekkja að senda leyfisbréfið heim vegna myndatökunnar...ekkert leyfi...engin mynd... :) Myndatökurnar fara fram miðvikudaginn 15. maí...