DJÚPAVOGSSKÓLI
FRÉTTIR AF ÁRSHÁTÍÐ Í SAMKOMUBANNI
ÁRSHÁTÍÐ FRESTAÐ
Miðvikudagurinn 24.mars 2021 fer í sögubækurnar.
Nemendur voru á æfingu og í lokafrágangi á hótelinu til kl. 15:00 á miðvikudaginn og fóru heim með þau skilaboð að mæta hress daginn eftir enda dagurinn sem flestir höfðu beðið eftir...árshátíðardagur...
Þetta fór ekki alveg eins og til stóð og þegar líða tók á miðvikudaginn fengu foreldrar og nemendur póst frá skólastjóra þar sem fram kom að það væri búið að fresta árshátíðinn vegna hertra sóttvarnaaðgerða.
Þrátt fyrir að það væri frekar sorgmæddur starfsmannahópur sem yfirgaf skólann þann daginn þá var það alveg ljóst hjá öllum að ekki kæmi til greina að aflýsa árshátíðinni. Heldur þvert á móti að finna leið með nemendum til að sýna þessa frábæru sýningu.
Við vitum ekki hver staðan verður eftir páskafrí, skólastjóri mun upplýsa um leið og hægt er.
Nú förum við í páskafrí og hvílum okkur og söfnum kröftum fyrir næstu lotu.
Meðfylgjandi eru myndir af árshátíðarvinnu síðustu daga en nemendur náðu að halda stóra æfingu á miðvikudagsmorgni fyrir leikskólanemendur. Það var eina æfingin þar sem leikarar fóru í búninga.
Þessi myndbönd segja allt sem segja þarf...
GOGGI MEGA OG FLÉLAGAR
SÝNING FYRIR LEIKSKÓLANEMENDUR
LOKA ATRIÐIÐ OG ALLIR SAMAN
TÆKNI OG LJÓSAMENN OG KONUR
Þessi hópur var ekki lengi að læra á tækjabúnaðinn sem stýrir ljósum og hljóði. Þau fengu góða leiðsögn en Birgir Thorberg mætti á nokkrar æfingar og kenndi bæði nemendum og kennurum á græjurnar. Það er ómetanlegt að fá svona stuðning úr foreldrahópnum.
Bestu þakkir fyrir það.
FLOTT LEIKSKRÁ
MAT Á ÁRSHÁTÍÐARVINNU
Í þetta sinn ákváðum við að halda stöðufundi í lok hvers dags þar sem nemendur í 6. - 10. bekk mátu eigin framistöðu.
Lilja tók það verkefni að sér að halda utan um skráningar og hér á eftir má sjá hluta af þeirri vinnu. Hugmyndin var að nemendur og kennarar myndu loka þessari árshátíðarvinnu með því að gera lokamat á öllu verkefninu. Það átti að gerast í dag, þegar búið væri að ganga frá öllu.
Það gekk auðvitað ekki eftir en við stefnum á að klára þetta mat eftir páska.
KÆRU NEMENDUR
Nú vitum við ekkert hvernig skólinn verður hjá okkur eftir páskafrí en við munum finna góða leið miðað við þær reglur sem verða í gildi og við munum sýna leikritið okkar.
- Búningarnir ykkar eru á fataslá inni í vinnuherbergi kennara, merktir og tilbúnir.
- Leikskráin er tilbúin.
- Leikmunir og sviðsmynd er enn á hótelinu.
Við erum sem sagt tilbúin og skellum upp sýningur um leið og tækifæri gefst og við höfum ýmsar leiðir með það. Nú er bara að hugsa út fyrir boxið...við getum t.d. farið svipaða leið og Leikhópurinn Lotta gerir :) Við finnum okkar leið.
Bestu kveðjur og gleðilega páska.
ÁRSGAMLAR VIKUFRÉTTIR
Til gamans má geta þess að vikufréttir komu fyrst út þann 19.mars 2020. Þessar fréttir hafa því komið út vikulega (á skólatíma).
Ég vona að vikufréttir nýtist öllum vel. Hugmyndin með þeim er að upplýsa alla í skólasamfélaginu, nemendur, foreldra og starfsfólk. Þær eru líka mjög gott verkfæri fyrir skólastjórnendur.
Vikufréttir hafa þróast á þessu eina ári og nú væri gaman að fá viðbrögð frá ykkur.
- Hvað má bæta?
- Hvaða upplýsingum má bæta við?
Við stefnum á að birta vikufréttir á heimasíðu skólans. Vikufréttir geta verið góðar heimildir um skólastarfið.
Bestu kveðjur og gleðilega páska.
Starfsfólk Djúpavogsskóla