Vorgrill og skólaslit
2019
Ágæta starfsfólk
Enn einn veturinn að renna sitt skeið, hvert fór tíminn?
Síðustu dagar hafa einkennst af vettvangsferðum og aukinni útiveru nemenda og ýmislegt gert til að brjóta upp daginn. Nemendur hafa farið í gönguferðir, hjólaferðir, ísferðir, starfskynningar og svo er 10. bekkur í sínu árlega skólaferðalagi.
Við svitnum við námsmat og annað sem tilheyrir þessum annasama tíma og gleðjumst svo í lokin:-)
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um vorhátíðina og skólaslitin.
Vorgrill 3. júní 2019
Mánudaginn 3. júní verða stöðvar á skólalóð fyrir nemendur í 1. - 10. bekk þar sem árgangar fara á milli og taka þátt í hreyfingu og leikjum.
1.- 4. bekkur
Kl. 08:00 – 09:00 1. - 4.b ”frjáls mæting” – spil og rólegheit
Allir í 1. - 6. bekk
Kl. 09:00 Mæting í stofur hjá umsjónarkennara
Kl. 09:20 – 10:20 Útileikir – stöðvar á skólalóð.
Kl. 10:20 – 10:40 Frímínútur
Kl. 10:40 Mæting í stofur til umsjónarkennara
Kl. 11:20 Grill 1. og 2. bekkur - heimferð eða Frístund eftir grill
Kl. 11:20 - 12:00 Gestir - væntanlegir 1. bekkingar haustið 2019 og forráðamenn þeirra.
(5 ára innrituðum nemendum boðið í grill og afhend gjöf frá vinum Brekkuskóla).
Kl. 11:40 Grill 3. og 4. bekkur – heimferð eða Frístund eftir grill
Kl. 11:50 Grill 5. og 6. bekkur – heimferð eftir grill
Nemendur í 1. - 4. bekk eru í umsjón kennara sinna til kl. 12:00. Þá opnar Frístund og hinir fara heim sem ekki eru skráðir þar.
7. – 10. bekkur
Kl. 10:00 Mæting hjá umsjónarkennara. Allir í 7. – 10. bekk
Kl. 11:00 – 12:00 Útileikir – stöðvar á skólalóð
Kl. 12:00 Grill og heimferð
Skólaslit 4. júní 2019
Mæting í stofur:
1.-9. bekkur 9:00-11:00
Nemendur mæta í stofur hjá umsjónarkennurum, ljúka vetri á skemmtilegan hátt saman áður en flogið er út í sumarið.
Útskriftarathöfn 10. bekkjar
Skólaslit og útskriftarathöfn 10. bekkjar hefst á sal skólans kl.15:30. Fyrir athöfnina verður hópmyndataka sem hefst klukkan 15:00 á sal.
Foreldrar, forráðamenn, kennarar og aðrir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir.
Hafðu samband
Email: brekkuskoli@brekkuskoli.is
Website: brekkuskoli.is
Location: v. Skólastíg
Phone: +354 462 2525
Facebook: https://www.facebook.com/brekkuskoli.is/