Vikupistillinn
Tímabilið 1. - 7. október
Heilræði vikunnar
“Peningar eru nytsamlegir, en kærleikurinn, athyglin og umhyggjan sem við berum fyrir öðrum er það sem mestu skiptir.”
Móðir Teresa
Punktar
- Við viljum biðja kennara að fara yfir hvort ekki sé örugglega búið að leiðrétta orðalag og laga kvarðann (hæfni 5 tákn) í námskránni/hæfnikortinu í Mentor, hver kennari í sínu fagi/fögum. Munum að leita í síunni og byrja á hvk 18 - 19
- Nú styttist í viðtalsdaginn en þá ætlum við að fara yfir hæfnikortið með nemendum og foreldrum þeirra. Munum að til þess að það sé hægt þarf að vera búið að meta hluta af hæfniviðmiðum nemenda í öllum fögum.
- Kíkið á Workplace - þar er áhugavert tilboð frá 66°Norður. Það getur komið sér vel fyrir veturinn.
- Nú þurfum við að nýta Workplace meira - allir að skrá sig inn.
- Eru ekki allir umsjónarkennarar búnir að hafa samband við heimili nýrra nemenda til að ræða líðan nemandans og upplifun hans og foreldra af fyrstu vikum í nýjum skóla.
Mánudagur 1. október
Þriðjudagur 2. október
- Samvera miðdeildar kl. 8:20.
- kl. 15:00 er kennarafundur í fyrirlestarsalnum.
Miðvikudagur 3. október
- Samvera yngstu deildar kl. 8:20 í umsjón nemenda í 2. RAG.
- Forvarnardagurinn, nemendur í 9. bekk verða í vinnu við verkefni tengd deginum frá kl. 10:00 - 12:00 með umsjónarkennurum sínum.
Nemendaverndarráðsfundur kl. 13:15.
Fimmtudagur 4. október
- Kl. 15:00 eru teymisfundir.
Föstudagur 5. október
- Alþjóðadagur kennara.
- Starfsmannagleði á Krydd - veitingahúsi. Sjá auglýsingu á kaffistofunni.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Starfsmannamál
Kennarar frá Hollandi í heimsókn
Danir í heimsókn
Foreldrar nemenda í 10. GB og 10. SB buðu dönsku vinum okkar í hlaðboð á miðvikudags og fimmtudagskvöldið. Heimsókn dönsku vina okkar hefur gengið mjög vel.
Kennarar frá Hollandi
Við fengum 12 kennara frá Hollandi í heimsókn í gær fimmtudag. Nokkrir nemendur í 9.bekk sáu um að kynna þeim skólann. Kennararnir höfðu orð á því hvað nemendurnir töluðu vel um skólann sinn.
Tiltekt vikunnar
Við ætlum að biðja nemendur í 5. HÁ og Hrönn umsjónarkennara þeirra að sjá um tiltekt á skólalóðinni þessa vikuna.
Á döfinni
- Námsviðtöl eru 10. október. Hér má finna leiðbeiningar. Hér eru leiðbeiningar fyrir foreldra að bóka viðtal.
- Nemendur í 6. bekk verða Logos skimaðir í október eða nóvember.
- Skipulagsdagur er 19. október.
- Vetrarfrí er 22. og 23. október.
- Þorgrímur Þráinsson kemur í heimsókn til nemenda í 10. bekk þann 30. október.
Námslotur í InfoMentor
https://www.youtube.com/watch?v=jvS6zqJ86W4
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200