Vikupóstur - Unglingadeildar
Naustaskóli 15. nóvember 2019
Sæl og blessuð
Virkilega skemmtilegri viku að ljúka hér í Naustaskóla. Unglingarnir hafa verið til fyrirmyndar og passað vel upp á yngri krakkana sem voru með þeim á stöð.
Framundan er nokkuð hefðbundin vika fyrir utan að á föstudaginn næsta 22. nóvember er 10 ára afmæli Naustaskóla. Afmælisdagskráin er eftirfarandi:
Kl. 8:10 Nemendur mæta á sín svæði – farið yfir dagskrá afmælisdagsins.
Kl. 8:30 – 9:30 Skrúðganga með Farfest og trommum. Eftir skrúðgöngu er smá samvera á sal með Farfest. (nemendur með sína fána eftir þemadaga í skrúðgöngunni).
Kl. 9:30 – 10:20 Skúffukaka borðuð upp á svæðum. (m. mjólk)
Kl. 10:00 – 10:20 Frímó 1. – 5. bekkur fer út - 6. – 7. bekkur má vera inni. (skólaliðar sjá um gæslu).
Kl. 10:20 – 11:30 Kennarateymi setja upp gæðastund með sínum hópum á svæðum. (Spila/bingó/horfa á mynd/lesa sögu/samvera árganga).
Kl. 11:30 – 12:10 Greifapizza og svali – Allir í mat á sama tíma. (yngstu nemendurnir borða inni á sínum svæðum).
Kl. 12:10 – 13:00 – Ívar og Farfest á sal skólans. (gleði – gleði áður en nemendur fara heim).
Opið hús fyrir gesti frá kl. 15:00 – 17:00
Kaffihús sett upp í salnum.
Vöfflukaffi (fjáröflun fyrir 10. bekk).
9. - 10. bekkur sýnir skólann fyrir þá sem vilja.
Myndasýning rúllar – verk nemenda eftir þemadaga til sýnis og nemendur verða með atriði á sviði í umsjón Bobbu.
Til upplýsingar: Þá er Farfest afríkönsku trommararnir sem komu til okkar í vor.
Takk fyrir vikuna og eigið góða helgi.