Vikupóstur
24. feb - 6. mars
Kæra samstarfsfólk
Núna er vetrarfrí og bolludagur framundan. Naustaskóli býður starfsfólki upp á bollur á kaffistofunni og nemendur hafa leyfi til að koma með bollur eða eitthvað sætt með sér í nesti. Biðjum við kennara að minna á það í vikupóstum svo allir fái þau skilaboð.
Eftir vetrarfrí er Stóra upplestrarkeppnin þar sem tveir fulltrúar okkar keppa við aðra grunnskóla bæjarins. Skólahreystikeppnin er einnig framundan og þar mun kröftugt lið keppa fyrir hönd skólans. Nemendur í 7. – 10 bekk fara í Höllina og hvetja sitt lið og sitja á stað merktum Naustaskóla.
Lilja Þorkelsdóttir var svo óheppin að fótbrotna og er því komin í veikindaleyfi a.m.k næstu þrjá mánuðina.
Nýr starfsmaður mun hefja störf eftir vetrarfrí – hann heitir Jason Orri Geirsson og verður hann stuðningsfulltrúi í 6. - 7. bekk ásamt því að sinna öðrum verkefnum.
Í vetrarfrísvikunni munu kennara - og teymisfundir falla niður.
Fyrir það starfsfólk sem vinnur í vetrarfríinu verður gert skipulag um þrif og önnur verk sem vinna þarf.
Í vetrarfríinu og í marsmánuði munum við boða starfsmenn í hin árlegu starfsþróunarsamtöl.
Góða helgi!
Bryndís, Alla og Heimir.
Mánudagur 24. febrúar
Bolludagur – Bollur í boði skólans fyrir starfsfólk
Nemendaráðsfundur klukkan 9:00 í stóra fundarherberginu
Leyfi: Bryndís, Elsa, Erla, Halla og Hulda
Þriðjudagurinn 25. febrúar
Sprengidagur
Leyfi: Bryndís, Elsa, Hulda, Halla og Gudda
Miðvikudagurinn 26. febrúar
Vetrarleyfi – Frístund opin eftir klukkan 13:00
Leyfi: Bryndís, Heimir, Elsa, Sandra, Inga Vala, Harpa M, Gudda, Heiða, Margrét, Harpa Hilmars.
Fimmtudagur 27. febrúar
Vetrarleyfi - Frístund opin eftir klukkan 13:00
Leyfi: Bryndís, Elsa, Harpa M, Sunna, Inga Vala, Karen, Margrét, Harpa Hilmars og Heiða.
Föstudagur 28. febrúar
Vetrarleyfi - Frístund opin eftir klukkan 13:00
Leyfi: Elsa, Erla, Harpa M, Sunna, Inga Vala, Margrét, Harpa Hilmars og Heiða.
Mánudagur 2. mars
Þriðjudagur 3. mars
Stjórnendafundur kl. 11:15 – 12:15
Nefndarstörf 14:45 – íþróttakennarar og sérgreinakennarar mæta á fund með stjórnendum v. árshátíðar.
Leyfi: Elsa, Kolbrún Sigurgeirs. Arna.
Miðvikudagur 4. mars
Bryndís á skólastjórafundi kl. 8-10
Skólahreystikeppni í íþróttahöllinni kl. 13:00 – 7. – 10. bekkur horfir á.
Stóra upplestrarkeppnin í MA kl. 17:00
Leyfi: Elsa og Kolbrún Sigurgeirs.
Fimmtudagur 5. mars
Fræðsla fyrir 7. bekk kl. 8:10/ Hinseginfræðsla.
Nemendaverndarráðsfundur kl. 9:00 – 10:00
Fræðslufundur kl. 14:30 – Fræðsla frá HA um öpp í Ipad og Osmo fyrir 1. – 5. bekk á svæði 4. og 5. bekkjar.
Leyfi: : Elsa og Kolbrún Sigurgeirs.
Föstudagur 6. mars
Stjórnendafundur kl. 8:30 – 9:30
Skólastjórnendur á fundi hjá fræðslustjóra kl. 13:00 – 16:00
Leyfi: Margrét og Elsa.