HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 17. TBL
DAGSKRÁ 23. - 27. JANÚAR
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR
Nemendaráðsfundur í BS 9:20
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR
Nemendaráðsfundur í HS 14:00
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR
Foreldrafundir - nemendur mæta með foreldrum sínum til fundar.
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR
Stjórnendafundur í Bs kl. 15:00
Skákdagur Íslands haldinn hátíðlegur, nemendur í 4. bekk verða með dagskrá
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Hinn 26. janúar nk. er Skákdagur Íslands haldinn um land allt. Skákdagurinn er haldinn á fæðingardegi Friðriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Nemendur í 4. bekk ætla að tefla á göngum Hamarsskóla.
- Foreldrafundardagur 25. janúar, nemendur mæta með foreldrum sínum.
- Lífshlaupið hefst 1. febrúar, stjórnendur skrá nemendur í keppnina. Starfsfólk þarf að setja sig í lið og liðstjórar skrá liðin inn á vefinn.
- Allir lesa - landsleikur í lestri hefst 27. janúar og stendur til 19. febrúar. Leikurinn er fyrir allla landsmenn, allir geta myndað lið. Keppnin er ekki bara liðakeppni því stóra keppnin er á milli sveitafélaga.
- Lestrarátak Ævars vísindamanns hófst 1. janúar frekari upplýsingar má finna á bókasöfnum skólans eða á http://www.visindamadur.com/lestraratak
- Dagur stærðfræðinnar verður 3. febrúar.
- Þorrablót hjá 1. - 5. bekk verður mánudaginn 13. febrúar.
- Smiðjudagar á unglingastigi 14.- 16. febrúar, árshátíð 16. feb.
Tilkynningar !!
- Lesið við sama borð - hófst aftur þriðjudaginn 17. janúar. Kennarar endilega hvetjið nemendur ykkar til að nota sér þessa aðstoð. Umsjónarmaður með þessu verkefni er Drífa Þ. Arnardóttir kennari og starfsmaður Bókasafns Vestmannaeyja. Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00.
- Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hug á að koma til Eyja með tónleika fimmtudaginn 2. mars gangi allt upp. Á að sýna Maxímús Músíkús fyrir nemendur í 1. - 4. bekk.
- Við hvetjum alla kennara til að taka myndir úr skólastofunni af verkefnum og senda á stjórnendur. Við viljum að samfélagið sjái betur það góða starf sem unnið er í GRV.
Uppskrift vikunnar - Tómata & basilsúpa
Tómata & basilsúpa
3 hvítlauksrif, pressuð
2 msk ólífuolía
800 g tómatar í dósum, niðurskornu
400 g tómatar í dósum, heilir
480 ml vatn
2 teningar kjúklinga- eða grænmetiskraftur
1 msk sjávarsalt
1 msk sykur
1/2 msk pipar
60 ml rjómi eða 1 dós kókosmjólk
3 msk fersk basilíka, söxuð
parmesan
Aðferð
- Steikið hvítlaukinn í ólífuolíu við meðalhita í potti í um 1 mínútu. Varist að brenna hvítlaukinn.
- Bætið út í niðurskornu tómötunum og því næst heilu tómötunum með því að kreista þá í pottinn, einn í einu. Látið jafnframt safann af tómötunum út í.
- Látið í pottinn vatn, kraftinn, salt, pipar og sykur.
- Látið súpuna malla við meðalhita í um 10 mínútur.
- Lækkið hitann og hrærið út í kókosmjólkinni/rjómanum og basil.
- Látið í skál og skreytið með parmesan.
Spakmæli vikunnar
Stundum getur þú ekki séð sjálfan þig skýrt fyrr en þú sérð þig með augum annara. "Ellen DeGeneres"
Vissir þú um mat og drykk #1
Tonic glóir í flúorljósi
Vissir þú um mat og drykk #2
Engifer getur minnkað verki vegna æfinga um allt að 25%
Vissir þú um mat og drykk #3
1 af hverjum 8 íbúm USA hafa unnið eða vinna hjá McDonalds
Íslenska sem annað tungumál - facebook
Mælummeð þessari facebook síðu fyrir kennara sem eru að kenna nýbúum.
GRV - fræðsla á facebook
Endilega fylgjast með á facebook síðunni GRV- fræðsla, þar er alltaf að koma eitthvað fróðlegt og skemmtilegt inn.
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.
Vöfflukaffi í HS
Eftir erfiðan dag er ekkert betra en belgísk vaffla, ekki nema þessar flæmsku.
Steikar dagur hjá strákunum í HS
Strákarnir pöntuðu sér nautalund frá 900 og voru mjög ánægðir. Upphitun fyrir bóndadaginn að þeirra sögn.
Íslandasmeistari
Magdalena Jónasdóttir, nemandi í 3. KM í Grunnskóla Vestmannaeyja hlaut fyrstu verðlaun á yngsta stigi í vísnasamkeppni grunnskólanema (Vísubotn 2016) sem Menntamálastofnun efndi til
Lífshlaupð hefst 1. febrúar
Lífshlaupið
Þessar sigruðu í Bs í fyrra :)
Lífshlaupið
Þessi sigruðu í Hs í fyrra :)
Lífshlaupið
Þessar hreyfðu sig mest í fyrra :)