Skólastarfið eftir páska
31. mars 2021
Staðnám eftir páska
Í dag var gefin út ný reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Í henni felast ekki miklar breytingar fyrir okkur í MÍ. Við getum haft staðnám eftir páskafrí en tökum aftur upp grímuskyldu um allan skólann, líka í Gryfjunni.
Sameiginlega markmið okkar allra verður að halda skólanum opnum. Fram að þessu hafið þið kæru nemendur ásamt okkar frábæra starfsfólki staðið ykkur vel þegar kemur að sótt- og smitvörnum. Þið þurfið að halda því áfram. Við vitum öll hvað þarf að gera og við kunnum þetta - og það eru bara sjö vikur eftir fram að sumarfríi! Áfram gakk!
Fyrirkomulagið í skólanum
Fjarlægðartakmörk:
Í skólanum þurfa að vera 2 m á milli allra. Það er ekki raunhæft í skólastarfi og því verður grímuskylda í öllum skólanum, innan og utan kennslustofa.
Nauðsynlegt að spritta:
Þegar komið er inn í skólann eða inn á ný svæði þurfa allir að spritta sig. Allar kennslustofur þarf að sótthreinsa eftir hverja kennslustund.
Einstefna á sumum stöðum í skólanum:
Í stigum í bóknámshúsi er einstefna. Við förum upp hjá sjoppunni eða milli stofu 16 og 17. Við förum niður hjá kennarastofunni og stofu 8 eða milli stofu 3 og 4.
Veikindi/sóttkví/eingangrun:
Ef þú ert með flensulík einkenni vertu heima og farðu í sýnatöku. Nauðsynlegt er að láta vita af sóttkví eða einangrun á netfangið misa@misa.is
Heimavist:
Heimavistin verður opin og gestakomur leyfðar eins og segir til um í heimavistarreglum.
Opnunartími mötuneytis
Hjá ritara er hægt að kaupa staka matarmiða og 10 miða kort.
Grímuskylda
Allir, nemendur og starfsfólk, þurfa að nota grímur. Skólinn útvegar eins og áður nemendum og starfsfólki grímur sem eru staðsettar við alla innganga í skólann.
Menntaskólinn á Ísafirði
Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 450 4400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa
Twitter: @ourschool