Vikupistillinn
Tímabilið 16. - 21. desember 2019
Heilræði vikunnar
"Óklifin fjöll fram undan buga þig ekki
heldur steinvalan í skónum."
-Muhammad Ali
Hjálpum nemendum okkar að nota gott orðbragð og orðfæri við hvert annað
Punktar
- Í desember, hitta stjórnendur síðustu hópa kennara á starfsþróunarfundum.
- Jólahvalamiðar - Sérstakir jólahvalamiðar hafa verið gerðir, takmarkað upplag. Gilda 2 stig fyrir nemanda.
- Widgit Online er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar.
- Minnum umsjónarkennara á að skoða ástundun nemenda sinna samkvæmt nýju reglunum. Það er hægt að nálgast allar upplýsingar á vefslóðinni http://innri.hafnarfjordur.is/thjonusta/fraedsluthjonusta/form-og-eydublod/
- Vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði hefur undirgöngunum við Þorlákstún/Tjarnarvelli og aðliggjandi stígum verið lokað. Sjá nánar.
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt nýju fundaskipulagi ársins
- Raða skóm í hillur. Við viljum biðja kennara um að hvetja nemendur sína til að raða skóm sínum í skóhillur.
Kurteisi, ábyrgð, samvinna - einkunnarorð Hvaleyrarskóla
Notum einkunnarorð okkar til að ræða við nemendur.
Það er gott að nota einkunnarorð okkar: Kurteisi, ábyrgð og samvinna til að ræða við nemendur, hvernig við getum notað þau í daglegu lífi. Sjá má skemmtilega útfærslu hjá nemendum í 1. EÞ og Emilíu kennara þeirra. Þar gerðu þau táknmynd fyrir hvert einkunnarorði skólans, algjör snilld. Notum þessi einkunnarorð, til þess eru þau.
Mánudagur 16. desember
- Skil á umslögum í Öðruvísi jóladagatali.
- Verið - Piparkökuhúsaskreytingakeppni (nemendur koma með að heiman).
Þriðjudagur 17. desember
- Samvera sem nemendur í 7. bekk sjá um.
- Leikskólabörn í heimsókn kl. 09:00, sem Guðrún Árný, Marta og Steinar sjá um. Koma hugsanlega og kíkja í stofur hjá 1. bekkjum.
- Kl. 13:20 er söng- og danssamvera hjá elstu deild.
- Kl. 14:45 ætlar Guðrún Árný að bjóða okkur upp á jólatónleika í salnum. Höfum það huggulegt svona rétt fyrir jólin.
Miðvikudagur 18. desember
- Samvera í umsjón 4. IVJ.
- Kl. 10:00 koma allir bekkir á sal og úrslit fjölgreindaleikanna verða kynnt.
- Vinabekkir hittast kl. 10:00 - 11:20, sjá skipulag.
- Kl. 14:05 er fundur hjá nýju nemendaverndarráði á fundarherberginu.
- Verið - miðdeild - Ljótujólapeysukvöld.
- Verið - elsta deild - Ljótujólapeysukvöld.
Fimmtudagur 19. desember
- Kennsla samkvæmt stundaskrá.
- Fundatími - starfsfólk hefur það huggulegt við jólaundirbúninginn.
- Litlujól hjá nemendum í 6. og 7. bekk kl. 16:30 – 18:30
- Litlujól hjá nemendum í 8. – 10. bekk kl. 19:30 – 21:30
Sjá hér skipulag á færslu á starfsmönnum á jóladagskránni þann 19. og 20. desember.
- Munum eftir að tæma nestið úr ísskápnum ;)
Föstudagur 20. desember
- Litlujól hjá nemendum í 1. – 5. bekk kl. 9:00 – 12:00
- Sjá hér skipulag á færslu á starfsmönnum á jóladagskránni þann 19. og 20. desember.
- Verið - miðdeild - Pakkaleikur.
- Verið - elsta deild - Virtual reality kvöld.
Olweus - nemendaviðtöl
Aðgangur grunnskóla Hafnarfjarðar að Snöru
Söng- og danssamvera hjá yngstu deild
Söng- og danssamvera hjá yngstu deild
Frá jólamatnum
Afmælisdagar í desember
Ashwaq 2. desember, Hulda Sólveig 6. desember, Malen 14. desember, Palli 16. desember, Gunnur 20. desember, Ewa 25. desember og Alda 29. desember. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á döfinni í janúar
- Kennsla hefst 6. janúar á þrettándanum.
- Lesferill – allir nemendur prófaðir í 1. – 10. bekk
- Orðarún – nemendur í 3. – 8. bekk prófaðir
- Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk
- Skólapúlsinn – úrtak nemenda
- Innlit í kennslustundir
- Leikstjóra námskeið, 15. janúar, 3. – 7. bekkur
- Skipulagsdagur, 20. janúar
- Valgreinar vorannar byrja þann 21. janúar
- Námsviðtöl - stöðumat, 30. janúar
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200