Spjöldin í námi og heimanámi.
Yfirlit yfir ýmis forrit og vefsíður sem koma sér vel..
Sérstakir tímar - dæmalausir, fordæmalausir.
Það eru skrýtnir tímar sem við erum að fara í gegn um og við gerum það hvert á okkar hátt. Aðstæður okkar eru mismunandi og hafa mismikil áhrif á líf okkar. Þetta á líka við um nemendur okkar og fjölskyldur þeirra.
Rannsóknir sýna að á svona tímum hafa nemendur okkar þörf fyrir að upplifa öryggi, tengsl og bjartsýni. Hlutverk okkar er að veita einhverskonar stöðugleika í líf barnanna þar sem rútína er mikilvæg í upplifun þeirra á öryggi. Við felum þeim ákveðin verkefni að leysa dag hvern svo þau haldi tengslum við námið, félagana og skólann. Skilaboðin þurfa að vera skýr og verkefnin þess eðlis að börnin langi að takast á við þau. ,,Við þurfum að hafa lágan þröskuld og hátt þak". (Ingvi Hrannar) Þau þurfa hjálp til að sjá gleðina þrátt fyrir aðstæður.
Við flytjum ekki kennslustofu á rafrænt form, og við megum ekki drekkja okkur í að búa til verkefni eða nemendum okkar í verkefnum. Ingvi Hrannar birti pistil um stöðuna og þar er að finna skjal sem kennarar landsins eru búnir að setja verkefni inn á. Öllum er frjálst að nota og að bæta við, það vex dag frá degi.
Nú eins og áður skulum við forðast að hella okkur út í ógrynni smáforrita (appafyllerí). Það sama gildir um nemendur, það er ekki magn forrita sem skiptir máli heldur reyna að finna skapandi verkefni unnin með forritum sem þau þekkja.
HÉR er hlekkur á síðuna okkar: Heimaskóli - valverkefni. Þar söfnum við saman fjölbreyttum verkefnum fyrir nemendur okkar til að velja til heimavinnu, sem þau segja svo frá í dagbók; hópaverkefni, útivera, hreyfing, tilraunir, textíl, leiklist, smáforrit o.s.frv.
Ég hef hér að neðan tekið saman þau smáforrit sem við höfum notað mest og nemendur okkar þekkja; samskiptaforrit, námsumhverfi, skapandi skil, forritun og aðrir námsleikir, stuðningur í námi.
Neðst í skjalinu eru svo námsvefir og vefsíður um upplýsingatækni í skólastarfi.
Google Hangouts - fyrir nemendur til að hittast og spjalla rafrænt.
Það er afar mikilvægt, ekki síst á þessum tímum sem við erum að fara í gegn um, að taka umræðuna með þeim um samskipti, og hvað góð samskipti skipta okkur miklu máli.
HÉR er stutt myndband (2.36 mín.) um samskipti ,,Hvað eru góð samskipti?".
Á síðunni saft.is er að finna upplýsingar varðandi samskipti, það er gott að láta þau slá henni upp og skoða.
HÉR er bæklingurinn Börn og miðlanotkun sem mætti senda heim til foreldra.
Google Meet - fjarfundir og spjall
Með Google Meet er hægt að halda fjarfundi, taka þá upp og streyma. Það er gott að nota spjaldið fyrir fjarfundi þar sem það er með innbyggða bæði myndavél og hljóðnema, en best er best er að nota heyratól með hljóðnema, þessi litlu sem fylgja farsímum eru fín.
Á spjaldinu:
- Velur ,,+ New meeting"
- Þá birtist gluggi með upplýsingum til að senda, velur ,,Share joining info".
- Velur hvernig þú vilt senda upplýsingarnar til þess/þeirra sem þú ætlar að hitta.
- Ýtir þú á ,,Tengjast eða hefja fund"
- Setur inn kóða, eða nefnir fundinn og heldur áfram.
- Ýtir á ,,Tengjast núna" og færð þá kóða til að senda þeim sem þú vilt hitta.
