HÚSBRÉFIÐ
11. ÁRG., 28. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 18. APRÍL - 24. APRÍL
MÁNUDAGUR 18. APRÍL
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL
Nemendaverndaráðsfundur í Hs kl. 8:10
Stjórnendafundur kl. 14:30
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL
Skóladagur Barnaskólans kl. 17:00
Fagfundur í íslensku í Bs- fagstjóri boðar til fundar
Deildarfundur í Hs kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL- SUMARDAGURINN FYRSTI
GLEÐILEGT SUMAR :)
FÖSTUDAGUR 22. APRÍL
Takk fyrir góða viku
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Allt um nýtt námsmat á þessari slóð: http://vefir.nams.is/namsmat/index.html
- Skóladagur Barnaskólans verður 20. apríl.
- Skóladagur Hamarsskóla verður 4. maí
- Lokaverkefni í 10.bekk 20. maí -2. júní
- Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk 1. -3. júní
- Fjölgreindarleikar á mið- og yngstastigi verða 1. og 2. júní.
- Allt starfsfólk á mið- og yngstastigi er hvatt til að horfa á youtubemyndböndin frá Vogaskóla til að kynna sér hvernig þessir leikar fara fram. Hér eru linkarnir https://www.youtube.com/watch?v=acXY8JdTR7E - https://www.youtube.com/watch?v=4shl5kPhEnc
Tilkynningar !!
Námskeið/fyrirlestur fyrir kennara verður þriðjudaginn 26. apríl kl.13:00 - 16:00 í Hs. Sigríður Ólafsdóttir kennari/doktor mun kynna rannsókn sína á Þróun orðaforða og lesskilingi íslenskra grunnskólanema sem eiga annað móðurmál en íslensku og Hulda Karen Daníelsdóttir, verefnastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða verður með vinnusmiðjur fyrir kennara.
GRV fræðsla- kennarar eru duglegir að setja inn efni á GRV fræðslu facebook síðuna, endilega skoðið hana. https://www.facebook.com/groups/985308401484961/?fref=ts
Kennarar og nemendur í 5. bekk eru byrjaðir að undirbúa hlutaveltuna fyrir skóladaginn, ef starfsfólk þarf að losa sig við eigulega hluti þá eru þeir vel þegnir.
Aðstoð við heimalestur og heimanám erlendra nemenda er á Bókasafni Vestmannaeyja, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 - 17:15. Kennarar eru beðnir um að hvetja sína nemendur til að nota sér þessa aðstoð. Drífa Þöll sér um þetta verkefni en það eru sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum ásamt nemendum úr FÍV sem sjá um að láta nemendurna lesa.
Menntaspjall á Twitter: http://ingvihrannar.com/menntaspjall/ annan hvern sunnudag. Oft mjög áhugaverðar umræður.
Gáta vikunnar
Er á fiðlu alltaf hann,
oft að vetri þungfær hann,
mislangur á mönnum hann,
mótaður úr gleri hann.
Svar við síðustu gátu
Steypa
Spakmæli vikunnar
Davíð Stefánsson:Nú skil ég stráin
Bráðhollt engiferskot
Engifer skot með appelsínum og blóðgrape
100 gr engifer, saxað
2-3 appelsínur, afhýddar
1-2 blóðgrape, afhýdd
- Setjið öll hráefnin í safapressu (Gyða mælir með Oscar safapressu) og setjið síðan á flösku. Engiferskotið geymist vel í ísskáp. Fyrir þá sem eiga ekki safapressu er allt sett í blandara ~ en þá verður að sía með síupoka í lokin og tappa síðan á flösku.
Þorgrímur Þráins. kom í heimsókn
Skypefundur í 3. MK
Heimilisfræði
Skoðið þetta stutta myndband frá Jo Boaler
Ótrúlega margar góðar hugmyndir um stærðfræði og hvernig opna á samærðuna um stærðfræði.