Fimmtudagsfréttir
6. bekkur
Heil og sæl kæru foreldrar
Í dag var síðasti dagurinn í óhefðbundnu og skertu skólastarfi.
Á morgun föstudag er 1. maí og því frídagur í skólanum.
Mánudaginn 4. maí verður skipulagsdagur í skólanum, þar sem við munum nýta daginn til að undirbúa hefðbundið skólastarf.
Nemendur mæta aftur í skólann 5.maí kl.8:10 og ganga inn um sama inngang og þau gerðu fyrir skert skólastarf.
Við munum kenna eftir stundarskrá, svo íþróttaföt, sundföt og smiðjur verða aftur kennd :)
Í maí eru síðan lesfimipróf á dagskrá, því viljum við minna á heimalestur og mikilvægi þess að lesa líka upphátt.
Við vonum síðan að veðrið muni leika við okkur í maí, því við stefnum á vettvangsferðir á vordögum.
Hlökkum mikið til að fá börnin á komandi þriðjudag, eigið góða helgi!
Kveðja 6. bekkjarteymið.