Hægt að setja niður fund fyrirfram með því að stofna viðburð í Google Calendar. Hér eru leiðbeiningar frá Bergmann af vefnum snjallkennsla.is þar sem hann fer yfir það skref fyrir skref hvernig það er gert. Ferð inn í Google Calendar - stofnar viðburð - setur inn dagsetningu og tíma - ýtir á ,,Bæta fundi við" og velur ,,Hangouts Meet" - bætir við gestum og ýtir á ,,Vista". Þeir sem eru boðaðir á fundinn sjá þá viðburðinn í dagatalinu sínu.
Ef hljóð eða mynd kemur ekki er hægt að yfirgefa samtalið og koma inn aftur. Líka stundum nóg að ,,loka" fyrir hljóðnema/myndavélina og opna aftur.
Í Google Crome í tölvu er hægt að sækja viðbót (e. extencion) þannig að hægt sé að sjá marga glugga í fjölmennu samtali.
Zoom fyrir fjarfundi starfsfólks
Við erum að endurskoða notkun á Zoom, svo virðist sem það sé varasamt.
Leiðbeiningar: Sækið Zoom smáforritið í spjaldið ykkar. Virkar á sama hátt og Google Meet.
Einn aðili boðar fundinn og sendir öðrum fundarboð.
Á spjaldinu:
- Velur ,,New Meeting" og þegar þú ert kominn í mynd ýtir þú á ,,Participants" uppi í hægra horninu og velur hvernig þú vilt senda þeim fundarboð sem þú ætlar að funda með.
- Þú getur líka skipulagt fundinn fyrirfram. Þá velur þú ,,Schedule", nefnir fundinn, skráir hvenær hann á að vera og ýtir á ,,Done". Þá færðu yfirlitsmynd og finnur ,,Invitees", ýtir á það og fyllir út netföng þeirra sem eiga að fá boð á fundinn. Fundarboðið skráist þá inn í dagatal þeirra.
Heimaskóli - valverkefni
Google skólaumhverfið er grunnurinn okkar
Google Classroom
Topics: Hægt að flokka valverkefni eftir t.d. fögum og svo ,,Annað".
HÉR eru leiðbeiningar sem mætti senda heim til foreldra.
Google skjöl (e. Docs)
Sum barnanna eiga kannski ekki aðgang að hópum nema kennarinn búi þá til.
HÉR eru leiðbeiningar.
Google skyggnumr (e. Slides)
HÉR eru leiðbeiningar.
Glósur, þjálfun og keppni.
Quizlet - glósuforrit.
Quizizz - spurnigaleikir, keppni
Skapandi skil á ýmsum verkefnum
Myndavélin - myndskeið
Clips - til að búa til myndskeið
iMovie - til að búa til myndskeið, stuttmynd
Chatterpix - teikningin talar
Stop Motion - hreyfimyndagerð
Explane everything - Whiteboard með tali.
Einnig gott fyrir kennara til að búa til kennslumyndskeið.
Rafbækur í Book Creator
Nemendur geta deilt hlekk á rafbókina í Classroom og þá getur kennari séð allar breytingar jafnóðum.
Dæmi um rafbækur.
Garage Band
Popplet
Kosturinn við rafrænt hugtakakort er að þar er hægt að flokka og færa til. Svo má taka hugtakakortið, setja ,,yfirheitið" efst og flokka önnur atriðið í undirflokka og sameina þá. Þá er komin beinagrind að ritun eða stuttmynd.
Flipgrid
Kennari býr til vegg í tölvunni og sendir nemendum hlekk. Þau opna og setja inn myndskeið.
Padlet
Duolingo fyrir dönsku - besta tungumálakennsluforritið.
Forritun og annað nám
Forritun: Box Island
Forritun: Coding Safari
Forritun: Code Kart
Forritun: Scratch Jr.
Forritun: Tynker
Forritun: Swift Playgrounds
Chess for Kids
Chess Classic game
Escape Games-Amusing Kids Room
Blocs Wave
Launchpad
Groovebox
Google Earth
Google Expedition
Nemandinn opnar Expedition, velur ,,AR" efst uppi og ,,Discover" neðst niðri. Svo er hægt að velja að skoða; frumu, eldgos, risaeðlu o.s.frv. Opna það, hala niður ,,Download to view or guide", velja svo ,,View", finna sléttan flöt á gólfi eða borði, ýta á punktana og þá birtist myndin. Neðst eru upplýsingar og þar velur maður næstu mynd.
