Föstudagspóstur 4. og 5. bekkur
10. janúar 2020
Fréttir úr skólastarfinu
Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir samstarfið á liðnu ári.
Skólastarfið hefur farið vel af stað og allt er komið í fastar skorður.
Þessa dagana er unnið að miðsvetrarmati og verða niðurstöður skráðar í Mentor.
Í janúar verða nemendur lestrarprófaðir. Lagt verður fyrir sama lestrarpróf og í september og ættu því niðurstöðurnar að sýna vel stöðu nemenda í lestri. Það væri gott að leggja aukapúður í upplestur núna í janúar.
Í næstu viku verður vika Jákvæðs aga, þá munum við vinna að verkefnum um margbreytileikann, virðingu, hlustun og hrós og hvatningu.
Smiðjuskil voru í vikunni og nýjar smiðjur taka við á mánudaginn.
Foreldraviðtöl verða 27. og 28. janúar og sendum við póst þegar hægt verður að skrá tíma í Mentor.
Jákvæður agi - verkfæri
Meðfylgjandi er slóð að umfjöllun um griðastað og hvernig hann er notaður: https://www.positivediscipline.com/articles/positive-time-out-1?
Vika Jákvæðs aga
Lestur er bestur
Takk fyrir vikuna og góða helgi
Aníta, Atli, Fannar, Gréta, Kristín, Margrét og Þóra
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/