Vikan 10 - 17 janúar 2020
2 - 3 bekkur
Kæru foreldrar/ forráðamenn
Gleðlegt nýtt ár og takk fyrir liði ár. Nemendur í 2 og 3 bekk komu hressir og kátir til baka úr jólafríi og er starfið komið á fullt hjá okkur.
Við byrjuðum strax á nýju þema en við erum að vinna með bókina Ástarsaga á fjöllunum og fjallar hún um tröll.
Næsta vika er vika jákvæðs aga og munum við vinna ýmis skemmtileg verkefni tengdum jákvæðum aga ásamt því að halda áfram að vinna með tröll.
Um áramótin urðu smá breytingar á nemendahópnum en tveir nemendur hættu hjá okkur vegna flutninga en það eru Ívar Pálmi í 2. bekk og Lilja Björk í 3. bekk. Tinna Björg byrjaði svo hjá okkur í 2. bekk en hún er að koma aftur til okkar en hún var hjá okkur í 1. bekk.
Í næstu viku munu verða breytingar á sundhópum bæði í 2 og 3 bekk sem við höldum utan um hérna í skólanum.
Lesfimipróf verða lögð fyrir seinnihluta janúar og minnum við á mikilvægi heimalestursins. Allir nemendur fengu hefti í vikunni til að skrá heimalesturinn. Viljum við biðja ykkur um að aðstoða börnin við að passa upp á heftið ásamt lestrarvasanum og hafa alltaf í töskunni.