Stuðningur í námi
Voice Dream Reader
Enska og danska röddin fylgja með, en kaupa þarf íslensku röddina sérstaklega. Scanner forritið er beintengt forritinu, nemandi skannar skjal og forritið les. HÉR eru leiðbeiningar frá Berglindi Þórisdóttur.
Voice Recorder fyrir heimalestur
HÉR eru leiðbeiningar.
Það er líka hægt að nota Voice Memos.
snara.is - orðabók
Vefsíður um tækni og góðar hugmyndir í skólastarfi.
Á síðu Menntastefnu Reykjavíkurborgar er að finna ,,Verkfærakistu" með alls kyns verkefnum.
Nám í Reykjavíkurborg, stutt af neti - alls kyns stoðir vegna heimanáms/fjarnáms.
Snjallkennsla.is - vefur Bergmanns og Hans Rúnars. Fullt af leiðbeiningamyndskeiðum um algengustu forritin.Spjaldtölvuvefur Kópavogs - Uppflettivefur sem hefur byggst upp á 5 árum í Kópavogi.
Snjallvefjan - Vefum sem er fyrst og fremst með ýmislegt sem nýtist í sérkennslu og stuðningi.
Bloggsíða Ingva Hrannars - eins af okkar helsta frumkvöðli í skólamálum.
Bara byrja - um það að taka fystu skrefin í að nýta tækni í skólastarfi.
Bloggsíða Önnu Maríu Kortesen - sem hefur verið upplýsingatæknikennari um áraraðir.
Upplýsingatæknisíða Oddeyrar-, Þelamerkur- og aðra.
Fikt - námsvefur um upplýsingatækni í leikskólum og á yngsta stigi grunnskóla.
Google skólaumhverfið - síða unnin af Bjarndísi Fjólu og hennar teymi um G Suite forritin.
Teach from Home - síða sem Google setti á laggirnar vegna Covid-19. Google skólaumhverfið og hvernig það nýtist.
NaNO - Náttúruvísindi á nýrri öld - námsefnisauðlind fyrir starfandi kennara í leik-, grunn- og framhaldsskólum sem koma að náttúrufræði- og/eða raunvísindakennslu.
Á Twitter fer öflug skólaumræða fram undir millumerkjunum #menntaspjall og #utkall - bara að skrá sig inn og byrja að fylgjast með. Kennarar eru duglegir við að deila.
Vefsíður með gagnvirku námsefni, kennsluefni, fræðslumyndböndum og fleiru.
Skólavefurinn er með heilmikið af gagnvirkum æfingum. HÉR er PDF skjal til að senda heim til foreldra með upplýsingum um innskráningu fyrir nemendur.
Menntamálastofnun - mms.is
Fræðslugátt Menntamálastofnunar - þar má finna rafrænt námsefni Menntamálastofnunar, upplýsingar um efni á vegum RÚV og annað efni sem nýst getur skólasamfélaginu.
Menntarúv fyrir nemendur 6 - 12 ára, og nemendur 13 - 16 ára. Mikið úrval af fræðandi efni.
Kvistir - Stuttir myndbútar í samfélags- og náttúrufræðigreinum.
Frístundalæsi - vefur með fræðsluefni til eflingar máls og læsis á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar.
Frístundalæsi - Handbók - Eflingar máls og læsis á frístunaheimilum Reykjavíkurborgar.
Frístundalæsi: Handbók fyrir foreldra barna á yngsta stigi, hugmyndir að læsiseflandi smáforritum.
Vísindasmiðja HÍ er með verkefnasíðu með spennandi verkefnum.
Twig - Vefur ætlaður nemendum á aldrinum 11 til 16 ára. Margverðlaunaður vefur með yfir 1.700 myndböndum á ensku ásamt verkefnum. Efnið er á sviði eðlisfræði, efnafræði, líffræði, jarðfræði, stærðfræði, landafræði og tilrauna.
Forritun - vefsíðan code.org er fyrir krakka á öllum aldri og nemendur okkar þekkja hana úr UT tímum.
Stærðfræðivefur Guðríðar kennara.
Hildur Ásta Viggósdóttir - Setbergsskóli
Email: hildurviggos@setbergsskoli.is
Twitter: @hildurviggos